Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Flugsætum Útsala á Alicante, Tenerife Malaga, Mílanó Verð m.v. Mílanó 8. ágúst flug aðra leið með tösku og handfarangri Nánar á www.heimsferdir.is Flug frá kr. 14.950 Segir ekki þörf á innflutningi  Lilja Alfreðsdóttir á síður von á því að af innflutningi á lambahryggjum verði Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er engin þörf á að flytja inn erlent lambakjöt. Samkvæmt mínum heimildum eru margir slátur- leyfishafar enn að afgreiða lambahryggi til versl- ana. Svo hefst sauðfjárslátrun um miðjan ágúst,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Fram- sóknarflokksins og ráðherra. Eins og fram hefur komið lagði ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara til að gef- inn verði út tímabundinn innflutningskvóti á lækk- uðum tollum til að bregðast við skorti á innlendum lambahryggjum og hryggjarsneiðum. Lagt var til að flytja mætti inn þessar vörur með magntolli frá 29. júlí til 30. ágúst. Aðspurð kvaðst Lilja síður eiga von á því að af þessum inn- flutningi verði. „Við eigum eftir að ræða þessi mál frekar innan ríkisstjórnarinnar, en aðal- atriðið er að það er ekki þörf fyrir þennan innflutning,“ sagði Lilja. Hún sagði að Framsóknarflokkurinn vildi halda uppi sérstöðu íslenska lambakjötsins. „Við erum með mjög metnaðarfulla fram- leiðslu og einstaka afurð.“ Hún sagði að hingað til hefði ríkt samstaða á milli íslenskra neytenda og bænda um að halda í sérstöðu íslenska lambakjötsins bæði fyrir lands- menn og ferðaþjónustuna. „Ferðamenn koma hingað til þess að borða íslenskar afurðir og við eigum að gera allt sem við getum til þess að tryggja að svo geti orðið,“ sagði Lilja. Innflutningur vinnur gegn hagræðingu Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, sagði í grein í Bændablaðinu það ljóst að yrði af miklum inn- flutningi á lambakjöti til Íslands þá myndi það vinna gegn þeim árangri sem náðst hefði í að vinna niður birgðasöfnunarvanda greinarinnar. Sá ár- angur hefði náðst með samstilltu árangri og erf- iðum fórnum. Það ynni gegn markmiðum samn- ings sem stjórnvöld gerðu nýverið við sauðfjár- bændur. Mestu myndu bændur og byggðir tapa. Lilja Alfreðsdóttir Eiríkur Jónsson, prófessor í lögum við Háskóla Íslands, var metinn hæf- astur þeirra sem sóttu um embætti dómara við Landsrétt. Á eftir honum komu Ásmundur Helgason, Jón Höskuldsson og Ástráður Haraldsson í þessari röð. Fjórmenning- arnir voru á með- al umsækjenda um stöðu Lands- réttardómara þegar upphaflega var skipað í rétt- inn árið 2017. Þrír þeirra, allir nema Ásmundur, voru á meðal 15 efstu á listanum, en Sigríð- ur Á. Andersen, þáverandi dóms- málaráðherra, færði þá niður á lista og hlutu þeir því ekki starfið. Í umsögn hæfisnefndar nú, sem skipuð er öðru fólki en 2017, er röð fjórmenninganna óbreytt með þeirri undantekningu að Ásmundur er metinn næsthæfastur, hæfari en Jón og Ástráður. Í hæfisnefnd nú sátu Eiríkur Tómasson formaður, Hall- dór Halldórsson, Óskar Sigurðsson, Sigríður Þorgeirsdóttir og Valtýr Sigurðsson. Skipa á í stöðu eins dómara í Landsrétti eftir að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson sagði starfi sínu lausu í vor og kvaðst hann ætla að setjast í helgan stein. Alls sóttu átta um stöðuna, þar af tveir sitjandi dómarar í Landsrétti, þau Ásmundur Helgason og Ragn- heiður Bragadóttir. Þau eru í hópi þeirra fjögurra sem Sigríður Á. And- ersen, þáverandi dómsmálaráð- herra, skipaði í embætti þrátt fyrir að hafa ekki verið metin meðal hæf- ustu umsækjenda af hæfisnefnd. Tveir umsækjendur, Friðrik Ólafs- son og Ragnheiður Bragadóttir, drógu umsókn sína til baka áður en hæfisnefnd lauk störfum. Eiríkur metinn hæfastur  Niðurstaða hæfisnefndar um dómara í Landsrétti liggur fyrir  Þrír þeirra efstu voru færðir neðar á lista árið 2017 Eiríkur Jónsson Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Sæti eins dómara við réttinn var auglýst og átta sóttu um. Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði í gær karlmann á þrí- tugsaldri í gæslu- varðhald til 23. ágúst. Það var gert að kröfu lög- reglunnar á höfuðborgar- svæðinu vegna rannsóknar á vopn- uði ráni í austurborginni síðdegis í fyrradag. Þegar tilkynnt var um málið kom fram að manni hefði verið ógnað með skotvopni og hann rændur. Lög- reglan brást skjótt við enda mál sem þessi litin mjög alvarlegum augum. Farið var í markvissar aðgerðir sem stóðu yfir fram á nótt. Fjórir voru handteknir í fyrrakvöld í tengslum við málið. Við aðgerðirnar naut lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu að- stoðar sérsveitar ríkislögreglu- stjóra. Þremur mannanna var sleppt úr haldi lögreglu í gær en lögð fram krafa um gæsluvarðhald yfir þeim fjórða sem fyrr segir. Gerðar voru tvær húsleitir. Skotvopnið var eft- irlíking af skammbyssu og er í vörslu lögreglunnar. Í gæslu- varðhaldi vegna ráns  Var með eftirlík- ingu af skammbyssu Flugmálayfirvöld hafa aflétt kyrr- setningu á GA8 Airvan-flugvélum, sem kyrrsettar voru fyrir tæpri viku vegna flugslyss í Umeå í Svíþjóð. Fyrstu rannsóknir benda til þess að slysið megi ekki rekja til hönn- unar- eða smíðagalla, heldur óskyldra atriða sem snerta hvorki flughæfi né öryggi flugvéla af þessari tegund, að því er fram kemur í tilkynningu frá íslenska flugfélaginu Circle Air á Ak- ureyri, sem þurfti að kyrrsetja tvær vélar sínar af þessari tegund. Félagið hefur því tekið flugvél- arnar aftur í notkun. Voru áhrif kyrr- setningar lágmörkuð með margs kon- ar aðgerðum og samvinnu við aðra flugrekendur. „Circle Air þakkar stuðning og skilning á þeirri stöðu sem upp kom og jákvæð viðbrögð við- skiptavina og farþega,“ segir m.a. í tilkynningu félagsins. Kyrrsetningu flugvéla aflétt Alþjóðlega knattspyrnumótið Rey Cup, sem Þróttarar halda, fer nú fram í Laugardalnum í Reykjavík. Um 1.200 keppendur taka þátt en mótinu lýkur á morgun. Þátttökurétt eiga stelp- ur og strákar úr 3. og 4. flokki í knattspyrnu. Hér etja kappi saman stelpur frá Val og KA. Um 1.200 keppendur spila á Rey Cup Morgunblaðið/Hari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.