Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Mikið líf hefur verið á Gljúfrasteini á sunnudögum í sumar. Þar hafa verið haldnir fjölbreyttir stofutónleikar vikulega þar sem tónlistarmenn af ólíkum sviðum tónlistar hafa komið fram. Á morgun, sunnudaginn 28. júlí, kl. 16, heldur barítónsöngvarinn Jóhann Kristinsson, sem í fyrra hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í flokknum bjartasta vonin, stofu- tónleika ásamt Ammiel Bushakevitz píanóleikara. Þeir munu flytja valin sönglög eftir Franz Schubert. „Við komum hingað til lands árið 2017 og sungum þá lög eftir Robert Schumann og Gustav Mahler. Okkur fannst eðlilegt að Franz Schubert fengi að vera næstur í röðinni,“ segir Jóhann og bætir við að á efnis- skránni verði „bland í poka“ af tón- list hans. „Schubert er virtasta ljóðasöngskáld allra tíma og mikill frumkvöðull á því sviði. Hann samdi ótrúlega mikið af sönglögum á stuttri ævi,“ segir söngvarinn. „Minn uppáhaldsmeðleikari“ Jóhann segir það vera viðeigandi að flytja sönglög Schuberts á stofu- tónleikum í Gljúfrasteini vegna þess að tónlist hans hafi einmitt verið ætl- uð til flutnings á stofutónleikum. „Hann samdi þessi lög og svo fékk hann vini sína til þess að syngja þau í veislum. Þessi lög voru ekki hugsuð fyrir risastóra tónleikasali heldur akkúrat svona tónleika.“ Viðfangsefni sönglaganna eru fjöl- breytt og nefnir Jóhann meðal ann- ars ástina og dauðann. „Það er dramatík í þessu. Það koma fyrir rómantísk viðfangsefni þar sem náttúrunni er skipt út fyrir mann- lega eiginleika og mannlegar tilfinn- ingar. Svo eru sagðar stuttar sögur í sumum lögunum.“ Jóhann hefur unnið umtalsvert með meðleikara sínum Ammiel Bus- hakevitz. „Ég leita alltaf fyrst til hans þegar ég fæ tilboð um verkefni. Hann er minn uppáhalds meðleikari. Hann er bæði rosalega góður vinur og einn magnaðasti tónlistarmaður sem ég þekki. Ég er sjálfur mikill aðdáandi hans.“ Jóhann segir Bus- hakevitz fyrst og fremst vera sóló- píanista þótt hans helsta ástríða sé að vinna með ljóðasöngvurum. „Markaðurinn fyrir ljóðasöng er því miður svo lítill að aðeins örfáir geta unnið við það,“ segir hann. Þeir félagarnir hafa meðal annars komið fram á hátíðunum Heidelber- ger Frühling í Þýskalandi og Oxford Lieder festival á Englandi. Jóhann hefur verið á tveggja ára samningi hjá Ríkisóperunni í Ham- borg í svokölluðu óperustúdíói. „Þar fá ungir söngvarar, sem eru nýbúnir að ljúka námi, að syngja fullt af hlut- verkum á stóra sviðinu,“ útskýrir Jóhann. Því tímabili var að ljúka og nú er söngvarinn sjálfstætt starf- andi. Mörg verkefni fram undan Það er þó ýmislegt um að vera hjá söngvaranum á næstunni og nefnir hann nokkur dæmi um þau verkefni sem fram undan eru. „Ég verð sem gestur hjá Ríkisóperunni í Hamborg til þess að syngja í La Traviata og Madama Butterfly.“ Auk þess á Jó- hann að syngja í nútímaóperunni Ich und Ich sem er Fást í nýjum búningi þar sem nasistar koma við sögu. „Um jólin á ég að syngja C-moll- messu Mozarts með útvarps- hljómsveitinni í München og í mars syng ég svo Matteusarpassíu J.S. Bachs með La Scala-kammersveit- inni í Mílanó. Þetta er brot af því sem er fram undan.“ Jóhann leggur aftur leið sína til Íslands í september. Þá syngur hann 9. sinfóníu Beethovens með Ung- sveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Miðar á stofutónleikana eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2.500 kr. „Það er dramatík í þessu“  Jóhann Kristinsson barítónsöngvari og Ammiel Buschakevitz píanóleikari á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun  Flytja úrval af sönglögum Schuberts Morgunblaðið/Árni Sæberg Í stofu skáldsins „Hann er bæði rosalega góður vinur og einn magnaðasti tónlistarmaður sem ég þekki. Ég er sjálfur mikill aðdáandi hans,“ segir Jóhann um meðleikara sinn Ammiel Bushakevitz. Þeir eru hér á Gljúfrasteini. Dagskrá helgarinnar á Sumartón- leikum í Skálholti hefst með fyrir- lestri Helgu Ögmundsdóttur, for- manns Hollvinafélags Sumar- tónleika, í Skálholtsskóla kl. 13 í dag. Þar ræðir hún sjálfsmynd stað- arins og tækifæri. Kammersveitin Elja heldur tónleika í dag og á morgun kl. 14 báða daga. Á efnis- skránni eru verk eftir m.a. Báru Gísladóttur, Dobrinku Tabakovu, Guðmund Stein Gunnarsson og Tatjönu Kozlova-Johannes. Danski kornett- og blokkflautu- leikarinn Lene Langballe og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel- og semballeikari, flytja verk eftir Frescobaldi, Fontana, Bassano og Dowland á tónleikum í dag, laug- ardag, kl. 16. „Kornett er ekki svo þekkt hljóðfæri í dag en á endur- reisnar- og fyrri hluta barokktím- ans var það vinsælast af tréblást- urshljóðfærunum og var það mikið til vegna þess hversu það minnti á mannsröddina.“ Kornettleikari Lene Langballe. Hljóðfæri manns- raddarinnar ómar Jón Þor- steinsson, tenór og söngkennari, heldur mast- erklass fyrir söngvara og söngnema á framhalds- og háskólastigi í sal Tónskóla Sig- ursveins við Engjateig. Kennt er í dag og á morgun milli kl. 9 og 15.30 og á mánudag kl. 9-16, en námskeiðinu lýkur með tónleikum á mánudag kl. 19.30. Í kennslu sinni styðst Jón við Lichtenberg-aðferðafræðina, sem gengur m.a. út á uppruna hljóms í mannslíkamanum og eðlislæga þró- un raddarinnar. Heldur master- klass hérlendis Jón Þorsteinsson „Veitið A$AP Rocky frelsi. Við höf- um gert svo mikið fyrir Svíþjóð, en njótum þess ekki á móti,“ tísti Don- ald Trump, forseti Bandaríkjanna, í fyrradag þegar staðfest var að bandaríski rapparinn A$AP Rocky hefði verið ákærður í Svíþjóð fyrir alvarlega líkamsáras þar í landi. Rapparinn hefur setið í gæslu- varðhaldi frá 5. júlí og verður fram að þriggja daga réttarhöldum sem hefjast 30. júlí. Áður en ákæran var gefin út hafði Trump upplýst að hann hefði rætt símleiðis við Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, og beðið hann að beita sér í mál- inu. Fljótlega eftir að ákæran var gefin út tísti Trump að hann væri „mjög vonsvikinn yfir því að Löfven hefði ekkert getað gert“ og bætti við að Svíþjóð hefði brugðist þel- dökkum Bandaríkjamönnum. Carl Bildt, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, svaraði Trump á Twitter um hæl. „Allir eru jafnir fyrir lögunum og dómskerfið er sjálfstætt vald. Þannig er málum háttað í Bandaríkjunum og svo sannarlega líka í Svíþjóð. Pólitísk afskipti af dómsmálum eru aug- ljóslega á bannsvæði. Skilið?“ Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvað Trump gangi til í tístum sínum um málið. Sænski rithöfundurinn Britt- Marie Mattson telur ljóst að Trump sé að reyna að bæta ímynd sína hjá þeldökkum Bandaríkjamönnum fyrir komandi forsetakosningar og afsanna að hann sé haldinn kyn- þáttafordómum eftir að hann hvatti fjórar bandarískar þingkonur, sem eru af erlendu bergi brotnar, til að fara aftur til landanna sem þær kæmu frá. Talbert Swan, þekktur baráttumaður fyrir réttindum þel- dökkra í Bandaríkjunum, er sann- færður um að nýjasta útspil Trumps muni ekki skila honum fleiri atkvæðum frá þeldökkum íbú- um landsins. „Þér er alveg sama um A$AP Rocky og alla aðra þeldökka í Bandaríkjunum sem og í heim- inum öllum. Þetta snýst um póli- tík,“ tístir Swan. „Snýst um pólitík“ Carl Bildt Stefan Löfven ASAP Rocky Donald Trump Ármúla 24 • S. 585 2800 Picasso

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.