Morgunblaðið - 27.07.2019, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kát Börn með sykurfrauð á Klambratúni.
Barna- og fjölskylduhátíðin Kátt á
Klambra verður á morgun haldin í
fjórða sinn á Klambratúni milli kl.
11 og 17.
Um fjögur þúsund manns, bæði
börn og fullorðnir, sóttu hátíðina í
fyrra og búast skipuleggjendur há-
tíðarinnar við að gestafjöldi verði
verulega meiri í ár.
Samkvæmt tilkynningu er mark-
miðið að bjóða börnum og full-
orðnum upp á skemmtun og fróð-
leik á grænu svæði í Reykjavík með
fjölbreyttum menningar- og lista-
viðburðum. Meðal þeirra sem leika
listir sínar verða BMX brós, Herra
Hnetusmjör og DJ Flugvél og geim-
skip.
Kátt á Klambra
haldin í fjórða sinn
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Ísland fer upp um þrjú sæti í nýsköp-
unarvísitölu Alþjóðahugverkastofn-
unarinnar (WIPO Global Innovation
Index) fyrir árið
2019. Frá þessu
er sagt á vef Hug-
verkastofunnar,
áður Einkaleyfa-
stofu, þar sem
einnig er sagt frá
því að Ísland sé
nú í 20. sæti vísi-
tölunnar, en Ís-
land hafi árið áður
fallið um tíu sæti
eftir að hafa setið
í 13. sæti árin tvö á undan.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Jón Gunnarsson, samskiptastjóri
Hugverkastofunnar, að hann telji
þetta vera gleðilegar fréttir og að tíu
sæta fallið í fyrra hafi gefið skilaboð
um að betur þyrfti að gera í þessum
efnum.
Sveiflurnar meiri á Íslandi
Spurður um umrædda vísitölu seg-
ir Jón að þessi vísitala sé ein af stærri
vísitölunum hvað nýsköpun varðar. Í
þessari vísitölu, sem unnin er af Al-
þjóðahugverkastofnuninni, sem sé
undirstofnun Sameinuðu þjóðanna,
séu alls kyns upplýsingar teknar
saman, svo sem staða stjórnmála,
fjárfesting í nýsköpun og framleiðsla
og verndun hugverka. „Það er stór
þáttur í þessu,“ útskýrir Jón.
„Ísland kom kannski svolítið illa út
úr þessu í fyrra,“ segir Jón og minn-
ist á að Ísland hafi fallið úr 13. í 23.
sæti, eins og áður segir. „Það hefur
verið talað um þetta hjá aðilum sem
hafa látið sig þessi mál varða, og hafa
haft áhyggjur af því,“ bætir hann við.
Spurður hver hafi verið ástæðan
fyrir tíu sæta fallinu í fyrra svarar
Jón að eitt af því hafi verið lítill fjöldi
einkaleyfa. Þá hafi það einnig tengst
fjárfestingu í nýsköpun. „Við vitum
það að á Íslandi geta sveiflurnar ver-
ið meiri en annars staðar þegar kem-
ur að fjárfestingu í nýsköpunarfyr-
irtækjum. Ef það kemur stór
fjárfesting eitt árið þá skýst Ísland
upp.“
Bæði veikleikar og styrkleikar
Segir Jón að Ísland búi bæði yfir
veikleikum og styrkleikum, og nefnir
að við stöndum nokkuð aftarlega
hvað útflutning á hugverkum varðar
en framarlega í verndun vörumerkja.
Spurður hvort það séu ekki gleði-
fréttir að Ísland sé aftur á leið upp
listann svarar Jón: „Jú, ég myndi
telja það. Það var auðvitað leiðinlegt
þegar við féllum þarna tíu sæti niður í
fyrra. Ég veit að það segir kannski
ekki alla söguna, það er verið að gera
margt mjög gott og sveiflurnar eru
kannski meiri hér á landi vegna þess
hvað við erum lítil. En það er auðvit-
að gott að við séum farin að fikra okk-
ur aftur upp á við.“
Ísland stígur upp um þrjú sæti
Nýsköpunarvísitala Alþjóðahugverkastofnunarinnar 2019 er komin út Tíu sæta fall í fyrra
Morgunblaðið/Hari
Listaverk Nýsköpun er á betri stað í ár en í fyrra samkvæmt vísitölunni.Jón Gunnarsson
T ÍBRÁ
Ef keyptir eru miðar á alla
10tónleika raðarinnar fæst
50%afsláttur af miðaverði.
Salurinn.is
2019–20
ÁSKRIFTARSALA
HAFIN
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSÖLU
ÆÐI
Í LAXDAL
50-70%
AFSLÁTTUR
GÆÐA FLÍKUR
Á GEGGJUÐU
VERÐI
Opið
laugardag
10-15
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Haraldur Reynir Jónsson, eitt systk-
inanna sem kennd eru við útgerð-
arfélagið Sjólaskip, hefur verið
ákærður fyrir skattalagabrot. Er
honum gert að sök að hafa vantalið
tekjur áranna 2005-2008. Eru meint
undanskot yfir 245 milljónir króna.
Greint var frá því í síðustu viku að
héraðssaksóknari hefði gefið út
ákærur á hendur systkinunum fjór-
um hverju í sínu lagi, auk þess sem
bræðurnir tveir yrðu ákærðir sam-
eiginlega í sérmáli. Ákæran á hendur
Haraldi er sú fyrsta sem birt er.
Í nóvember 2016 greindi Frétta-
tíminn frá því að skattrannsókn-
arstjóri hefði sent viðskipti systkin-
anna í Tortóla til rannsóknar héraðs-
saksóknara. Þar kom fram að afla-
ndsfélög á Tortóla hefðu greitt
kreditkortareikninga fyrir ein-
staklinga í fjölskyldunni. Kortin voru
gefin út í erlendum bönkum og tengd
við bankareikninga sem skráðir voru
á aflandsfélögin eða systkinin sjálf.
Meint undanskot
upp á 245 milljónir
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Margar bílaleigur hafa gripið til þess
ráðs að rukka viðskiptavini, sem aka í
gegnum Vaðlaheiðargöng án þess að
greiða fyrir það, um þjónustugjald.
Greint var frá því í Morgunblaðinu
á fimmtudaginn að nærri tvöfalt fleiri
en spár gerðu ráð fyrir kysu að aka
Víkurskarð í stað Vaðlaheiðarganga á
leið á milli Eyjafjarðar og Fnjóska-
dals. Þar kemur fram að fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga,
Valgeir Bergmann Magnússon, telji
að há álagning bílaleiga á veggjaldið,
sem fyrir er 1.500 krónur á hverja
ferð í gegnum göngin á fólksbíl, hafi
fælandi áhrif á ferðamenn.
Af þeim bílaleigum sem blaðamað-
ur Morgunblaðsins náði tali af lögðu
allar þjónustu- eða umsýslugjald á þá
reikninga sem bárust þeim vegna
Vaðlaheiðarganga. Nokkuð breitt bil
var á því hversu hátt aukagjald bíla-
leigurnar lögðu ofan á veggjaldið en
það var frá 1.300 krónum upp í 4.000
krónur. Enginn starfsmaður starfar í
göngunum og þurfa ferðalangar því
að skrá bíl sinn og greiða fyrir ferðina
annaðhvort í gegnum snjallsímaapp
eða vefsíðu innan þriggja tíma. Marg-
ir virðast þó kjósa að keyra í gegn án
þess að greiða fyrir það og er þá
reikningur sendur á eiganda ökutæk-
isins, sem í þessu tilfelli eru bílaleig-
urnar.
Smári Hreiðarsson, starfsmaður
bílaleigunnar Procar, segir að fyrir-
tækið hafi byrjað að rukka þjónustu-
gjald, 1.300 krónur, fyrir óborgaðar
ferðir viðskiptavina fyrir tæplega
þremur vikum.
„Við gerðum þetta ekki í byrjun en
svo varð þetta bara svo mikil umsýsla
fyrir einn mann að brasa í þessu og
taka á móti þessu að það bara kostar.
Þetta er bara vinna,“ segir Smári
sem segir að bílaleigan kynni ferða-
mönnum sem leigja bíla af henni
fyrirkomulag Vaðlaheiðarganga.
„Okkur finnst að göngin ættu að vera
með starfsmann og gera þetta betur.
Við erum ekki sátt við þetta og vær-
um alveg til í að losna við þetta bras,“
segir hann og bætir við að fyrirtækið
hafi aldrei orðið vart við vandræði af
þessu tagi þegar rukkað var fyrir
ferðir um Hvalfjarðargöng enda hafi
starfsmenn á svæðinu séð um að
rukka fólk fyrir að fara í göngin.
Leggja aukagjald
á ógreiddar ferðir
Segist vilja fá
starfsmann í göngin
Vaðlaheiðargöng Ferðamenn á bílaleigubílum sem keyra í gegnum göngin
án þess að borga geta átt von á því að þurfa að borga þjónustugjald.