Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 40

Morgunblaðið - 27.07.2019, Side 40
KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is „Þetta er draumur og eitt af stærstu markmiðum sem ég ætlaði að ná á mínum ferli sem körfuboltamaður. Að ná því innan við 25 ára aldurinn er magnað og skemmtilegt að vera kominn á þennan stað. Nú þarf ég að sanna að ég geti spilað í þessum gæðaflokki og geti verið þar næstu sjö til átta árin ef allt gengur upp,“ sagði Martin Hermannsson þegar Morgunblaðið tók hann tali á lands- liðsæfingu í vikunni en hann fær á komandi tímabili tækifæri til að spila í Euroleague, sterkustu Evr- ópukeppninni í íþróttinni. Einungis NBA-deildin getur talist sterkari vettvangur í körfuknatt- leiknum. Lið hans Alba Berlín vann sér inn keppnisrétt í Euroleague með góðum árangri á síðasta tíma- bili. Andstæðingarnir verða risarnir í körfuknattleiknum í Evrópu: Barcelona, Real Madrid, CSKA Moskva, Olympiacos, Fenerbache, Galatasaray og Maccabi Tel Aviv svo eitthvað sé nefnt. Áttar Martin sig á því hvar Alba Berlín stendur í þessum sam- anburði? „Erfitt er að segja til um það. Maður hefur horft á leiki og fylgst aðeins með. En við erum að tala um bestu leikmenn í Evrópu og jafnvel í heiminum í einhverjum til- fellum. Mörg lið eru að styrkja sig svakalega og margir NBA-leikmenn eru að koma til Evrópu. Alba á fjár- muni til að eyða en ekki eins og Bay- ern München eða Barcelona sem eru með fótboltalið og nota fótboltapen- inga til að styrkja körfuboltaliðin. Við erum að berjast við það. En mér líst vel á okkar leikmannahóp en við erum með svolítið ungt lið.“ Leikjaálagið nálgast NBA Athygli vekur að leikjaálagið á mönnum í þessari stöðu er orðið gíf- urlegt en í riðlakeppni Euroleague eru spilaðir 34 leikir hér og þar um Evrópu og er þá allt annað eftir. „Ég er orðinn hálfstressaður á þessum tímapunkti að fara inn í þetta tímabil. Euroleague ákvað að bæta við tveimur liðum og er því um átján liða deild að ræða þar sem allir spila við alla, heima og að heiman. Í þýsku deildinni eru einnig átján lið þar sem allir spila við alla, heima og að heiman. Í hvorri deild eru því 34 leikir og því 68 leikir samanlagt fyrir utan það sem bætist við ef lið komast í úrslitakeppni, leiki í þýsku bik- arkeppninni og vináttuleiki á und- irbúningstímabilinu. Þetta er að verða eins og NBA-tímabil en við bú- um ekki við alveg sama lúxusinn en NBA-leikmenn fá kannski nudd um borð í einkaflugvélum. Engu að síður er hugsað vel um okkur og hefur Euroleague til að mynda sett ákveðnar reglur sem félögin þurfa að fara eftir. Við eigum að fljúga á fyrsta farrými eða sitja í sætunum við neyðarútgang. Eigum að vera einir í herbergi á hótelum til að menn nái að hvílast betur? Euro- league hugsar því um leikmennina á þennan hátt en það er ljóst að þetta verður mikil keyrsla. Því munu fylgja álagsmeiðsli hjá leikmönnum og vonandi verðum við heppnir hvað það varðar. Liðin verða að vera með 15-16 sterka leikmenn í hópnum svo hægt sé að skipta þessu á milli manna. Vafalaust verða menn hvíldir meira í þýsku deildinni heldur en í Euroleague.“ Mikið álag síðasta vetur Martin kynntist leikjaálaginu á síðasta keppnistímabili vegna vel- gengni Alba Berlín en liðið fór alla leið í úrslit í þýsku deildinni, þýsku bikarkeppninni og í Evrópubik- arnum. Hafnaði liðið í 2. sæti í öllum keppnunum. „Þetta var rosalega erfitt og við náðum aldrei að vera með fullskipað lið í meira en 2-3 vikur því alltaf var einhver meiddur. Í bikarúrslita- leiknum vantaði tvo og í Evrópubik- arnum gátum við ekki notað mann sem við höfðum fengið á miðju tíma- bili. Þótt liðinu hafi gengið vel þá vantaði aðeins upp á í úrslita- leikjunum til að vinna. Auðvitað var svekkjandi að ná ekki að vinna bikar úr því við náðum svo langt. En fyrir mig var þetta engu að síður mögnuð upplifun og forréttindi að fá að taka þátt í slíkum leikjum.“ Meinað að spila landsleiki? Fram undan hjá íslenska landslið- inu eru leikir gegn Portúgal og Sviss, heima og að heiman, í for- keppni EM 2021. Martin mun taka þátt í þeim leikjum og fara síðan ut- an til undirbúnings fyrir veturinn með Alba Berlín. Fari svo að Ísland komist áfram tekur við undankeppni sem hefst í vetur gegn sterkum þjóð- um: Serbíu, Finnlandi og Georgíu. Euroleague er í raun sér fyrirtæki sem heyrir ekki beint undir Körfu- knattleikssamband Evrópu. Þar af leiðandi tekur Euroleague ekki tillit til landsleikjadaganna. Telur Martin að Alba Berlín muni hleypa honum í landsleiki í vetur, fari svo að Ísland komist áfram? „Ég er ekki bjartsýnn á það. Ein- faldlega vegna þess að enginn leik- maður í Euroleague-liðum fékk frí til að fara í landsleiki í Evrópu síðasta vetur. En það hefur svo sem ekkert verið rætt enda ekki tímabært. Þeg- ar leikjaálagið er jafn mikið og það verður í vetur þá finnst mér ólíklegt að félagið vilji að leikmenn bæti á sig leikjum með því að spila landsleiki.“ Það hlýtur að vera leiðinlegt fyrir íþróttamann að vera í þeirri stöðu að geta ekki keppt fyrir þjóð sína þegar óskað er eftir því. „Persónulega myndi ég auðvitað vilja spila fyrir Ísland. Ég myndi vaða eld fyrir landsliðið. Það er stundum erfitt að geta ekki ráðið því sjálfur hvað maður gerir. Að það skuli alltaf vera einhverjir menn yfir þér sem stjórna því sem þú gerir,“ sagði Martin Hermannsson enn- fremur við Morgunblaðið. Eitt stærsta markmiðið  Martin Hermannsson leikur gegn bestu liðum Evrópu á komandi vetri  Gæti misst af landsleikjum komist Ísland í undankeppni EM Morgunblaðið/Hari Spjall Martin Hermannsson fer yfir sviðið með landsliðs- þjálfaranum Craig Pedersen. 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2019  Guðbjörg Gunnarsdóttir, aðal- markvörður kvennalandsliðsins í knattspyrnu og sænska úrvalsdeild- arfélagsins Djurgården tilkynnti í gær að hún væri ófrísk og þar með komin í frí frá fótboltanum talsvert fram á næsta ár. Hún á von á tvíburum í jan- úar. Guðbjörg er 34 ára gömul og næstleikjahæsti landsliðsmarkvörður Íslands frá upphafi með 64 landsleiki en hún hefur leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi frá árinu 2009.  Saga Margrét Sigurðardóttir Blöndal, varnar- maður hjá Skauta- félagi Akureyrar, er gengin til liðs við Troja Dam, sem leikur í sænsku 1. deild- inni í íshokkí. Saga er aðeins 15 ára og heldur upp á 16 ára afmælisdaginn sinn í september. Þjálf- arinn Johan Lindh segir á heimasíðu félagsins að hann hafi tekið eftir Sögu á HM fullorðinna fyrr á árinu og bætir við að hún væri að blanda sér í baráttu um sæti í 18 ára landsliði Svía, væri hún sænsk. Saga er dóttir Guðrúnar Kristínar Blöndal og Sigurðar Sig- urðssonar, sem eru bæði margfaldir Íslandsmeistarar með liðum SA.  Ragnhildur Kristinsdóttir er í 56. sæti á Evrópumóti áhugamanna í golfi eftir þrjá hringi á Parkstone-vellinum á suðurströnd Englands. Ragnhildur lék fyrsta hringinn á 75 höggum, þremur höggum yfir pari, annan hringinn á 70 höggum og svo þriðja hringinn á 75 höggum. Hún er því fjórum höggum yfir pari eftir hringina þrjá. Hannah Darling frá Skotlandi er í efsta sæti á átta höggum undir pari og þær Chloé Sarlort frá Frakklandi, Kirsten Rudge- ley frá Englandi og Gilé Starkuté frá Litháen koma þar á eftir á fimm högg- um undir pari.  Knattspyrnukonan Bergrós Ás- geirsdóttir hefur framlengt samning sinn við Selfyssinga og leikur áfram með liðinu út tímabilið 2020. Bergrós er 22 ára gömul, leikur sem varn- armaður og hefur verið í stóru hlut- verki undanfarin ár. Bergrós stundar nám við Arkansas-háskóla í Little Rock í Bandaríkjunum og spilar með liði skólans í háskólaboltanum á vet- urna.  Bandaríkjamaðurinn Caeleb Dres- sel setti nýtt heimsmet í 100 metra flugsundi á heimsmeistaramótinu í 50 m laug í Suður-Kóreu í gær. Sló hann 10 ára gamalt heimsmet Michael Phelps um 32 hundraðshluta er hann synti á 49,50 sekúndum í undan- úrslitum. Hin 17 ára gamla Regan Smith setti einnig heimsmet í gær er hún synti 200 metra baksund á tveim- ur mínútum og 3,35 sekúndum. Bætti hún sjö ára gamalt met sem Missy Franklin setti á Ólympíu- leikunum í London. Eitt ogannað Leikirnir í fyrstu tveimur umferð- unum í efstu deildum kvenna og karla voru ójafnir þegar Íslands- mót golfklúbba fór af stað í gær. Í efstu deildunum spila kynin á sömu völlunum og er það nýbreytni í mótshaldinu. Er leikið á Leirdals- velli hjá GKG og Urriðavelli hjá Oddi en vellirnir eru staðsettir skammt frá hvor öðrum. Í A-riðli í efstu deild kvenna hafa Golfklúbbur Reykjavíkur og Golf- klúbbur Mosfellsbæjar unnið báða sína leiki gegn Golfklúbbi Suð- urnesja og Golfklúbbi Vest- mannaeyja. Öruggir sigrar í öllum tilfellum en GR og GM mætast nú í morgunsárið. Í B-riðlinum eru Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar og Keilir einnig með tvo vinninga eftir fyrsta keppnisdag eftir sigra gegn Oddi og Golfklúbbi Sauðárkróks. Örugg- ir sigrar í öllum tilfellum. GKG og Keilir mætast í dag upp úr kl 10. Í A-riðli karla hafa GKG og Keilir unnið báða sína leiki gegn Golf- klúbbi Akureyrar og GS. Öruggir sigrar í öllum tilfellum. GKG og Keilir mætast nú í morgunsárið. Í B-riðlinum hafa GR og GM unn- ið báða sína leiki gegn Leyni og Jökli. Golfíþróttin virðist vera sterk á vesturlandinu en Leynir er frá Akranesi og Jökull frá Ólafsvík. Tvö lið frá þessum landshluta í efstu deild og saman í riðli. Þau mætast um kl 9:30 og GM og GR takast á upp úr klukkan 10. Leik- irnir voru ekki jafnir frekar en aðr- ir leikir í fyrstu tveimur umferð- unum en minnsti munurinn var sigur GM á Leyni 3,5 vinningar gegn 1,5. Efstu tvö liðin í hverjum riðli komast í undanúrslit sem fram fara síðdegis í dag. Leikið verður til úr- slita á sunnudaginn. sport@mbl.is Ójafnir leikir en til tíðinda dregur í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveitakeppnin Frá keppni í efstu deild kvenna í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.