Morgunblaðið - 27.07.2019, Page 48
Eyjólfur með gítarinn
á Græna hattinum
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, sér fram á
vægast sagt krefjandi keppn-
istímabil sem leikmaður Alba Berlín
næsta vetur. Fyrir liggur að liðið
mun spila 68 leiki einungis í þýsku
deildinni og í Evrópukeppni. Margir
leikir geta bæst ofan á það. Komist
Ísland í undankeppni EM er óvíst að
Martin fái leyfi til að spila. »40
Gífurlegt leikjaálag hjá
Martin næsta vetur
Gítarleikarinn Andrés Þór Gunn-
laugsson og píanóleikarinn Agnar
Már Magnússon koma fram á tón-
leikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ á
morgun kl. 16. Þeir hafa starfað
saman um langa hríð við ýmis verk-
efni, allt frá því að spila saman í
skólahljómsveit Víðistaðaskóla á
unglingsárunum til þess að leika
saman í kollektífa djasstríóinu ASA
tríó. Þeir leika dúettaútgáfur af eig-
in lögum af nýlegum
diskum, Svifi
Agnars og Ypsi-
loni Andrésar,
auk þess að
blanda inn í efn-
isskrána ýmsum
húsgöngum
djassbók-
menntanna.
Andrés Þór og Agnar
Már leika í Saurbæ
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sumarið er mikilvægur tími fyrir
skíðagöngukappa, þrátt fyrir að lítið
sé um snjó á víðavangi. Sævar Birg-
isson, fyrrverandi landsliðsmaður í
skíðagöngu, heldur utan um sumar-
skíðaskóla í Reykjalundi þar sem 20
krakkar, strákar og stelpur, spreyta
sig á hjólaskíðum og æfa styrk, þol og
úthald.
„Þetta er árssport og byrjar í raun-
inni á vorin. Sumarið er mjög mik-
ilvægur tími fyrir fólk í sérhæfingu.
Þá gerist í raun það mesta í und-
irbúningnum fyrir veturinn,“ sagði
Sævar.
Æfingarnar eru miðaðar út frá
gönguskíðum og eru tvær til þrjár á
dag auk fræðslu þess á milli. Flestir
nemendur eru á aldrinum 11 til 16 ára
og námskeiðið fer fram í Reykjalundi
í Mosfellsbæ.
„Aðstaðan getur varla verið betri,
við erum með flottan skóg og vorum
einmitt að taka áfangaþjálfun þar í
morgun. Náttúran er mikil hér í
kring, fellin fyrir ofan og góðir stígar
sem liggja héðan,“ sagði hann.
Hlaupið á hjólaskíðum
Hlaupaæfingar með hjólaskíðum
eru inni í dagskrá námskeiðsins en þá
hlaupa iðkendur á svokölluðum hjóla-
skíðum, styttri skíðum með hjólum til
að líkja eftir skíðahreyfingum á vet-
urna.
„Þetta er allt í bland, skíðagöngu-
maðurinn þarf að æfa fjölbreytt á
sumrin, það eru hlaup í bland við
hjólaskíði,“ sagði hann.
Fyrst hélt Sævar námskeiðið árið
2015 en í ár heldur hann það í annað
sinn. Hann segir það nokkuð magnað
að kynjahlutföll á námskeiðinu séu
nákvæmlega jöfn.
Gamall skíðagöngukappi
Sævar er sjálfur vel kunnur skíða-
heiminum en hann keppti á Vetraról-
ympíuleikum í greininni árið 2014
auk tveggja heimsmeistaramóta.
Hann lagði skíðin á hilluna fyrir rúmu
ári eftir 13 ára landsliðsferil.
„Þetta gengur svolítið út á það að
drífa krakkana í þetta með sér og
hafa jákvæð áhrif, láta gott af sér
leiða. Maður var náttúrulega á fullu í
þessu sjálfur,“ sagði Sævar.
Morgunblaðið/Hari
Sumarskíði Fjöldi krakka hefur sótt sumarnámskeið í gönguskíðum, sem Sævar Birgisson heldur í Mosfellsbæ.
Skíðagöngutímabilið
undirbúið á sumrin
Sækja sumarnámskeið í gönguskíðum í Mosfellsbæ
Kjólar • Bolir • Túnikur
Peysur • Vesti • Jakkar
30-50%
afsláttur
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALA
30%
afsláttur
af töskum
Eyjólfur Kristjánsson sest með
kassagítarinn í hendi og flytur sín
þekktustu lög ásamt ýmsu fleira
góðgæti á tónleikum á Græna hatt-
inum á Akureyri í kvöld kl. 22. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skipuleggj-
endum munu bransasögur og
gamansögur einnig fljóta með.