Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Síða 4
HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2019 Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Lyklalaust, ekki hættulaust Bílar með lyklalausri ræsingu hafa orðiðmjög algengir á síðustu árum. Í slíkumbílum er vélin er ræst með því að ýta á ræsitakka í stað þess að snúa lykli, en sam- kvæmt bílaupplýsingaveitunni Edmunds voru rúmlega 60% af bílum seldum í Bandaríkj- unum árið 2018 útbúin lyklalausri ræsingu. Mikil fjölgun hefur verið á slíkum bílum á síð- astliðnum áratug, en árið 2008 voru þeir aðeins 11%. Þótt lyklalaus ræsing sé hentugri heldur en að þreifa eftir bíllyklum í hvert skipti sem ekið er af stað, fylgir því ákveðinn fórnarkostnaður. New York Times greinir frá að þrjátíu og níu manns hafi látist af kolmónoxíðeitrun í Bandaríkjunum síðan árið 2006, þar af sex á síðustu sjö mánuðum, sökum þess að bílar sem styðjast við lyklalausa ræsingu hafi óvart verið skildir eftir í gangi inni í bílskúrum. Auk þeirra sem hafa látist úr eitruninni, hafa tugir manns hlotið heilaskaða af völdum kolmónoxíðs. Kolmónoxíð er lofttegund sem myndast við bruna í súrefnissnauðu lofti. Lofttegundin er bragðlaus, lyktarlaus og litlaus en hún getur bundust við blóðfrumur líkamans og hindrað blóðflæði til líffæra. Kolmónoxíð getur mynd- ast í grillum, gashiturum, eldavélum og við út- blástur bíla. Gleyma að drepa á vélinni Lyklalaus ræsing var fyrst innleidd af Mercedes Benz árið 1998 sem aukahlutur í lúx- usbíla. Búnaðurinn, sem var upphaflega kall- aður snjall-lykill, er þráðlaus búnaður sem sendir tölvu bílsins kóða til að ökumaður geti ræst bílinn án þess að taka upp bíllykilinn. Við lyklalausa ræsingu á bíl þarf lykillinn yf- irleitt að vera inni í bílnum til að hægt sé að ræsa hann, en það er yfirleitt gert með því að ýta á ræsihnapp á mælaborði bílsins. Einnig þarf að ýta á ræsihnapp til að drepa á bílnum. Skömmu eftir að búnaðurinn komst inn á bandarískan markað árið 2002 byrjuðu áhyggjuraddir að benda á möguleg vandamál sem gætu fylgt lyklalausri ræsingu, þá helst bílþjófnaði. Eftir því sem vinsældir bíla með lyklalausri ræsingu jukust færðist athyglin að hluta til yfir að atvikum þar sem ökumenn lét- ust eða hlutu skaða vegna kolmónoxíðeitrunar. Í lok júní greindi New York Times frá átt- ræðum hjónum sem létust bæði af völdum kolmónoxíðeitrunar eftir að þau gleymdu að drepa á bílnum sem lagt hafði verið inni í bíl- skúr. Eins og áður var nefnt voru hjónin meðal að minnsta kosti þrjátíu og níu manns sem látist hafa af þessum völdum síðan 2006. Lagafrumvörp ekki tekin fyrir Árið 2011 lagði Umferðaröryggisstofnun Bandaríkjanna fram tillögu að reglubreytingu sem hefði gert bílaframleiðendum að búa bíla sína með áminningu sem myndi vara ökumenn við ef gleymist að drepa á bílnum. Tillagan var þó aldrei tekin fyrir á þingi. Á síðasta ári kallaði öldungadeildarþing- maðurinn Richard Blumenthal frá Connecticut eftir að lög yrðu sett sem tilskipuðu framleið- endum að framleiða bíla sem dræpu á vélinni eftir ákveðinn tíma í lausagöngu. Frumvarp Blumenthals hefur ekki verið sett á dagskrá þingnefndar. Engu að síður hafa margir bílaframleið- endur tekið af skarið og innleitt strangari ör- yggisstaðla í framleiðslu lyklalausra bíla. Flestir lyklalausir bílar eru útbúnir áminn- ingum sem vara ökumenn við ef gleymist að drepa á bíl, en eins og þau tilfelli þar sem manneskjur hafa látist af völdum kolmónoxíð- eitrunar gefa til kynna eru viðvaranir ekki allt- af nóg. Síðan 2015 hafa allir lyklalausir bílar frá bílaframleiðandanum Ford drepið á vélinni eftir ákveðin tíma í lausagangi. Sú ákvörðun var tekin út frá bæði öryggis og umhverfis- sjónarmiðum. General Motors hefur boðið við- skiptavinum sínum upp á að koma fyrir slíkum búnaði í eldri bílum frá framleiðandanum og Toyota hefur tilkynnt að allir bílar muni drepa sjálfkrafa á vélinni eftir ákveðinn tíma í lausa- gangi frá og með árinu 2020. Colorbox Meira en helmingur seldra bíla árið 2018 í Bandaríkjunum var með lyklalausri ræsingu. Þótt slík ræsing sé óneitanlega hentug, getur henni fylgt alvarlegur fórnarkostnaður ef ekki er farið varlega. Pétur Magnússon petur@mbl.is Lyklalaus ræsing er orðin staðall hjá mörgum bílaframleiðendum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.