Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Page 6
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.7. 2019
Marta Vieira da Silva fæddist
19. febrúar 1986 í Dois Riachos,
ellefu þúsund manna þorpi í
Brasilíu og er 33 ára gömul.
Hún var aðeins 14 ára þegar
hún var uppgötvuð og hóf at-
vinnumennsku í knattspyrnu ár-
ið 2000 með liðinu Vasco da
Gama. 2004 færði hún sig um
set til Umeå í Svíþjóð og á sínu
fyrsta keppnistímabili komst
hún í úrslit UEFA-bikarsins og
skoraði þrjú mörk í úrslitaleikj-
unum. Ferill hennar er glæstur
og sex sinnum hefur hún verið
valin leikmaður ársins af Al-
þjóðaknattspyrnu-
sambandinu, FIFA, þar af
fimm ár í röð frá 2006 til
2010. Hún hefur verið
kölluð Pele í pilsi og mun
viðurnefnið vera komið
frá Pele sjálfum.
Marta hefur
fimm sinnum
keppt á lokamóti
heimsmeistara-
keppninnar í
fótbolta, fyrst
árið 2007
þegar Brasilía
tapaði í úrslitaleiknum gegn
Þýskalandi. Það er það næsta
sem hún hefur komist því að
verða heimsmeistari. Hún hef-
ur einnig í tvígang unnið til silf-
urverðlauna á Ólympíuleikum.
Marta skoraði sigurmark
Brasilíu úr víti gegn Ítalíu fyrir
hálfum mánuði. Það var 17.
mark hennar í úrslitakeppni
heimsmeistaramóts og hefur
enginn skorað fleiri. Miroslav
Klose kemur næstur með 16
mörk fyrir Þýskaland.
„Haldið þið að hann hætti við
að setjast í helgan stein og
spili í næstu heimsmeist-
arakeppni?“ spurði
Marta með bros á vör
eftir að hafa sett met-
ið.
Marta varð sænskur
ríkisborgari árið
2017, en er
með tvöfalt
ríkisfang og
heldur
brasilíska
ríkis-
borgara-
réttinum.
BESTI LEIKMAÐUR HEIMS SEX SINNUM
Glæstur ferill Mörtu
Marta með bros
á vör í leik á HM.
Marta er sennilega þekktastaknattspyrnukona heims ogaf mörgum talin besti
kvenleikmaður allra tíma. Þegar
brasilíska landsliðið féll úr keppni á
yfirstandandi heimsmeistaramóti í
Frakklandi vakti hún óskipta athygli
með afgerandi hvatningu sinni til
brasilískra stúlkna í leikslok.
„Við erum að biðja um stuðning,“
sagði Marta, brýndi raustina og
starði í myndavélina, enn í vígamóð
eftir að hafa fallið út gegn Frökkum í
sextán liða úrslitum. „Þið þurfið að
gráta í upphafi og brosa að leiks-
lokum. Þið þurfið að vilja meira,
þjálfa meira, vera tilbúnar að spila í
níutíu mínútur, plús þrjátíu mínútur í
framlengingu og hverja einustu mín-
útu. Þetta er það sem ég fer fram á
við stelpurnar.“
Síðan hrósaði hún félögum sínum
Formigu og Cristiane, sem einnig er
líklegt að hafi spilað síðasta sinn á
heimsmeistaramóti og bætti við:
„Formiga verður ekki að eilífu, Marta
ekki heldur, Cristiane ekki heldur.
Fótbolti kvenna treystir á ykkur til
að lifa. Veltið því fyrir ykkur, njótið
þess.“
Markahæst allra á HM
Marta hefur leikið á fimm heims-
meistaramótum og skorað í þeim öll-
um. Enginn annar leikmaður, hvorki
karl né kona, hefur leikið það eftir. Á
HM í Frakklandi skoraði hún 17.
mark sitt í úrslitakeppni heimsmeist-
aramóts og hefur enginn skorað fleiri,
hvorki kona né karl. „Ég á ekki þetta
met, við eigum það öll,“ sagði hún um
afrek sitt. „Ég deili því með öllum,
sem berjast fyrir meira jafnrétti.“
Það er engin furða að jafnrétti sé
Mörtu ofarlega í huga og brýning
hennar til brasilískra stúlkna kemur
heldur ekki á óvart. Hún veit að það
er ekkert sjálfsagt við þann árangur,
sem hún hefur náð í fótbolta.
Taktu rútuna
Fyrir tveimur árum skrifaði hún bréf
til sjálfrar sín þegar hún var 14 ára.
Inntakið í bréfinu er að það sé þess
virði að setja undir sig höfuðið og
halda sínu striki þótt á móti blási.
Bréfið er ekki síður ætlað stúlkum í
Brasilíu sem hún ávarpaði svo ákaft
eftir leikinn gegn Frökkum og stúlk-
um um allan heim.
Í upphafi bréfsins, sem birtist á
vefsíðunni The Players’ Tribune
ávarpar hún sjálfa sig þar sem hún
bíður eftir rútu frá fæðingarþorpi
sínu til stórborgarinnar.
„Ég veit hvað þú ert að hugsa. Ég
veit hver tilfinningin er. Ekki hugsa
um það … Hvað þú ert hrædd … Hvað
þú ert taugaóstyrk … Hvernig allir
hafa sagt að þú getir þetta ekki … að
þú ættir ekki að gera þetta …
Ekki hugsa um neitt af þessu.
Taktu bara rútuna,“ skrifar hún og
bætir við: „Þessi rúta … mun fara
með þig til draums þíns, draumsins
um að verða atvinnumaður í fótbolta.
Og hún mun fara með þig miklu
lengra. Hún mun fara með þig á vit
evrópskra meistaratitla, á heims-
meistaramót, Ólympíuleika, viður-
kenninga fyrir að vera besti leik-
maður heims (sem er ekki einu sinni
til enn sem komið er).“
Marta heldur áfram að lýsa því
sem á daga hennar átti eftir að drífa.
Viðtakandi bréfsins eigi eftir að spila
á leikvöngum fyrir framan tugþús-
undir áhorfenda og gerðir verði skór
og treyjur sérstaklega fyrir hana og
hún mun eiga þátt í að opna aðgengi
fyrir stúlkur með hætti, sem ekki
stóð til boða fyrir hana. Þetta verði
erfitt, en hún geti gert þetta.
Mögnuðust er lýsing Mörtu í bréf-
inu á uppvexti sínum í Dois Riachos,
11 þúsund manna þorpi í Alagoas í
Brasilíu. Hún lýsir því hvernig hún
skar sig úr, ekki vegna hæfileikanna
heldur vegna þess að hún var stelpa.
Stelpa sem elskaði fótbolta.
„Engar aðrar stelpur í bænum
spiluðu fótbolta … og fólk gætti þess
að láta mömmu þína vita af því.
„Hún er ekki venjuleg.“
„Það er skrítið að stelpa skuli
spila.“
„Hvers vegna leyfir þú henni að
gera þetta?““
Mamma hennar hafi hins vegar
gefið lítið fyrir athugasemdirnar.
Svar hennar var einfalt: „Látið hana
vera.“
Marta horfði á fótbolta þegar hún
var að vaxa úr grasi og dreymdi um
að verða atvinnumaður. Hún spilaði
við strákana í bænum, en þeir leyfðu
henni ekki alltaf að vera með og þeg-
ar þeir gerðu það létu þeir hana vera
með strákunum, sem ekki voru sér-
staklega góðir. En það skipti ekki
máli, hún spilaði með hverjum sem
var og liðið hennar vann samt.
„Og þú sýndir þeim: Þú ert stelpa
og getur spilað fótbolta,“ skrifar hún.
En glósunum linnti ekki, sama hvað
mörkin urðu mörg. Í eitt skipti hótaði
þjálfari að draga lið sitt úr keppni á
móti ef hún fengi að leika með sínu
liði með orðunum: „Þetta er ekki
staður fyrir stelpur.“
Burt með stelpuna
„Ég vildi geta sagt að stjórnendur
liðsins hefðu staðið með þér,“ skrifar
Marta. „En við vitum að þannig gekk
það ekki fyrir sig. Þannig voru hlut-
irnir ekki. Þannig að þú varst dregin
úr keppni. Auðvitað. Þeir munu segja
þér að það sé bara auðveldara þannig.
Burt með stelpuna. Svo að strákarnir
geti spilað.“
Viðtakandi bréfsins lét sér ekki
segjast, tók rútuna og við tók óviðjafn-
anlegur ferill. 2006 sneri hún aftur til
fæðingarbæjarins og var þá nýkjörinn
leikmaður ársins af FIFA í fyrsta
skipti. „Fjöldi fólks fagnar heimkomu
þinni,“ skrifar hún sjálfri sér og bætir
við: „Allir vilja sjá hetju bæjarins sem
snúin er aftur. Þér verður meira að
segja ekið um í slökkviliðsbíl. Þér er
ekki hafnað lengur. Sama fólkið og
sagði að þú værir skrítin, að þú gætir
ekki spilað – að þú ættir ekki að spila –
fagnar þegar þú ferð hjá.“
Þið þurfið að
vilja meira
Marta er einn magnaðasti leikmaður knatt-
spyrnusögunnar. Þegar Brasilía féll út á HM í
Frakklandi kvaddi hún með tilfinningaríkri
brýningu til ungra stúlkna í Brasilíu.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Marta (2. frá vinstri) fagnar ásamt félögum sínum eftir að hafa skorað úr víti gegn Ítalíu á HM í Frakklandi. Þetta var
hennar 17. mark í lokakeppni HM. Enginn hefur skorað jafn mörg mörk í lokakeppninni, hvorki kona né karl.
AFP
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Elskaðu. Lifðu. Njóttu.
FEMARELLE REJUVENATE
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur eðlilegu hári
Égmæli hiklaust með Femarelle.
Þegar ég var 45 ára fór ég að finna fyrir hitaköstum bæði á daginn og einnig á nóttunni, sem
var mjög skrítið því mér var venjulega alltaf svo kalt. Þegar þetta ágerðist fór ég að spá í því
hvað væri í gangi. Ég las um Femarelle sem konur á mínum aldri væru að taka með góðum
árangri og ákvað að prófa. Ég fann strax mikinn mun á c.a. þremur vikum þannig að hef
haldið áfram að taka Femarelle og það stendur ekki til að hætta að taka það.
Get því hiklaust mælt með því.
Þórunn Elfa Magnúsdóttir.