Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Blaðsíða 13
sem kallast í dag „glamping“. En svo kom hrun- ið og við héldum að við værum farin á hausinn. Við vöknuðum einn daginn og skulduðum helm- ingi meira en við höfðum tekið í lán. Við vorum búin að segja upp í vinnunni og ætluðum að hella okkur út í það að byggja hótel, en þá hrundi allt,“ segir hún. „Við þurftum bara að gera það besta úr stöð- inni eða verða gjaldþrota og þess vegna fórum við líka til Afríku að vinna og seldum húsið okk- ar. Svo þegar við vorum búin að vinna út í Kenía var dáldið tómarúm og ákváðum við að byggja tíu herbergi við húsið í Hrífunesi þar sem við höfðum rekið smá gistingu í frá árinu 2007,“ segir Borgar. Á þessum tólf árum hafa þau hjónaleysi byggt þarna upp vinsælt gistiheimili sem fékk nafnið Glacierview Guesthouse og er fullt út úr dyrum öll sumur og undanfarið hafa þau einnig haft opið á veturna. Sumrin hjá þeim hafa ein- kennst af þrotlausri vinnu í Hrífunesi en vinnan byrjar sex á morgnana og endar seint á kvöldin. Ár hvert í nóvember loka þau „búllunni“ og fljúga til Kenía í kærkomið frí og dvelja þá oft í mánuð í senn. En mánuður á ári dugar þeim ekki því hjartað slær í Afríku. Enn einn kaflinn er að hefjast í ævintýraríka lífinu þeirra Elínar og Borgars. Þau hafa fest kaup á landi í Kenía og hyggjast reisa þar hús á næstu árum. „Landið er inni í þjóðgarði og er stutt frá vin- sælustu strönd í Kenía, Diani Beach. Þarna langar okkur jafnvel að byggja hús og nýta okk- ur alla þessa reynslu; að hafa verið með túrista í Afríku og hafa rekið gistiheimili í öll þessi ár. Þarna gætum við sameinað þetta eitthvað að- eins en þó ekki á stórum skala. Þarna væri gott að koma til að afrafmagna sig og aðra,“ segir Borgar. „Það væri ekkert leiðinlegt að búa þarna frá janúar og fram í maí. Við erum búin að koma gistiheimilinu hér heima vel á koppinn og það er í deiglunni að losa okkur út úr því og fara að snúa okkur að öðru. Jafnvel í Keníu.“Morgunblaðið/Ásdís 7.7. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Prófaðu nýju Opn S heyrnartækin í 7 daga - Tímabókanir í síma 568 6880 Stærsta áskorun einstaklinga með skerta heyrn er að fylgjast með samtali í fjölmenni og klið. Nýju Opn S heyrnartækin frá Oticon skanna allt hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu og framkvæma 56.000 hljóðmælingar á sama tíma! Einstaklega hröð og nákvæm hljóðúrvinnsla í Opn S heyrnartækjunum skilar þér margfalt betri talskilningi í krefjandi aðstæðum en fyrri kynslóð heyrnartækja. Hægt er að fá Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum! Ertu einangraður í margmenni og klið?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.