Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2019, Page 29
AFP 7.7. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. BOND Leikarinn Rami Malek þurfti að hugsa sig tvisvar um áður en hann samþykkti að leika illmenni í næstu Bond-mynd. Leikarinn, sem sló í gegn sem Freddy Mercury í Bohemian Rhapsody, tjáði framleiðendum myndarinnar að hann myndi ekki þiggja hlut- verkið ef hann þyrfti að leika miðausturlenskan ofstækis- mann eða íslamskan hryðju- verkamann. Framleiðendur staðfestu að hvati illmennisins yrði ekki trúarlegur. (B)ondikall Maleks Rami Malek mun leika á móti Daniel Craig í næstu Bond-mynd. AFP BÓKSALA Í JÚNÍ Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Óvænt endalok – bernskubrek Ævar Þór Benediktsson 2 Engin málamiðlun Lee Child 3 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan 4 WOW – ris og fall flugfélags Stefán E. Stefánsson 5 Gullbúrið Camilla Läckberg 6 Keto Gunnar Már Sigfússon 7 Móðir Alejandro Palomas 8 Sara Árelía Eydís Guðmundsdóttir 9 Síðasta stúlkan Nadia Murad 10 Gamlinginn sem hugsaði með sér að hann væri farinn að hugsa of mikið Jonas Jonasson 11 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir 12 1793 Niklas Natt och Dag 13 Barist í Barcelona Gunnar Helgason 14 Þín eigin saga – draugagangur Ævar Þór Benediktsson 15 Gæfuspor – gildin í lífinu Gunnar Hersveinn 16 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson 17 Silfurvegurinn Stina Jackson 18 Blómamánamorðin David Grann 19 Mótíf X Stefan Ahnhem 20 Meðleigjandinn Berth O’Leary Allar bækur Snuðra og Tuðra í sólarlöndum er ný barnabók eftir Iðunni Steinsdóttur og Lóu Hlín Hjálmtýs- dóttur. Systurnar uppátækjasömu Snuðra og Tuðra fara í fyrsta skipti til sólarlanda, þar sem þær lenda í ýmsum ævintýrum og læra dýr- mæta lexíu um hvernig á að haga sér í útlönd- um. Salka gefur út. Einmunatíð og fleiri sögur er smásögusafn eftir skoska skáldið George Mackay Brown. Í sögum sínum lýsir Mackay Brown lífi og örlögum íbúa eyja norðan Skotlands. Safnið kom fyrst út á frummálinu fyrir fimmtíu árum en með því festi hann sig í sessi sem eitt fremsta skáld Skota. Dimma gefur út. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR Ég les alltaf nokkrar ólíkar bæk- ur í einu og næstum því allar á ensku. Sem stendur eru fjórar bækur í gangi hjá mér, en þær eru The Untethered Soul eftir Michael Singer, Living Dangero- usly eftir Osho, Lífshamingja í hrjáðum heimi eftir Dalai Lama og Howard Cutl- er, og skáldsagan Home, létt og spennandi, eftir Harlan Coben. Ég kynntist verkum M. Singers síðastliðinn vetur og er verulega hrifin af honum. The Untethered Soul er skrifuð á einföldu og að- gengilegu máli en fer samt mjög djúpt í andlegar pælingar. Ég er nýbúin að lesa The Surrender Experiment eftir hann. Ég var að klára handbók- ina The 5- second Rule eft- ir Mel Robbins sem er vel þess virði að lesa. Skáldsagan Still Me, eftir Jojo Moyes, olli mér vonbrigðum en He Said She Said eftir Erin Kelly fannst mér hins vegar frum- leg og spennandi. Það er ein bók sem hefur verið lengi á borðinu mínu og sem ég er að lesa hægt og fletta í næstum því daglega. Hún er eftir Jon Kabat-Zinn og heitir Wherever You Go There You Are. Á næstunni ætla ég að lesa meðal annars The Way of Effortless Mindfulness eftir Loch Kelly og skáldsöguna All The Ugly and Wonderful Things eftir Bryn Greenwood. PAOLA ER AÐ LESA Nokkrar ólíkar í einu Paola Daziani er framhalds- skólakennari og kennir ensku við Fjöl- brautaskóla Suðurlands. Dave: Psychodrama 2019 hefur verið gott fyrir breska rappmenningu. Psychodrama er fyrsta plata hins tvítuga enska rappara Dave, en platan er ekki hefðbundið byrjendaverk. Þessi metnaðarfulla konseptplata er listræn frásögn af sálfræðitíma þar sem Dave glímir við fangelsun bróður síns, andleg veikindi, stirð sambönd og þær félagslegu að- stæður sem hann ólst upp í. Psychodrama er persónuleg, íhugul, tilfinningarík og djörf. Jamila Woods: LEGACY! LEGACY! Chicago-borg hefur getið af sér fjölmargt frábært tónlistarfólk og með þessari plötu sýnir Jamila Woods að hún er engu síðri en þeir allra bestu frá þeirri vindasömu borg. Legacy! Legacy! er sjálfsörugg samfélagsádeila sem varpar ljósi á menningarlandslag Bandaríkjanna á eflandi og jafn- vel glaðlegan hátt. Woods teflir hér fram því allra besta sem við má búast úr R&B tónlist. Solange: When I Get Home Solange Knowels hóf feril sinn sem dansari fyrir hljómsveitina Destiny’s Child, þar sem systir hennar, Beyonce, var á meðal meðlima sveitarinnar.. Á síðustu árum hefur Solange þroskast og vaxið mikið sem tón- listarkona, sem hún sýnir með því að nýta sér element úr djassi, rappi, sálartónlist, raftónlist, R&B og nýbylgju til að færa hlust- endum óð til uppeldisborgar sinnar, Houston.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.