Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1999, Page 13
Utanríkisverslun 1998 - vöruflokkar og viðskiptalönd
11
Verðreikningur
Verðmæti innfluttrar vöru er ýmist sýnt á cif-verði eða fob-
verði en verðmæti útflutnings eingöngu á fob-verði. Með
fob-verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið um
borð í flutningsfar í útflutningslandi. I cif-verði (cost, insur-
ance, freight) er einnig talinn sá kostnaður sem fellur á
vöruna þar til henni er skipað upp í innflutningslandi. Aðal-
lega er um að ræða flutningsgjald og vátryggingarkostnað.
í hagskýrslum um utanríkisverslun er venjan sú að inn-
flutningur er talinn á cif-verði en útflutningur á fob-verði.
Eðli málsins samkvæmt á þó þessi regla ekki við um ferskan
fisk sem seldur er í erlendum höfnum. Við verðákvörðun
þessarar vöru er farið eftir reglum Fiskifélags Islands um
útreikning útflutningsverðmætis ísfisks og bræðslufisks þar
sem frá brúttósöluverði eru dregnir tilteknir kostnaðarliðir,
mismunandi eftir löndum. Hér er um að ræða löndunar-
kostnað og hafnargjöld, toll og sölukostnað.
Tölur um verðmæti innflutnings eru fengnar með því að
umreikna verðmæti vörunnar í erlendum gjaldeyri til ís-
lenskra króna miðað við sölugengi viðkomandi gjaldmiðils.
Útflutningstölur eru miðaðar við kaupgengi. Viðmiðunar-
gengið er svokallað tollgengi sem er hið opinbera gengi skráð
af Seðlabanka íslands 28. hvers mánaðar, sé það virkur dagur,
ella næsta rúmhelgan dag.
Magn
Með magni útflutnings og innflutnings er átt við nettóþyngd
(þ.e. þyngd án umbúða) í tonnum nema annað sé tilgreint
sérstaklega. í þessu riti er í töflum 19 og 21 tilgreindur fjöldi
útfluttra hrossa í stað þyngdar þeirra í tonnum en þyngd
þeirra er meðtalin í samtölu hvers lands fyrir landbúnaðar-
vörur í töflu 19.
Utanríkisverslun 1998
Vöruskiptaj öfnuður
f 1. yfirliti er sýnd þróun utanríkisverslunar áratuginn 1989-
1998, annars vegar á gengi hvers árs og hins vegar á
meðalgengi ársins 1998. Innflutningur er hér sýndur á cif-
verði en útflutningur á fob-verði. Á árinu 1998 nam verðmæti
vöruútflutningsins í heild 136,6 milljörðum króna fob á móti
176.1 milljarða heildarvöruinnflutningi cif. Þetta þýðir að
útflutningur umfram innflutning á árinu 1998 var neikvæður
um 39,5 milljarða. Samkvæmt þessum mælikvarða hefur
verið halli á utanríkisversluninni allan þennan áratug að
undanskildum árunum 1993-1995. Hallinn hefur verið mis-
mikill eða frá um 0,7% af útflutningsverðmæti árið 1989,
upp í 28,9% árið 1998. Hallinn á vöruskiptunum var 9,2%
árið 1997, 8,2% árið 1996 en 2,6% afgangur var árið 1995.
Innflutningur er gerður upp á fob-verði í íslenskum þjóð-
hagsreikningum. Mismunur cif-verðs og fob-verðs, aðallega
farmgjöld og vátrygging, færist þá á útgjaldahlið þjónustu-
reiknings. Niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala
vöru- og þjónustureiknings) verður því hin sama óháð því
hvorri aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskiptajöfnuð breytast
hins vegar mikið. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir
vöruskiptajöfnuðinn þar sem verðmæti útflutnings og inn-
flutnings er hvort tveggja reiknað á fob-verði. Til þess að
gefa betri vísbendingu um vöruskiptajöfnuðinn er jafnframt
sýnt hlutfall hans af vergri landsframleiðslu samkvæmt tölum
Þjóðhagsstofnunar. Innflutningur fob 1998 nam 162,1
milljarði og var vöruskiptajöfnuðurinn 1998 því óhagstæður
um 25,5 milljarða. í 2. yfirliti kemur fram að vöruskipta-
jöfnuðurinn fob við útlönd hefur verið hagstæður sex ár af
þeim tíu árum sem hér eru sýnd. Mestur afgangur var árið
1994, 4,5% af vergri landsframleiðslu, einnig var umtals-
verður afgangur árin 1993, 1995 og 1989. Halli var á vöru-
skiptunum fjögur þessara ára, mestur 4,4% af vergri lands-
framleiðslu árið 1998. Á mynd 1 má sjá þróun útflutnings
foh, innflutnings fob og vöruskiptajafnaðar fob.
Fróðlegt er að sjá hvernig hlutfall fob-verðs og cif-verðs
hefur þróast undanfarin ár. Árið 1998 nam heildarverðmæti
innflutningsins cif 176,1 milljarði kr. en fob-verðmæti hans
162.1 milljarði kr. eða sem nam 92% af cif-verðmætinu. Sam-
bærilegt hlutfall var 91,7% árið 1997, 91,8% árið 1996 og
90,4-91,5% árin 1989-1995.
1. yfírlit. Utanríkisverslun árin 1989-1998
í milljónum króna á gengi tivers árs í milljónum króna á gengi ársins 1998 1 títflutt umfram innflutt í % af útflutningi
Útflutt fob Innflutt cif títflutt umfram innflutt (fob-cif) títflutt fob Innflutt cif títflutt umfram innflutt (fob-cif)
1989 80.072 80.599 -528 97.894 98.539 -645 -0,7
1990 92.625 96.621 -3.996 101.653 106.039 -4.386 -4,3
1991 91.560 104.129 -12.569 100.484 114.279 -13.794 -13,7
1992 87.833 96.895 -9.063 95.915 105.812 -9.897 -10,3
1993 94.658 91.307 3.351 95.445 92.067 3.378 3,5
1994 112.654 102.541 10.113 107.975 98.284 9.691 9,0
1995 116.607 113.614 2.993 111.877 109.005 2.871 2,6
1996 125.690 135.994 -10.304 120.712 130.609 -9.896 - 8,2
1997 131.213 143.227 -12.014 128.589 140.362 -11.774 -9,2
1998 136.592 176.072 -39.480 136.592 176.072 -39.480 -28,9
Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; samkvæmt þeim mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1998 1,8% lægra en árið áður.