Gistiskýrslur - 01.11.1994, Síða 5

Gistiskýrslur - 01.11.1994, Síða 5
Formáli Árið 1984 varð að ráði að Hagstofa íslands tækist á hendur að safha upplýsingum með reglubundnum hætti um framboð gistirýmis og fjölda gistinátta á gististöðum. Var þetta meðal annars gert fyrir tilmæli samgönguráðuneytis og Ferðamálaráðs Islands. Astæða þessa var sú að upplýsingar skorti um umfang gisti- og ferðaþjónustu í landinu sem gerði skipulagningu og uppbyggingu ferðamála markvissari. Hliðstæð gagnasöfnun og skýrslugerð á sér nokkra sögu í nágrannalöndum okkar. Við skipulagningu hennar hér var því höfð hliðsjón af útgefnum ritum nágrannaþjóða um þetta efni og einkum reynslu dönsku Hagstofunnar á þessu sviði. Gagnasöfnun Hagstofunnar hófst í maí 1984 og fór hún hægar af stað en æskilegt hefði verið. Hvort tveggja var að Hagstofan tókst verkefnið á hendur án þess að henni bættust auknir starfskraftar og verkið reyndist umfangsmeira en ætlað var í fyrstu. T.d. var mjög tímafrekt að fá fullnægjandi upplýsingar um þá sem seldu gistiþjónustu. Framan af gafst Hagstofunni ekki nægur tími til að sinna þessu verkefni sem skyldi og bitnaði það einkum á úrvinnslu og birtingu á niðurstöðum. Það háði og verkinu mjög hve heimtur upplýsinga reyndust slakar frá mörgum þeirra sem selja gistiþjónustu. Skýrslur urðu því seint tæmandi og grundvöllur fyrir áætlanir fékkst ekki fyrr en talsverð reynsla hafði fengist af gagnaöfluninni. Skýrsluskil seljenda gistiþjónustu hafa batnað smám saman. Segja má að skil frá hótelum, gistiheimilum og farfuglaheimilum séu góð en gögn frá öðrum flokkum gististaða berast oft ekki fyrr en eftir mikla eftirgangsmuni. Einkum stingur í augu hve skýrsluskil frá bændagististöðum hafa verið slök. Við gagnasöfnunina hefur komið fram að ýmsir seljendur gistiþjónustu hika við að gefa opinberri stofnun nákvæmar upplýsingar um gestaljölda og seldar gistinætur. í þessu sambandi skal ítrekað það sem starfsmenn Hagstofúnnar hafa margsinnis tjáð þeim sem hún leitar upplýsinga hjá að allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila er farið með sem trúnaðarmál. Það er meginregla Hagstofúnnar að hagskýrsluupplýsingar er varða einstaklinga eða fyrirtæki eru aldrei látnar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einkaaðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin er og við það miðuð að upplýsingamar verði ekki raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þámábendaáaðaukþess sem seljendum gistiþjónustu er skylt að lögum að láta Hagstofunni upplýsingar í té, getur skýrslugerðin sem slík beinlínis komið þeim sjálfum að gagni. Hún dregur fram nýtingu gistirýmis eftir tímabilum og fjölda gesta eftir þjóðemi og dvalartíma þeirra. Seljendur gistiþjónustu ættu að geta nýtt sér þessar upplýsingar ásamt öðrum til að skipuleggja starfsemi sína, til markaðssóknar og til að bæta rekstur sinn. Gistiskýrslur koma nú út í fýrsta sinn sem sjálfstæður hluti afHagskýrslum Islands. Töflur um framboð og nýtingu gistirýmis hafa þó oft verið birtar áður, í hagtöluárbók Hagstofunnar, Landshögum, í Hagtíðindum, Norrœnu tölfrceðiárbókinni og meðal gagna á ferðamálaráðstefnum. Ætlunin er að framvegis birtist þær árlega. Hagstofúnni er ljóst að enn skortir nokkuð á að þessi skýrslugerð sé fullnægjandi. Úrbætur eru háðar skýrsluskilum frá gististöðum. Batni þau verður skýrslugerðin gleggri og fyrr á ferðinni og þar með fæst betri vitneskja um gistiþjónustuna og viðgang hennar sem atvinnugreinar. Þetta ætti að vera metnaðarmál og keppikefli öllum sem eiga í hlut. Á Hagstofúnni hefúr Kristinn Karlsson haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna frá upphafi. Hann hefúr og samið þetta rit ásamt hagstofustjóra. Að söfnun gistiskýrslna hafa ásamt Kristni unnið þau Guðný Ragnarsdóttir og Olafur Kr. Valdimarsson. Uppsetningu og umbrot þessa rits annaðist Þyrí M. Baldursdóttir. Hagstofu Islands í nóvember 1994 Hallgrímur Snorrason Preface The Statistical Bureau of Iceland started to collect data on the supply and use of accommodation in hotels and guest- houses in 1984. Later the data collection was extended to include ovemight stays in sleeping-bag facilities, at camp- ing sites, cabins and lodges. Up to now the resulting statistics have been published sporadically in the Bureau’s Statistical Abstract and its Monthly Statistics. This report is, however, the first of its kind with an overview of the development of the supply of ovemight accommodation, guest nights by nationality of guests and occupancy rates, broken down by seasons and parts of the country. The Bureau plans to publish similar reports annually in the future. At the outset, some of the providers of tourist accom- modation responded poorly to the Bureau's questionnaires. This situation has gradually improved and been satisfac- tory in the last few years as regards hotels, guesthouses and youth hostels. For other categories, particularly farm guest- houses and camping sites, the responses remain unsatisfac- tory as indicated by the relatively large proportion of estimates for these categories. At the Statistical Bureau, Kristinn Karlsson has been in charge of the data collection and the subsequent statis- tical production. He has been assisted by Guðný Ragnarsdóttir and Olafur Kr. Valdimarsson. The lay-out of this publication has been in the hands of Þyrí M. Baldursdóttir. The Statistical Bureau of Iceland in November 1994 Hallgrímur Snorrason

x

Gistiskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.