Gistiskýrslur - 01.11.1994, Qupperneq 9

Gistiskýrslur - 01.11.1994, Qupperneq 9
1994 Gistiskýrslur 7 Inngangur Introduction I. Gistináttatalning Hagstofu íslands I. Guest-night statistics Söfnun upplýsinga um framboð gistirýmis og § ölda gistinátta hófst í maí 1984. Þá sendi Hagstofan leiðbeiningar og eyðublöð til þeirra sem Ferðamálaráð hafði upplýsingar um að seldu gistiþjónustu. Upplýsingar þessar reyndust ekki tæmandi. I fýrstu fór því mikill tími í að skrásetja rekstrar- aðila, leita upplýsinga um hve lengi þeir hefðu starfað, um umfang rekstrarins, fylgjast með nýjum gististöðum o.fl. I upphafí voru send út skýrslueyðublöð með tilvísun til laga um Hagstofu Islands nr. 24/1913. Samkvæmt þeim er Hagstofunni gert að annast rannsókn landshaga og semja skýrslur þar að lútandi. Til að gegna því hlutverki getur hún krafið aðila um gögn sem hún vinnur úr og birtir sem upplýsingar almenns eðlis, en gætir þess vandlega að þær megi ekki rekja til tiltekinna einstaklinga eða fyrirtækja. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upp- lýsinga var ítrekaður með 10. gr. laga um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985. Þar segir: “Rekstraraðilar, er undir þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrirmælum Hagstofu íslands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gisti- húsa sérstaklega sem atvinnugreinar.” í samræmi við þessa lagagrein og venjur Hagstofu skuldbindur hún sig til að fara með allar upplýsingar um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti. Skýrslueyðublöðin, sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustu til útfyllingar, em tvenns konar, eyðublað sem ætlað er öllum gististöðum öðmm en farfuglaheimilum í Bandalagi íslenskra farfuglaheimila (B.Í.F) og sérstakt eyðublað fyrir farfuglaheimili. Ástæðan er sú að B.I.F. er hluti af alþjóðlegum samtökum sem gera kröfu um ítarlegri upplýsingar um þjóðemi gesta en Hagstofan fer fram á. Á eyðublöðin skal skrá fjölda gistinátta í hverjum mánuði eftir þjóðemi næturgesta. Á fyrrtalda eyðublaðinu em fyrst, ásamt íslandi, talin þau 10 lönd í Evrópu sem flestir ferðamenn koma frá, síðan önnur Evrópulönd og loks lönd í öðmm heimsálfúm. Gestafjölda á að færa inn samkvæmt þessari sundurliðun. Fyrir hótel og gistiheimili (þar sem gistirými er föst stærð) er einnig beðið um upplýsingar um fjölda útleigðra herbergja í mánuðinum og tölu herbergja og rúma á gististaðnum. Á eyðublaðinu er til hægðarauka gert ráð fyrir að tölur um fjölda séu færðar inn daglega. í skráningu Hagstofu hafa tölur verið teknar saman mánaðar- lega. Aftast í þessu hefti er að finna sýnishom af þeim eyðublöðum sem Hagstofan sendir á gististaði. 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþj ónusta í landinu erfjölbreytt. f úrvinnslu Hagstofunnar er henni skipt í 6-7 meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel oggistiheimili. Hann skiptist í þá staði sem starfa allt árið og hina sem reknir eru hluta úr ári. í þessum flokki eru öll hótel og gististaðir sem nefna sig gistiheimili (lítil hótel) án tillits til stærðar en að því tilskildu að á staðnum sé sérstök gestamóttaka. Þessi flokkur tekur til stærsta hluta allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar þeirra gistinátta sem Hagstofan hefúr upp- lýsingar um eru á gististöðum í þessum flokki. Heimtur upplýsinga um gistináttafjölda á þessari tegund gististaða hafa verið um og yfir 85% í mánuði. Gistirými er þekkt fýrir alla staði sem tilheyra þessum flokki. Nýting gistirýmis og skipting gesta eftir þjóðemi á þeim gististöðum, sem ekki hafa skilað upplýsingum, er því áætlað með nokkm öryggi á þeim gmndvelli. Því er talið að niðurstöðutölur í þessum flokki séu mjög nærri lagi. Annar flokkur gististaða em farfuglaheimili og áþekkir gististaðir. Flest farfuglaheimilin em í Bandalagi íslenskra farfugla sem gerir miklar kröfúr til skýrslugerðar. Hag- stofan hefur notið góðs af því, skýrslugerðin hefúr verið með ágætum og er tæmandi að því best verður séð. Þriðji flokkurinn em svefhpokagististaðir. Hér er um að ræða sumarhótel, félagsheimili og skóla sem selja gistingu í svefnpokum á dýnum í stærri vistarverum. Árið 1986 fór Hagstofan fram á það við sumarhótel að þau tilgreindu gistinætur af þessu tagi sérstaklega. Árin 1984 og 1985 má ætla að þær hafi annað hvort verið ótaldar eða blandast gistinóttum í herbergjum. Eftir 1986 er líklegt að talning Hagstofu nái til allra gistinátta af þessu tagi á sumar- hótelum, þar sem þær em flestar, en erfiðara er að fúllyrða um heimtur annars staðar. Fjórði flokkur gististaða em tjaldstœði og skálar. Þeim er skipt í tjaldstæði í þéttbýli, dreifbýli og á hálendi og skála á hálendi. Heimtur í þessum flokki hafa verið misjafnar. Skýrslur berast ekki frá öllum sem selja gistiþjónustu af þessu tagi. Hins vegar hafa þær yfirleitt borist óslitið frá þeim sem á annað borð hafa skilað og gefur það upp- lýsingunum aukið gildi. Fimmti flokkur gististaða em bœndagististaðir innan vébanda Ferðaþjónustu bænda. Þar er oftast um að ræða sveitaheimili sem selja gistingu heima á bæjum eða í sumarhúsum. Sú þjónusta er flokkuð sem starfsemi bændagististaða en önnur gistiþjónusta, sem auglýst er á vegum ferðaþjónustunnar, er flokkuð eftir því hvemig gistingu er um að ræða. Þannig em tjaldstæði á vegum bænda talin með öðrum tjaldstæðum í þessari skýrslu. Sama gildir um farfuglaheimili og stærri gististaði, sem auglýst hafa í bæklingum Ferðaþjónustunnar, þeir em flokkaðir með gistiheimilum eða stöðum með svefnpokagistingu eftir því sem við á. Heimtur frá ferðaþjónustubændum hafa verið lakar en upplýsingar um fjölda bændagististaða eru fengnar frá Ferðaþjónustu bænda og ættu að vera áreiðanlegar. Sjötti flokkur gistingar er heimagisting. Þar er um að ræða misstórt gistirými á einkaheimilum í þéttbýli, mest á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þessi rekstur er oft í tengslum við ferðaskrifstofur eða hótel sem vísa gestum í slíka gistingu um háannatímann. Gistiskýrslur hafa skilað sér illa frá þessum aðilum, og því eru engar áætlanir varðandi heimagistingu birtar að svo stöddu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Gistiskýrslur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.