Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 9

Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Framkvæmd kosninganna Background ofthe elections Kosningar til Alþingis höfðu síðast farið fram 25. apríl 1987, og áttu því almennar reglulegar alþingiskosningar að verða 1991. Að samþykktu frumvarpi til stjórnskipunarlaga um breytingar á stjórnarskránni í mars bar að rjúfa Alþingi þá þegar samkvæmt 79. gr. stjórnarskrár og stofna til almennra kosninga að nýju. Var Alþingi rofið frá og með laugardeginum 20. apríl 1991 ogjafnframt ákveðiðað almennarkosningartil Alþingis skyldu fara fram þann dag. Samkvæmt stjórnarskrá eru kjördæmin átta og hefur svo verið frá 1959 en með breytingu hennar 1984 fjölgaði þingsætum úr 60 í 63. Af þessum 63 þingsætum eru 54 bundin í stjórnarskrá eftir lágmarkstölu í hverju kjördæmi en kosningalög kveða að öðru leyti á um skiptingu hinna 9 milli kjördæma. Lágmarkstala bundinna þingsæta í kjördæmum er hin sama og tala kjördæmiskjörinna þingmanna hefur verið frá 1959, nema í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. I þessum tveimurkjördæmumertalan 14þingsæti og8en var 12og5. Samkvæmt stjórnarskrá skal fyrir hverjar kosningar ráðstafa til kjördæma átta þingsætum eftir ákvæðum í kosningalögum og á sama hátt er heimilt að loknum hverjum kosningum að ráðstafa til kjördæmis einu þingsæti. Við úthlutun þingsæta samkvæmt kosningaúrslitum skal gæta þess svo sem kostur er að hver þingflokkur fái þing- mannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína. Er þá heimilt að úthluta allt að fj órðungi þingsæta hvers kjördæmis, þeim sem bundin eru og þeim sem ráðstafað er fyrir hverjar kosningar, með hliðsjón af kosningaúrslitum á landinu öllu. Sama á við um úthlutun þess sætis semráðstafað er til kjördæmis að loknum kosningum. Ákvæði um skiptingu þingsæta milli kjördæma eru í 5. gr. kosningalaga. í a-lið 1. mgr. 5. gr. er kveðið á um hvernig bundnu þingsætin 54 skiptast milli kjördæma. I b-lið sömu mgr. er kveðið á um skiptingu milli kjördæma á þeim þingsætum sem ráðstafa skal fyrir hverjar kosningar. Við skiptingu þeirra er lögð til grundvallar tala kjósenda á kjörskrá í hverju kjördæmi í næstu almennum þingkosningum á undan. Um skiptinguna gilda þessar reglur: 1. í hverju kjördæmi skal deila tölu kjósenda á kjörskrá í næstu almennum alþingiskosningum á undan með tölunumll, 15, 19, 23 o.s. frv. eins oft og þörf krefur. Útkomutölur eru skráðar fyrir hvert kjördæmi. 2. Nú hefur kjördæmi hlotið, samkvæmt stjórnarskrár- bundnu skiptingunni, fleiri þingsæti en 5 og skal þá fella niður hæstu útkomutölur kjördæmisins, eina fyrir hvert þingsæti umfram 5. 3. Ráðstafa skal einu þingsæti í senn. Fyrsta sætið hlýtur það kjördæmi sem hæsta útkomutölu hefur. Sú tala er síðan felid niður. Annað þingsæti kemur í hlut þess kjördæmis sem nú hefur hæsta útkomutölu o.s.frv. uns öllum sætunum hefur verið ráðstafað. 4. Nú eru tvær eða fleiri útkomutölur jafnháar þegar að þeim kemur samkvæmt 3. tölulið og skal þá hluta um röð þeirra. í'c-lið 1. mgr. 5. gr. kosningalagaerkveðið áumráðstöfun eins þingsætis til kjördæmis að loknumkosningum, samkvæmt nánari ákvæðum laganna. Þannig er 62 þingsætum ráðstafað til kjördæma fyrir kosningar en einu að þeim loknum á grundvelli kosninga- úrslita. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. kosningalaga gaf dóms- og kirkjumálaráðuneytiðútauglýsingunr. 292 22.júní 1987um þingsætatölu kjördæma samkvæmt a- og b- lið 1. mgr. 5. gr. sömu laga við næstu almennar kosningar til Alþingis. Samkvæmt þessari auglýsingu skyldu þingsætin 62 skiptast eins og hér fer á eftir. Ti 1 samanburðar er einnig sýnd skipting þeirra 54 þingsæta sem bundin eru samkvæmt stjórnarskrá. Bundin þingsæti Þingsæti skv. skv. stjórnarskrá augl. ráðuneytis Reykjavík 14 18 Reykjaneskjördæmi 8 11 Vesturlandskjördæmi 5 5 Vestfjarðakjördæmi 5 5 Norðurlandskjördæmi vestra 5 5 Norðurlandskjördæmi eystra 6 7 Austurlandskjördæmi 5 5 Suðurlandskjördæmi 6 6 Alls 54 62 Eru sætin því fjögur umfram lágmarkstölu í Reykjavíkur- kjördæmi, þrjú í Reykjaneskjördæmi og eitt í Norðurlands- kjördæmi eystra. I 1. yfirliti er sýndur sá útreikningur sem úthlutun jöfnunarsætanna er byggð á. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið gaf út auglýsingu nr. 119 20. mars 1991um alþingiskosningarnar 20. apríl 1991, þar sem styttur var frestur varðandi framlagningu kjörskrár. Heimi ld til þess að hafa fleiri en eina kjördeild í s veitarfélagi hefur verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu 1 á bls. 28-32. í Reykjavík voru 90 kjördeildir, en í Kópavogi 11, í Hafnarfirði 10 og á Akureyri 8. Eftir tölu kjördeilda skiptust sveitarfélögin sem hér segir: 1 kjördeild 178 2 fcjördeildir 13 3 kjördeildir 2 4 kjördeildir 3 5 kjördeildir 1 8 kjördeildir 1 10 kjördeildir 1 11 kjördéildir 1 90 kjördeildir 1 Alls 201 í 7. yfirliti á bls. 13 sést tala kjördeilda í almennum kosningum frá því að hennar er fyrst getið í skýrslu um alþingiskosningar 1931.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Alþingiskosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.