Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 23
Alþingiskosningar 1991
21
8. Úthlutun þingsæta
Allocation ofseats in the Althing
Þegar landskjörstjórn hafa borist allar skýrslur um kosninga-
úrslit í kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar kemur
hún saman til þess að úthluta þingsætum. Akvæði kosninga-
laga um úthlutunina eru í XIV. kafla þeirra, og íl 11 .-115. gr.
eru ákvæði um úthlutun þingsæta til landsframboða. Fara þau
hér á eftir (að hluta í 9. kafla), en efni 5. gr., sem vísað er til,
var rakið í 1. kafla þessa inngangs:
„111. gr. Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum í kjör-
dœmum.
Þingsætum hvers kjördæmis skv. a- og b-lið fyrri mgr. 5.
gr. skal í fyrstu úthluta sem hér segir:
1. Deila skal tölu gildra atkvæða í hverju kjördæmi með
þingsætatölu þess og kallast útkoman kjördæmistala.
Brot úr heilli tölu skal fella niður.
2. Fyrst skal úthluta þingsæti þeim lista sem flest atkvæði
hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga
kjördæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú
hefur hæsta atkvæðatölu o.s.frv. Með atkvæðatölu lista
er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frádreginni
kjördæmistölu svo oft sem hann hefur hlotið þingsæti.
3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar svo mörgum
þingsætum að nemi 3/4 af þingsætatölu kjördæmisins.
Ef þá stendur á broti skal velja næstu heila tölu fyrir
ofan.
Nú hefur sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en
nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hann þá ekki tilkall til
þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans frá
gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmistöluna
að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista, sem
næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft sem
þarf. Ákvörðun kjördæmistölu með þessum hætti skal lokið
áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst.
112. gr. Skipting óráðstafaðraþingsœta.
Þingsætumskv. 5. gr., semhefurekkienn veriðúthlutað til
lista, skal skipta milli landsframboða samkvæmt ákvæðum
þessarar greinar. Við þá skiptingu koma til álita þau lands-
framboð ein sem hlotið hafa þingsæti skv. 111. gr.
Til þess að finna hvernig skipta ber þingsætum skv. fyrri
mgr. þessarar greinar milli landsframboða skal fara þannig
að:
1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hverju
landsframboði, skal deila með tölu sem er 1,2,3 o.s.frv.
hærri en tala þeirra þi ngsæta sem það hefur þegar hlotið
skv. ákvæðum 111. gr. Útkomutölurnar eru skráðar
fyrir hvert framboð.
2. Þá skal úthluta þingsætum til landsframboða, einu í
senn. Fyrst fer sæti til þess landsframboðs sem hæsta
útkomutölu hefur. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst
fer þingsæti til þess landsframboðs, sem nú hefur hæsta
útkomutölu o.s.frv. uns öllum þingsætum hefur verið
úthlutað.
113. gr. Uthlutunþingsœta skv. kosningaúrslitumá landinu
öllu.
Listar sem til álita koma. Við úthlutun þingsæta, sem hefur
verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita
þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k.
þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv.
111 .grein. Þáskaleinungisráðstafaþingsæti íkjördæmi sem
hefur ekki þegar hlotið fulla þingsætatölu.
Ákvörðun kjördœmistölu. Kjördæmistölu skal einungis
miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun
þingsætaskv. þessarigrein. Iþvískyni skal fylgjaeftirfarandi
reglum:
a. Áður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmistölur að
nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum
þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein.
b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari úthlutun með
þvíaðdragafráatkvæðumhanshinanýjukjördæmistölu
skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsæti.
c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv. þessari grein
skal lækka atkvæðatölu hans sem nemur kjördæmistölu
hverju sinni.
d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a- og b-lið,
skal reikna að nýju jafnóðum og hvert landsframboð
hlýtur fulla tölu þingsæta.
Afangar við úthlutun þingsœta. Þingsætum skv. þessari
grein skal úthluta ífjórum áföngum. Úthluta skal sæti hverju
sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af
kjördæmistölu. Haldaskaláframúthlutuninnanhversáfanga
svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun
kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt
næsta áfanga hefst.
1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með
atkvæðatölu sem nemur4/5afkjördæmistölueðameira.
Þessum áfanga lýkur jafnskjótt og ekki finnast fleiri
slíkar atkvæðatölur, enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr.
áður verið beitt ef við á.
2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til
hvers kjördæmis sem ekki hlaut úthlutun í fyrsta áfanga.
í þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann
ekki fengið a.m.k. 7% gildra atkvæða í kjördæmi sínu.
3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjördæmum.
4. áfangi: Loks skal úthluta þingsæti skv. c-lið fyrri mgr.
5. gr. Kemur það í hlut þess landsframboðs sem nú
skortir þingsæti að lokinni skiptingu sæta skv. 112. gr.
Skal úthluta sætinu skv. stafliðum a-e:
a. Finna skal hvað atkvæði þeirra lista, sem til greina
koma, sbr. 1. mgr., nema hárri hlutfallstölu af
kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv.
þessari grein.
b. Hlutfallstölurnar skal leggja saman og deila samtölu
þeirra með tölu þingsæta sem landsframboðið á að fá
skv. 11 l.ogll2.gr.ognefnistútkomanmeðalhlutfall.
c. Ákvarða skal nýja kjördæmistölu í þessum áfanga
með því að margfalda kjördæmistölu skv. a-lið með
meðalhlutfalli.
d. Reikna skal listunum atkvæðatölur að nýju. Er það
gert með því að draga frá atkvæðum hvers lista
kjördæmistölu skv. c-lið, jafnoft og listinn hefur
hlotið þingsæti.