Alþingiskosningar - 01.12.1993, Page 23

Alþingiskosningar - 01.12.1993, Page 23
Alþingiskosningar 1991 21 8. Úthlutun þingsæta Allocation ofseats in the Althing Þegar landskjörstjórn hafa borist allar skýrslur um kosninga- úrslit í kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar kemur hún saman til þess að úthluta þingsætum. Akvæði kosninga- laga um úthlutunina eru í XIV. kafla þeirra, og íl 11 .-115. gr. eru ákvæði um úthlutun þingsæta til landsframboða. Fara þau hér á eftir (að hluta í 9. kafla), en efni 5. gr., sem vísað er til, var rakið í 1. kafla þessa inngangs: „111. gr. Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum í kjör- dœmum. Þingsætum hvers kjördæmis skv. a- og b-lið fyrri mgr. 5. gr. skal í fyrstu úthluta sem hér segir: 1. Deila skal tölu gildra atkvæða í hverju kjördæmi með þingsætatölu þess og kallast útkoman kjördæmistala. Brot úr heilli tölu skal fella niður. 2. Fyrst skal úthluta þingsæti þeim lista sem flest atkvæði hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga kjördæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú hefur hæsta atkvæðatölu o.s.frv. Með atkvæðatölu lista er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frádreginni kjördæmistölu svo oft sem hann hefur hlotið þingsæti. 3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar svo mörgum þingsætum að nemi 3/4 af þingsætatölu kjördæmisins. Ef þá stendur á broti skal velja næstu heila tölu fyrir ofan. Nú hefur sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hann þá ekki tilkall til þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans frá gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmistöluna að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista, sem næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft sem þarf. Ákvörðun kjördæmistölu með þessum hætti skal lokið áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst. 112. gr. Skipting óráðstafaðraþingsœta. Þingsætumskv. 5. gr., semhefurekkienn veriðúthlutað til lista, skal skipta milli landsframboða samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Við þá skiptingu koma til álita þau lands- framboð ein sem hlotið hafa þingsæti skv. 111. gr. Til þess að finna hvernig skipta ber þingsætum skv. fyrri mgr. þessarar greinar milli landsframboða skal fara þannig að: 1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hverju landsframboði, skal deila með tölu sem er 1,2,3 o.s.frv. hærri en tala þeirra þi ngsæta sem það hefur þegar hlotið skv. ákvæðum 111. gr. Útkomutölurnar eru skráðar fyrir hvert framboð. 2. Þá skal úthluta þingsætum til landsframboða, einu í senn. Fyrst fer sæti til þess landsframboðs sem hæsta útkomutölu hefur. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst fer þingsæti til þess landsframboðs, sem nú hefur hæsta útkomutölu o.s.frv. uns öllum þingsætum hefur verið úthlutað. 113. gr. Uthlutunþingsœta skv. kosningaúrslitumá landinu öllu. Listar sem til álita koma. Við úthlutun þingsæta, sem hefur verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k. þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv. 111 .grein. Þáskaleinungisráðstafaþingsæti íkjördæmi sem hefur ekki þegar hlotið fulla þingsætatölu. Ákvörðun kjördœmistölu. Kjördæmistölu skal einungis miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun þingsætaskv. þessarigrein. Iþvískyni skal fylgjaeftirfarandi reglum: a. Áður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmistölur að nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein. b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari úthlutun með þvíaðdragafráatkvæðumhanshinanýjukjördæmistölu skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsæti. c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv. þessari grein skal lækka atkvæðatölu hans sem nemur kjördæmistölu hverju sinni. d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a- og b-lið, skal reikna að nýju jafnóðum og hvert landsframboð hlýtur fulla tölu þingsæta. Afangar við úthlutun þingsœta. Þingsætum skv. þessari grein skal úthluta ífjórum áföngum. Úthluta skal sæti hverju sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af kjördæmistölu. Haldaskaláframúthlutuninnanhversáfanga svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt næsta áfanga hefst. 1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með atkvæðatölu sem nemur4/5afkjördæmistölueðameira. Þessum áfanga lýkur jafnskjótt og ekki finnast fleiri slíkar atkvæðatölur, enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr. áður verið beitt ef við á. 2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til hvers kjördæmis sem ekki hlaut úthlutun í fyrsta áfanga. í þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann ekki fengið a.m.k. 7% gildra atkvæða í kjördæmi sínu. 3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjördæmum. 4. áfangi: Loks skal úthluta þingsæti skv. c-lið fyrri mgr. 5. gr. Kemur það í hlut þess landsframboðs sem nú skortir þingsæti að lokinni skiptingu sæta skv. 112. gr. Skal úthluta sætinu skv. stafliðum a-e: a. Finna skal hvað atkvæði þeirra lista, sem til greina koma, sbr. 1. mgr., nema hárri hlutfallstölu af kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv. þessari grein. b. Hlutfallstölurnar skal leggja saman og deila samtölu þeirra með tölu þingsæta sem landsframboðið á að fá skv. 11 l.ogll2.gr.ognefnistútkomanmeðalhlutfall. c. Ákvarða skal nýja kjördæmistölu í þessum áfanga með því að margfalda kjördæmistölu skv. a-lið með meðalhlutfalli. d. Reikna skal listunum atkvæðatölur að nýju. Er það gert með því að draga frá atkvæðum hvers lista kjördæmistölu skv. c-lið, jafnoft og listinn hefur hlotið þingsæti.

x

Alþingiskosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.