Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 17

Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 17
Alþingiskosningar 1991 15 fjölda og kemur fram við talningu atkvæða. I heildartölunni í 9. yfirliti eru ekki atkvæði greidd erlendis og í skipum, en þar eru hins vegar talin atkvæði sem ekki er skilað í tæka tíð fyrir lok kjörfundar eða verða ógild við það að kjósandi greiðir atkvæði á kjörstað eða greiðir annað utankjörfundar- atkvæði. Af heildartölunni hafa 89% greitt atkvæði hjá kjörstjóra og 11% annars staðar. 5. Atkvæðagreiðsla í annarri kjördeild á kjördegi Voting on election day at a polling station other than that of registration Samkvæmt 82. gr. kosningalaga má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskrá, að greiða atkvæði ef hann sannar með vottorði að hann standi á kjörskrá í annarri kjördeild innan sama kjördæmis, hafi afsalað sér kosningarrétti þar og vottorðið sé gefíð út af undirkjörstjórn þeirrar kjördeildar. Mikilvægi þessa ákvæðis, sem hefur gilt frá því 1916, hefur farið síminnkandi frá þjóðaratkvæðagreiðslunni 1918, er 2,9% kjósenda neyttu þessa réttar. Þá og allt til sumarkosninga 1959 voru þessi atkvæði að hluta bréfleg atkvæði, sem komust ekki í heimakjördeild kjósenda áður en kjörfundi lyki. Við kosningarnar 1991 greiddu 12 kjósendur atkvæði á kjördegi í öðru sveitarfélagi en þar sem þeir stóðu á kjörskrá. Heimild 82. gr. kosningalaga nær einnig til atkvæða- greiðslu í annarri kjördeild innan sama sveitarfélags, og notfærði 121 kjósandi sér hana þannig við kosningarnar 1991. Flestir þeirra, 85, greiddu atkvæði í húsi Sjálfsbjargar í Reykjavík, en stóðu á kjörskrá á öðrum kjörstöðum þar. í 8. yfirliti er sýnd tala þeirra karla og kvenna sem kusu í hverju kjördæmi samkvæmt heimild 82. gr. kosningalaga, og í 5. yfirliti sést hlutfallstala þessara atkvæða af heildar- tölunni. 6. Framboðslistarogframbjóðendur Candidate lists and candidates Frá því að hlutfallskosningar voru teknar upp í öllum kjördæmum með stjórnarskrárbreytingunni 1959, hefur tala lista og frambjóðenda verið sem hér segir: Frambjóðendur Listar Alls Karlar Konur 1959, október 35 438 402 36 1963 33 402 371 31 1967 35 450 406 44 1971 42 525 447 78 1974 46 556 459 97 1978 47 598 449 149 1979 37 474 355 129 1983 45 556 361 195 1987 64 958 521 437 1991 67 1.029 560 469 Fyriralþingiskosningarnar20. apríl 1991 komu fram fleiri framboðslistar og fleiri frambjóðendur en nokkru sinni fyrr í alþingiskosningum. Alls buðu 11 stjórnmálasamtök fram og voru framboðslistar 67 og frambjóðendur 1.029, þar af 560 karlar og 469 konur. Sjö stjórnmálasamtök buðu fram í öllum kjördæmum: Alþýðuflokkur-Jafnaðarmannaflokkur íslands (hér eftir nefndur Alþýðuflokkur), Framsóknarflokkur, Sjálfstæðis- flokkur, Frjálslyndir, Alþýðubandalag, Samtök um kvenna- lista og Þjóðarflokkur—Flokkur mannsins. Heimastjórnar- samtök huðu fram í 7 kjördæmum, öllum nema Vestfjarða- kjördæmi. Grænt framboð bauð fram í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Verkamannaflokkur Islands og ÖfgasinnaðirjafnaðarmennbuðuframíReykjaneskjördæmi. Urðu framboðslistar því 11 í Reykjaneskjördæmi, 9 í Reykjavík, 7 í Vestfjarðakjördæmi og 8 íhverju hinnafimm. Hlutdeild kvenna á framboðslistum hefur aukist mikið. Hún var8%haustið 1959,35% 1983og 46% 1991. íþremur efstu sætum á lista var hlutdeild kvenna 37% við kosningamar 1991. 110. yfirliti er sýnd tala frambjóðenda fyrir alþingis- kosningarnar 1987, allra og þeirra sem voru í þremur efstu sætum á lista, eftir kyni í hverju kjördæmi og fyrir hvert landsframboð. 111. yfirliti er sýnd tala karla og kvenna á hverjum framboðslista. Kjörgengur við kosni ngar til Alþingis er hver sá ríkisborgari sem kosningarrétt á og hefur óflekkað mannorð. Samkvæmt 27. gr. kosningalaga á að fylgja framboðslista skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera margfeldi af þingsætatölu kjördæmisins og talsmanna, 20 að lágmarki og 30 að hámarki. Frambjóðendur við kosningarnar 1991 eru taldir með stöðu og heimilisfangi í töflu 2 á bls. 33-45.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Alþingiskosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.