Alþingiskosningar - 01.12.1993, Blaðsíða 70
68
Alþingiskosningar 1991
Ritröðin Hagskýrslur íslands
The series Statistics oflceland
Eftir að Hagstofa íslands tók til starfa í ársbyrjun 1914 tók
hún við opinberri hagskýrslugerð hér á landi og hóf útgáfu
Hagskýrslna íslands sem voru framhald þeirra hagskýrslna
sem út voru gefnar á árunum 1858-1912. Fyrstu innlendu
hagskýrslurnar voru gefnar út af Hinu íslenska bókmennta-
félagiáárunum 1858-1875. Árin 1874-1898 vomhagskýrslur
birtar í Stjórnartíðindum, í B-deildinni árin 1874-1881 en í
C-deildinni árin 1882-1898. Á þessu tímabili birtust
skýrslurnar ýmist hver undir sínu heiti eða voru nefndar einu
nafni Landshagsskýrslur. Eftir 1898 var hætt að birta þessar
skýrslur sem hluta af C-dei ld Stjórnartíðinda. I stað þess voru
þær gefnar út sérstaklega og þá undir heitinu Landshags-
skýrslurfyrir ísland. Þannig var útgáfunni háttað árin 1899-
1913 en þá tóku Hagskýrslur Islands við.
Fyrsta skýrslan í ritröðinni Hagskýrslur Islands kom út
árið 1914og voruþað verslunarskýrslur fyrir árið 1912.Með
útkomu verslunarskýrslna fyrir árið 1949, sem gefnar voru út
árið 1951, var ákveðið að hæfist nýr útgáfuflokkur, merktur
II. í upphaflega útgáfuflokknum voru þá komar út 130
skýrslur, en tvær skýrslur voru óútkomnar og birtust þær
síðar sama ár og árið eftir, þ.e. 1952. Alls voru því 132
skýrslur í þessum fyrsta útgáfuflokki. Við gerð Verslunar-
skýrslna 1988 var broti og útliti Hagskýrslna Islands breytt.
Um leið var ákveðið að þá hæfist þriðji útgáfuflokkurinn,
merktur III, og kom fyrsta skýrslan í þeim flokki út í ársbyrj un
1990. í öðrum útgáfuflokki höfðu þá verið gefnar út 89
skýrslur. Riti ð Alþingiskosningar 1991 er sautjánda skýrslan
í III. flokki Hagskýrslna íslands og jafnframt 238. skýrslan
frá upphafi ritraðarinnar.
When the Statistical Bureauof Icelandwasfoundedin 1914
itbecame responsibleforthepublication ofofftcial Icelandic
statistics. The Bureau published its first issue in the series
Statistics oflceland later that same year. This series was in
effect a continuation ofa previous and more or less regular
publication of lcelandic statistics that started in 1858.
In 1951 it was decided to continue the Statistics oflceland
in a new series, labelled II. That series was maintained until
the lay-out and format ofthe publications was changed in
early 1990 with the issue offoreign trade statisticsfor 1988.
That issue marked the beginning ofseries III of Statistics of
Iceland.
In thefirst series 132 statistical reports were published in
the years 1914-1952. The second series, published 1951-
1988, contains 89 reports. Thepresentpublication, Elections
to the Althing, is no. 17 in the third series, and no. 238 in the
combined series of Statistics oflceland.