Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 13

Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 13
Alþingiskosningar 1995 ] 1 karlar einir kosningarrétt og einungis bændur sem höfðu grasnyt, kaupstaðarborgarar er greiddu til sveitar minnst 8 krónur á ári, þurrabúðarmenn er greiddu til sveitar minnst 12 krónur á ári, embættismenn og loks þeir sem lokið höfðu tilteknu lærdómsprófi. Lágmarksaldur kosningarréttar var 25 ár. Sveitarstyrksþegar höfðu ekki kosningarrétt. Með breytingu stjórnarskrár árið 1903 fengu lausamenn kosningarrétt með sama hætti og kaupstaðar- og þun'búðar- menn og aukaútsvarsgreiðslan var lækkuð niður í 4 krónur. Afram hélst það skilyrði að menn væru ekki öðrum háðir sem hjú. Var kjósendatalan 14-15% af íbúatölunni árin 1908- 1914. Konur og hjú fengu takmarkaðan kosningarrétt með hreytingu á stjórnarskránni árið 1915. Var lágmarksaldur þeirra 40 ár en skyldi lækka um eitt ár árlega næstu 15 ár uns aldursmark þeirra yrði 25 ár, eins og þeirra sem höfðu kosningarrétt fyrir. Jafnframt var4 króna aukaútsvarsgreiðsla felld niður sem skilyrði fyrir kosningarrétti. Við þetta komst kjósendatalan upp yfir 30% af mannfjölda og smáhækkaði síðan eftir því sem aldursmark nýju kjósendanna lækkaði. Stjórnarskránni var breytt árið 1920 og var þá hið sérstaka aldursmark nýju kjósendanna fellt niður. Hækkaði þá kjósendatalan svo að hún varð um 45% íbúatölunnar. Með stjórnarskrárbreytingu árið 1934 var aldursmark allra kjósenda lækkað í 21 ár og sveitarstyrksþegar fengu kosningar- rétt. Urðu kjósendur þá meirihluti þjóðarinnar, um 56%. Fæðingum fækkaði nokkuð á fjórða tug aldarinnar og óx því hlutdeild fólks á kosningaraldri í íbúatölunni og komst í um 60% íbyijun fimmtaáratugarins. A sjöttaáratugnumfjölgaði börnum mjög en árgangar þeirra, sem náðu kosningaaldri, voru fámennir. Hlutfall kjósenda á kjörskrá af íbúafjölda fór því lækkandi allt til ársins 1967 þegar það var um 54%. Jafnframt munu nákvæmari tölur um kjósendur, eftir að farið var að byggja kjörskrá á kjörskrárstofnum þjóðskrár frá og meðárinu 1956, valdanokkruumlækkunhlutfallsins. Líkur á því að menn séu á kjörskrá í fleiri en einni kjördeild hafa minnkað stórlega við það. Frá þeim tíma eiga heldur ekki að vera með í kjósendatölunni þeir sem náðu kosningaaldri eftir kjördag á kosningaárinu en samkvæmt þágildandi kosninga- lögum voru þeir á kjörskrá þótt þeir fengj u ekki kosningarrétt fyrr en eftir kjördag. Ekki eiga heldur að vera á kjörskrá þeir sem dánir eru þegar kosning fer fram. Kosningaaldur var lækkaður í 20 ár 1968 (stj órnarskipunar- lög nr. 9/1968) og af þeim sökum hækkaði kjósendahlutfallið við forsetakjöriðþað ár. Síðan hefur hlutfallið farið síhækkandi þar sem öll fólksfjölgun á landinu hefur orðið meðal þeirra sem náð hafa kosningaraldri. Var kjósendahlutfallið komið í 64% f kosningunum 1983. Árið 1984 var kosningaaldur lækkaður í 18 ár og kom það fyrst til framkvæmda 1987. Kosningarréttur var að auki rýmkaður. Annars vegar var lögræðissvipting ekki lengur látin valda missi kosningarréttar. Hins vegar skyldi taka á kjörskrá þá sem fullnægðu skilyrðum kosningarréttar og höfðu átt lögheimili hér á landi á síðustu fjórum árum talið frá l.desembernæstumfyrirkjördag.Hækkaðihlutfallkjósenda af íbúatölunni þá í 70% árið 1987. Samkvæmt eldri kosningalögum skyldu menn vera á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu lögheimili 1. desember næst á undan þeim tíma er kjörskrár skyldu lagðar fram. Við kosningarnar 25. apríl 1987 áttu menn því kosningarrétt þar sem lögheimili þeirra var 1. desember 1986. Meðlögumnr. 10/1991 breyttust kosningalög þannig að þá skyldi taka menn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir voru skráðir með lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár sjö vikum fyrir kjördag. Þá var kosningarréttur enn rýmkaður með sömu lögum á þann hátt að íslenskir rikisborgarar missa ekki kosningarrétt við að flytjast af landi brott fyrr en að liðnum átta árum talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Hafi menn átt lögheimili erlendis lengur en átta ár geta þeir áfram átt hér kosningarrétt hafi þeir sótt um það til Hagstofu Islands. Umsókn skal rituð á sérstakt eyðublað þar sem fram komi fullt nafn og kennitala umsækjanda, hvenær hann flutti af landi brott, síðasta lögheimili á landinu og heimilisfang erlendis. Umsókn skal jafnframt bera með sér yfirlýsingu umsækjanda um að hann sé enn íslenskur ríkisborgari. Sé umsókn fullnægjandi tilkynnir Hagstofan það umsækjanda og hlutaðeigandi sveitarstjórn og skal hann þá tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti síðast lögheimili hér á landi. Ákvörðun um að einhver sé þannig tekinn á kjörskrá gildir í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram. Með lögum nr. 9/1995 var viðmiðunartíma kjörskrár breytt úr sjö vikum í þrjár vikur fyrir kjördag. Samkvæmt því skal taka menn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eru skráðirmeðlögheimili þremurvikumfyrirkjördag. Kjörskrá fyrir kosningarnar 8. apríl 1995 var því miðuð við skráð lögheimili 18. mars 1995. Breytingar á hlutfalli kjósenda af íbúafjölda hafa að hluta ráðist af ibúaskráningu námsmanna. Þeir sem fara utan til náms halda y firleitt lögheimili sínu og kosningarrétti á Islandi. I lögum um lögheimili nr. 21/1990 segir: „Sá sem dvelst erlendis við nám eða vegna veikinda, getur áfram átt lögheimili hér á landi hjá skyldfólki sínu eða venslafólki eða í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili er hann fór af landi brott enda sé hann ekki skráður með fasta búsetu erlendis.” Hliðstætt ákvæði var í lögheimilislögum frá 1960. Island gerðist aðili að Norðurlandasamningi um almannaskráningu í febrúar 1969 er tók gildi I. október sama ár. Núverandi samningurumþettaefnierfrá 1990. Samningurinnfelurþað meðal annars í sér að sérhver einstaklingur, sem tekinn er á íbúaskrá í einu aðildarríki, skal um leið felldur af skrá í því landi sem hann flytur frá. Til þess að leysa þann vanda um ákvörðun kosningaréttar sem myndaðist vegna þessa var sá háttur hafður árin 1971-1983 að fólk innan tiltekins aldurs sem flust hafði til Norðurlanda var tekið á kjörskrárstofna. Sveitarstjórnir felldu þá af kjörskrárstofnum sem ekki voru námsmenn. Námsmenn sem voru yfir aldurmarkinu voru teknir á kjörskrá bæru þeir fram ósk um það. Islensku námsfólki á Norðurlöndum fjölgaði mikið á árunuml968- 1983, og þar sem það kom fram í kjósendatölunni en ekki mannfjöldatölunni hækkaði kjósendahlutfallið umfram það sem annars hefði verið. Meðbreytingumþeimákosningalögum 1987og 1991 sem fyrr var getið eiga allir þeir sem flust hafa af landi brott kosningarrétt tiltekinn árafjölda að öðrum lagaskilyrðum fullnægðum. Þar með er fallin niður hin sérstaka aðferð Þjóðskrár til þess að koma íslenskum námsmönnum á Norðurlöndum á kjörskrárstofn fyrir alþingiskosningar. Sem fyrr segir var ákveðið með kosningalagabreytingunni 1995 að hver maður skuli vera á kjörskrá í því sveitarfélagi

x

Alþingiskosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.