Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 16

Alþingiskosningar - 01.09.1995, Page 16
14 Alþingiskosningar 1995 ræðismenn verið kjörstjórar og farið með atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eftir því sem utanríkisráðuneytið ákveður en þetta var áður bundið við að þeir væru af íslensku bergi brotnir og skildu íslensku. Þá var og í fyrrnefndum lögum það nýmæli að kjörstjóra innanlands var heimilað að láta slíka atkvæðagreiðslu fara fram á sjúkrahúsi eða dvalarheimili aldraðra, enda væri kjósandi sjúklingur eða vistmaður á stofnuninni. Frá 1991 fer með sama hætti um fangelsi og stofnanir fyrir fatlaða. Viðþjóðaratkvæðagreiðslurumsambandslagasamninginn 1918 og niðurfellingu hans og samþykkt stjórnarskrár 1944 var leyft að kjósandi greiddi atkvæði heima hjá sér væri hann ekki heimanfærtil kjörstaðar sökum elli eða vanheilsu. Sama heimild var sett í lög fyrir alþingiskosningarnar 1923 en hún varafnumin 1924vegna hættu á misnotkun. Meðlögumnr. 10/1991 var enn á ný sett ákvæði í kosningalög þess efnis að kjörstjóri innanlands geti heimilað kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, að greiða atkvæði í heimahúsi. Slík ósk skal vera skrifleg, studd læknisvottorði og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar ein vika er til kjördags. Samkvæmt eldri kosningalögum þurftu atkvæði greidd utan kjörfundar að hafa borist til þeirrar kjördeildar þar sem hlutaðeigandi var á kjörskrá áður en kjörfundi lyki. Þessu var breytt með kosningalögum nr. 52/1959 á þann veg að nægjanlegt er að áður en kjörfundi lýkur sé bréfi með utan- kjörfundaratkvæðikomiðíeinhverjakjördeildþesskjördæmis þar semhlutaðeigandi kjósandi er ákjörskrá. Skulu kjörstjórnir senda slík bréf aðskilin til yfirkjörstjórnar. Við alþingis- kosningar 1995 bárust 1.317 atkvæði með þessum hætti. I töflu 1 er sýnt hve mörg atkvæði voru greidd utan kjörfundar í hverju kjördæmi við kosningarnar 1995 og hvernig þau skiptust á sveitarfélög. Við alþingiskosningarnar 1995 greiddu 14.448 manns atkvæði utan kjörfundar, eða 8,6% af þeim sem atkvæði greiddu. í 7. yfirliti kemur fram þetta hlutfall við kosningar frá og með 1916. Við alþingiskosningarnar 1995 voru 6.167 af utan- kjörfundaratkvæðum frá konum eða 42,7%. 17. yfirliti sést hve margir af hverju hundraði karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið utan kj örfundar. Hátt hlutfall kvenna 1918, 1923og 1944stafareingönguafheimakosningumþví að konur notuðu sér þær í mun ríkara mæli en karlar. í 5. yfirliti er samanburður á því hve mörg utankjörfundar- atkvæði komu áhvert 100 greiddra atkvæða í hverju kjördæmi. Sést þar að tiltölulega flest utankjörfundaratkvæði voru á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, 15,8%, en fæst á Reykja- nesi og í Reykjavík, 6,2% og 7,1%. í 8. yfirliti sést hve margir karlar og konur greiddu atkvæði utan kjörfundar í hverju kjördæmi við kosningarnar 1995 og hve mörg þeirra bárust beint til yfirkjörstjórnar. í 9. yfirliti er sýnt hvernig utankjörfundaratkvæði greidd hjákjörstjóruminnanlandsskiptusteftirkjördæmum. Athuga ber að hér er ekki urn að ræða sama heildarfjölda og kemur fram við talningu atkvæða. í heildartölunni í 9. yfirliti eru ekki atkvæði greidd erlendis og um borð í skipum en þar eru hins vegar talin atkvæði sem ekki er skilað fyrir lok kj örfundar eða verða ógild við það að kjósandi greiðir atkvæði á kjörstað eða greiðir annað utankjörfundaratkvæði. Af heildartölunni greiddu 89% atkvæði hjá kjörstjóra og 11% annars staðar. 7. yfírlit. Atkvæði greidd utan kjörfundar 1916-1995 og tala kjördeilda 1931-1995 Summary 7. Absentee votes 1916-1995 and number of polling stations 1931-1995 Utankjörfundaratkvæði af hundraði greiddra atkvæða Absentee votes as per cent of votes cast Kjör- deildir Utankjörfundaratkvæði af hundraði greiddra atkvæða Absentee votes as per cent of votes cast Kjör- deildir Alls Total Karlar Males Konur Females Polling stations Alls Total Karlar Males Konur Females Polling stations 1916 1,9 2,2 1,0 1956 9,6 10,8 8,3 394 1918 þjóðaratkvgr. 1959, júní 10,9 13,4 8,3 387 Referendum 12,0 6,2 30,0 1959, október 7,4 9,4 5,4 384 1919 2,2 3,0 1,8 1963 8,3 10,2 6,4 371 1923 13,0 8,7 17,6 1967 8,7 10,3 7,0 346 1927 6,4 8,7 3,7 1968 forsetakjör 1931 7,5 9,4 5,5 275 Presidential elections 11,1 12,6 9,6 333 1933 9,3 10,0 7,4 266 1971 9,7 11,6 7,6 330 1934 7,9 7,7 5,2 332 1974 13,4 14,8 12,0 328 1937 12,2 15,3 6,4 343 1978 13,2 14,7 11.7 336 1942, júlí 11,4 13,2 9,4 359 1979 9,6 11,4 7,9 336 1942, október 6,5 8,1 4,8 400 1980 forsetakjör 1944 þjóðaratkvgr. Presidential elections 13,8 15,0 12,5 334 Referendum 18,8 17,7 19,7 383 1983 8,3 9,9 6,6 345 1946 12,7 15,1 10,3 394 1987 10,0 11,5 8,5 353 1949 7,9 10,0 5,8 393 1988 forsetakjör 1952 forsetakjör Presidential elections 13,4 13,2 13,8 331 Presidential elections 9,2 11,0 7,2 396 1991 8,8 10,2 7,4 346 1953 9.1 10,3 7,8 398 1995 8,6 9,9 7,3 341

x

Alþingiskosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.