Alþingiskosningar - 01.09.1995, Side 29
Alþingiskosningar 1995
27
17. yfirlit. Frambjóðendur við alþingiskosningar 8. apríl 1995 sem lokið hafa háskólanámi eftir deildum
og kyni
Summary 17. Candidates for general elections 8 April 1995 with university degree by faculty and sex
Fjöldi Number Hlutfallstölur, %
Alls Total Karlar Males Konur Females Alls Totaí Karlar Males Konur Females
Alls 246 119 127 100,0 100,0 100,0 Total
Tækniskólar á háskólastigi 11 7 4 4,5 5,9 3,1 Technical college
Kennaraháskóli 31 5 26 12,6 4,2 20,5 Teacher's training college
Guðfræðideild 6 5 1 2,4 4,2 0,8 Faculty of Theology
Læknadeild 22 9 13 8,9 7,6 10,2 Faculty of Medicine
Lagadeild 24 14 10 9,8 11,8 7,9 Faculty of Law Faculty of Economics and
Viðskipta- og hagfræðideild 25 21 4 10,2 17,6 3,1 Business Administration
Heimspekideild 31 14 17 12,6 11,8 13,4 Faculty ofArts
Tannlæknadeild 2 1 1 0,8 0,8 0,8 Faculty of Dentistry
Verkfræðideild 6 6 - 2,4 5,0 Faculty of Engineering Faculty of Natural
Raunvísindadeild 26 18 8 10,6 15,1 6,3 Sciences
Félagsvísindadeild 37 8 29 15,0 6,7 22,8 Faculity of social science
Aðrar háskóladeildir 25 11 14 10,2 9,2 11,0 Other university faculty
úr röðum iðnaðarmanna og sérhæfðs iðnverkafólks, véla- og
vélgæslufólks og ósérhæfðs starfsfólks (alls 9% fram-
bjóðenda, 32% landsmanna). Þetta gildir að mestu um öll
kjördæmi og þá stjórnmálaflokka sem buðu fram í öllum
kjördæmum (15. og 16. yfirlit). Nokkur munur er þó á
flokkunum. Nefna má að hlutfall stjórnenda og embættis-
manna var hæst hjá Sjálfstæðisflokki, 50%, en lægst hjá
Þjóðvaka, 17%. Þetta skýrist að talsverðu leyti af mismunandi
fjölda þingmanna meðal frambjóðenda hvors flokks. Hæst
hlutfall sérfræðinga var hjá frambjóðendum Kvennalista,
43%, en lægst hjá frambjóðendum Sjálfstæðisflokks, 17%.
Séu frambjóðendur úr röðum þessara tveggja starfsstétta
teknir saman reynist hlutfallið hæst um 67% hjá Sjálfstæðis-
flokki, lægst45% hjáÞjóðvakaen 59-62% hjá Alþýðuflokki,
Framsóknarflokki, Alþýðubandalagi og óháðum og Kvenna-
lista. Sé á hinn bóginn litið til starfsstéttanna þriggja, iðnaðar-
fólks, véla- og vélgæslufólks og ósérhæfðs starfsfólks, þaðan
sem fáir frambjóðendur koma, er hlutfall frambjóðenda úr
þessum stéttum hæst hjá Þjóðvaka, 17%, en lægst hjá Kvenna-
lista og Sjálfstæðisflokki, 3-4%.
Menntun
I vinnumarkaðskönnun er spurt um hæstu prófgráðu þátt-
takenda. Eru svörin flokkuð eftir menntunarflokkum Alþjóða-
menningarmálastofnunarinnar, UNESCO, en niðurstöður
dregnar saman í þrjú menntunarstig, grunnmenntun
(samsvarar skyldunámi eða minna), starfs- og framhalds-
menntun (þ.m.t. starfsmenntun í sérskólum áháskólastigi) og
háskólamenntun. Eins varfarið að í frambjóðendakönnuninni.
1 ljós kemur að frambjóðendur hafa að jafnaði mun meiri
menntun en niðurstöður vinnumarkaðskönnunar sýna fyrir
fólk á aldrinum 18-74 ára (14. yfirlit). Þannig eru 41%
landsmannaeingöngu með grunnmenntun samkvæmt vinnu-
markaðskönnun en 22% frambjóðenda, 48% landsmanna
hafa öðlast starfs- eða framhaldsmenntun en 49% fram-
bjóðenda, en háskólamenntun hafa 11 % landsmanna en 29%
frambjóðenda. Þessi hlutföll eru nokkuð breytileg eftir
kjördæmum og flokkum en megindrættirnir eru þó alls staðar
hinir sömu. Hlutfall frambjóðenda sem hafa eingöngu
grunnmenntun eða minna er lægst hjá Sjálfstæðisflokki,
12%, en hæst hjáÞjóðvaka, 29%. Hlutfall frambjóðendameð
háskólamenntun er á hinn bóginn lægst hjá Þjóðvaka, 21%,
en hæst hjá Kvennalista, 42% (15. yfirlit).
Að tiltölu voru flestir háskólamenntaðir frambjóðendur í
framboði í Reykjavík en fæstir á Suðurlandi en af þeim sem
hafa lokið starfs- eða framhaldsmenntun komu tiltölulega
flestir frá Norðurlandi vestra en fæstir af Vesturlandi. Þá
kemur fram að hlutfallslega fleiri konur en karlar meðal
frambjóðenda hafa lokið háskólaprófi og er það öfugt við það
sem á við um landsmenn almennt.
116. yfirliti er frambjóðendum skipt eftir aldri og menntun-
arstigi. Bornir eru saman allir frambjóðendur, þeir sem skipa
þrjú efstu sætin á öllum listum sem voru í framboði og loks
allir landsmenn 18-74 ára. Hér má sjá að megindrættir í
muninum á menntunarstigi frambjóðenda og landsmanna
koma fram í öllum aldursflokkum. Þá kemur fram að tiltölulega
mun fleiri frambjóðendur, sem skipuðu þrjú efstu sætin á
lista, hafa lokið háskólaprófi en frambjóðendur í heild.
í 17. yfirliti má sjá hvernig þeir frambjóðendur, sem hafa
lokiðháskólaprófi,skipasteftirnámssviðum.Þarkemurm.a.
fram að um 29% karla hafa lokið prófi í lögum, viðskiptafræði
eða hagfræði og 16% í raunvísindum, verkfræði eða tækni-
fræði.Hinsvegarhefur21%kvennameðalháskólamenntaðra
frambjóðenda lokið kennaraprófi og 23% prófi í félags-
vísindum.