Alþingiskosningar - 01.09.1995, Qupperneq 33
Alþingiskosningar 1995
31
8. Úthlutun þingsæta
Allocation of seats in the Althingi
Þegar landskjörstjórn hafa borist allar skýrslur um kosninga-
úrslit í kjördæmum kemur hún saman til þess að úthluta
þingsætum. Akvæði kosningalaga um úthlutunina eru í XIV.
kafla. I 111.-115. gr. eru ákvæði um úthlutun þingsæta til
landsframboða. Tekið skal fram að með landsframboði er í
lögunum átt við þá framboðslista sem saman eiga þegar
þingsætum er úthlutað skv. 112. og 113. gr. Þeir geta verið
úreinu kjördæmi eða fleirum. Þessi ákvæði fara hér á eftir(að
hluta í 9. kafla) en efni 5. gr., sem vísað er til, var rakið í 1.
kafla þessa inngangs:
„111. gr.
Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum í kjördœmum.
Þingsætum hvers kjördæmis skv. a- og b-lið fyrri mgr.
5.gr. skal í fyrstu úthluta sem hér segir:
1. Deila skal tölu gildra atkvæða í hverju kjördæmi með
þingsætatölu þess og kallast útkoman kjördæmistala.
Brot úr heilli tölu skal fella niður.
2. Fyrst skal úthluta þingsæti þeim lista sem flest atkvæði
hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga kjör-
dæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú hefur
hæsta atkvæðatölu o.s.frv. Með atkvæðatölu lista er átt
við atkvæði sem listinn hlaut að frádreginni kjördæmis-
tölu svo oft sem hann hefur hlotið þingsæti.
3. Uthlutaskalskv.ákvæðumþessarargreinarsvomörgum
þingsætum að nemi 3/4 af þingsætatölu kjördæmisins.
Ef þá stendur á broti skal velja næstu heila tölu fyrir
ofan.
Nú hefur sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en
nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hrnn þá ekki tilkall til
þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans frá
gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmistöluna
að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista, sem
næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft sem
þarf. Ákvörðun kjördæmistölu með þessum hætti skal lokið
áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst.
112. gr.
Skipting óráðstafaðra þingsœta.
Þingsætum skv. 5. gr., sem hefur ekki enn verið úthlutað til
lista, skal skipt milli landsframboða samkvæmt ákvæðum
þessarar greinar. Við þá skiptingu koma til álita þau lands-
framboð ein sem hlotið hafa þingsæti skv. 111. gr.
Til þess að finna hvemig skipta ber þingsætum skv. fyrri mgr.
þessarar greinar milli landsframboða skal fara þannig að:
1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hverju lands-
framboði, skal deila með tölu sem er 1, 2, 3 o. s. frv.
hærri en tala þeirra þingsæta sem það hefur þegar hlotið
skv. ákvæðum 111. gr. Útkomutölurnar eru skráðar
fyrir hvert framboð.
2. Þá skal úthluta þingsætum til landsframboða, einu í
senn. Fyrst fer sæti til þess landsframboðs sem hæsta
útkomutölu hefur. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst
fer þingsæti til þess landsframboðs sem nú hefur hæsta
útkomutölu o. s. frv. uns öllum þingsætum hefur verið
úthlutað.
113. gr.
Uthlutun þingsæta skv. kosningaúrslitum á landinu öllu.
Listarsem til álita koma. Við úthlutun þingsæta, sem hefur
verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita
þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k.
þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv.
111. gr. Þá skal einungis ráðstafa þingsæti í kjördæmi sem
hefur ekki þegar hlotið fulla þingsætatölu.
Akvörðun kjördœmistölu. Kjördæmistölu skal einungis
miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun
þingsæta skv. þessari grein. I þvískyni skal fylgja eftirfarandi
reglum:
a. Áður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmistölur að
nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum
þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein.
b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari úthlutun með
því að draga frá atkvæðum hans hina nýju kjördæmistölu
skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsæti.
c. Þegarþingsætierúthlutaðtil listaskv. þessarigrein skal
lækka atkvæðatölu hans sem nemur kjördæmistölu
hverju sinni.
d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur Iista, sbr. a- og b-lið,
skal reikna að nýju jafnóðum og hvert landsframboð
hlýtur fulla tölu þingsæta.
Afangar við úthlutun þingsæta. Þingsætum skv. þessari
grein skal úthluta íþremuráföngum. Úthlutaskal sæti hverju
sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af
kjördæmistölu. Halda skal áfram úthlutun innan hvers áfanga
svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun kjör-
dæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt næsta
áfanga hefst.
1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með
atkvæðatölu sem nemur 4/5 af kjördæmistölu eða meira.
Þessum áfanga lýkur jafnskjótt og ekki finnast fleiri
slíkar atkvæðatölur, enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr.
áður verið beitt ef við á.
2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til
hvers kjördæmis sem ekki hlaut úthlutun í fyrsta áfanga.
I þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann
ekki fengið a.m.k. 7% gildra atvæða í kjördæmi sínu.
3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjördæmum.
114. gr.
Takist ekki að fy lla tölu þingsæta í kjördæmi með ákvæðum
3. tölul. 3. mgr. 113. gr. skal ljúka úthlutun í hverju slíku
kjördæmi eftir reglum 1. og 2. tölul. 111. gr. þrátt fyrir
skiptingu þingsæta skv. 112. gr.
Ef tvær eða fleiri tölur eru jafnháar þegar að þeim kemur
við úthlutun skv. þessum kafla skal hluta um röð þeirra.
Nú eru of fá nöfn á lista til þess að unnt sé að ljúka úthlutun
til hans skv. þessum kafla og skal þá ganga fram hjá þeim
lista.
Ef einungis einn listi er í kjöri hlýtur hann öll þingsæti
kjördæmisins."