Alþingiskosningar - 01.09.1995, Síða 36

Alþingiskosningar - 01.09.1995, Síða 36
34 Alþingiskosningar 1995 á sama hátt nema að hún fór að öllu leyti eftir listanum eins og hann var eftir breytingar. Samkvæmt þeim reglum sem nú gilda skipta frambjóðendur um sæti ef meiri hiuti kjósenda færir einn niður fyrir annan með yfirstrikun eða nýrri tölusetningu. 10. Kjörnir þingmenn Elected Members ofthe Althingi I töflu 9 eru taldir kjörnir þingmenn og varamenn í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1995. Þar er sýnt hvaða stjómmálasamtök þeir eru kjörnir fyrir og úthlutunartölur þær sem kjör þeirra byggist á og lýst er í töflum 4-8 og í 8. og 9. kafla þessa inngangs. Fimm þingmenn kjörnir í alþingiskosningunum 1991 afsöluðu sér þingmennsku á kj örtímabi 1 i nu: Eiður Guðnason 1993, Jón Sigurðsson 1993, Karl Steinar Guðnason 1993, IngibjörgSólrúnGísladóttir 1994 ogSteingrímurHermanns- son 1994. Varamenn þeirra tóku sæti á Aiþingi sem aðalmenn: Gísli S. Einarsson (f. 12. desember 1945), Petrína Baldursdóttir (f. 18. september 1960), Guðmundur Arni Stefánsson (f. 31. október 1955), Guðrún J. Halldórsdóttir (f. 28. febrúar 1935) og Jóhann Einvarðsson (f. 10. ágúst 1938). Einn þingmaður sem setið hafði sem aðalmaður við lok nýliðinskjörtímabils varekkiíframboði, Ingi Björn Alberts- son. Af fráfarandi þingmönnum voru sjö svo neðarlega á lista að þeir stefndu augljóslega ekki að endurkjöri: Anna Olafs- dóttir Björnsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Jón Helgason, Kristín Einarsdóttir, Matthías Bjarnason, Pálmi Jónsson og Salome Þorkelsdóttir. Tveir þingmenn tóku sæti neðar á lista en nægði til kjörs í kosningum 1991. Guðrún Helgadóttir var (4. sæti álistaen listinn hafði haft tvo þingmenn í kjördæminu. Ólafur Þ. Þórðarson var í 2. sæti á lista en listinn hafði fengið einn þingmann kjörinn í síðustu kosningum. Sex þingmenn sem sóttust eftir endurkjöri náðu ekki kosningu: Eggert Haukdal, Gunnlaugur Stefánsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Jóhann Arsælsson og Sigbjörn Gunnarsson. Kjöri náðu 44 af fráfarandi þingmönnum en nýkosnir þingmenn voru 19: Arnbjörg Sveinsdóttir. Agúst Einarsson, AstaR. Jóhannesdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, EinarOddur Kristjánsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Gunnlaugur M. Sigmundsson, Hjálmar Arnason, Hjálmar Jónsson, Isólfur Gylfi Pálmason, Kristín Halldórsdóttir, Kristján Pálsson, Lúðvík Bergvinsson, Magnús Stefánsson, Ólafur Örn Haraldsson, Pétur H. Blöndal, Siv Friðleifsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Ögmundur Jónasson. Einn hinna nýkjörnu þingmanna, Kristín Halldórsdóttir, átti sæti á Alþingi sem aðalmaður árin 1983-1989. Agúst Einarsson, Asta R. Jóhannesdóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir, Hjálmar Jónsson og Svanfríður Jónasdóttir höfðu tekið sæti á Alþingi sem varamenn. Einn hinna endurkjörnu þingmanna var nú kjörinn fyrir annan flokk en 1991, Jóhanna Sigurðar- dóttir, sem var áður þingmaður Alþýðuflokks en bauð sig nú fram fyrir Þj óðvaka. Agúst Einarsson, Asta R. Jóhannesdóttir og Svanfríður Jónasdóttir sem öll voru kjörin fyrir Þjóðvaka höfðu tekið sæti á alþingi sem varamenn fyrir annan flokk. í aftasta dálki í töflu 10 sést atkvæðatala sem h ver þingmaður hlaut í sitt sæti á lista eða ofar. Breytingar á listum breyttu engu um röð manna á þeim í alþingiskosningunum 1995 fremur en í fyrri kosningum. Ágúst fyrir Alþýðuflokk, Ásta fyrir Framsóknarflokk og Svanfríður fyrir Alþýðubandalag. Eftirfarandi yfirlit sýnir hve margir þeirra, sem kjörnir hafa verið á Alþingi síðan núverandi kjördæmaskipan komst á haustið 1959, áttu lögheimili í kjördæminu sem þeirbuðu sig fram í og hve margir utan þess: Innan Utan Alls kjördæmis kjördæmis 1959 60 49 11 1963 60 45 15 1967 60 49 11 1971 60 51 9 1974 60 50 10 1978 60 47 13 1979 60 49 11 1983 60 50 10 1987 63 53 10 1991 63 57 6 1995 63 59 4 Þingmennirnir fjórir sem áttu lögheimili utan kjördæmis síns bjuggu í Reykjavík en voru í framboði utan Reykjavíkur og Reykjaness. Kjörnir voru 47 karlar og 16 konur, en 48 karlar og 15 konur 1991. 121. yfirliti er sýndur fjöldi karla og kvenna sem náð hafa kjöri frá því Alþingi fékk löggjafarvald árið 1874. Konur urðu kjörgengar árið 1915. I töflu 9 er skráður fæðingardagur og -ár allra þeirra sem kosningu hlutu 1995. Þeir skiptust þannig eftir aldri: 30-39 ára Samtals 9 Karlar 6 Konur 3 40-49 ára 28 18 10 50-59 ára 23 20 3 60-69 ára 3 3 - Samtals 63 47 16 Elstur þeirra sem kosningu náðu var Egill Jónsson, 64 ára en yngstur Lúðvík Bergvinsson, 30 ára. Meðalaldur þing- manna á kjördegi var 47,7 ár. I 21. yfirliti er sýndur meðal- aldur þingmanna á kjördegi 1874-1995. Ragnar Arnalds hefur setið á Alþingi lengst nýkjörinna þingmanna þótt hann hafi ekki átt samfellda þingsetu. Hann var fyrst kjörinn þingmaður árið 1963 og hefur átt sæti á Alþingi sem aðalmaður í 27,8 ár talið frá kjördegi til kjördags. Þeir43 þingmenn, semkjörnir voru 8. aprfl 1995 og átthöfðu sæti sem kjörnir aðalmenn á þingi áður, áttu að meðaltali 9,6 ára þingsetu að baki.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Alþingiskosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.