Alþingiskosningar - 01.03.2002, Blaðsíða 25

Alþingiskosningar - 01.03.2002, Blaðsíða 25
Alþingiskosningar 1999 23 8. Úthlutun þingsæta Allocation of seats in the Althingi Þegar landskjörstjórn hafa borist allar skýrslur um kosningaúrslit í kjördæmum kemur hún saman til þess að úthluta þingsætum. Akvæði kosningalaga um úthlutunina eru í XIV. kafla. I 111.-115. gr. eru ákvæði um úthlutun þingsæta til landsframboða. Tekið skal fram að með landsframboði er í lögunum átt við þá framboðslista sem saman eigaþegar þingsætum erúthlutað skv. 112. og 113. gr. Þeir geta verið úr einu kjördæmi eða fleirum. Þessi ákvæði farahér á eftir (að hluta í 9. kafla) en efni 5. gr., sem vísað er til, var rakið í 1. kafla þessa inngangs: „111. gr. Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum í kjördœmum. Þingsætum hvers kjördæmis skv. a- og b-lið fyrri mgr. 5. gr. skal í fyrstu úthluta sem hér segir: 1. Deila skal tölu gildra atkvæða í hverju kjördæmi með þingsætatölu þess og kallast útkoman kjördæmistala. Brot úr heilli tölu skal fella niður. 2. Fyrst skal úthluta þingsæti þeim lista sem flest atkvæði hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga kjördæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú hefúrhæsta atkvæðatölu o. s. frv. Með atkvæðatölu lista er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frádreginni kjördæmistölu svo oft sem hann hefúr hlotið þingsæti. 3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar svo mörgum þingsætum að nemi 3/4 af þingsætatölu kjördæmisins. Ef þá stendur á broti skal velja næstu heila tölu fyrir ofan. Nú hefúr sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hann þá ekki tilkall til þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans frá gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmis- töluna að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista, sem næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft sem þarf. Ákvörðun kjördæmistölu með þessum hætti skal lokið áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst. H2.gr. Skipting óráðstafaðra þingsœta. Þingsætum skv. 5. gr., sem hefur ekki enn verið úthlutað til lista, skal skipt milli landsframboða samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Við þá skiptingu koma til álita þau landsframboð ein sem hlotið hafa þingsæti skv. 111. gr. Til þess að fínna hvernig skipta ber þingsætum skv. fyrri mgr. þessarar greinar milli landsframboða skal fara þannig að: 1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hverju landsframboði, skal deila með tölu sem er 1,2,3 o. s. frv. hærri en tala þeirra þingsæta sem það hefur þegar hlotið skv. ákvæðum 111. gr. Útkomutölurnar eru skráðar fyrir hvert framboð. 2. Þá skal úthluta þingsætum til landsframboða, einu í senn. Fyrst fer sæti til þess landsframboðs sem hæsta útkomutölu hefúr. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst fer þingsæti til þess landsframboðs sem nú hefur hæsta útkomutölu o. s. frv. uns öllum þingsætum hefur verið úthlutað. 113. gr. Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum á landinu öllu. Listar sem til álita koma. Við úthlutun þingsæta, sem hefúr verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k. þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv. 111. gr. Þá skal einungis ráðstafa þingsæti í kjördæmi sem hefur ekki þegar hlotið fúlla þingsætatölu. Akvörðun kjördœmistölu. Kjördæmistölu skal einungis miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun þingsæta skv. þessari grein. I því skyni skal fylgj a eftirfarandi reglum: a. Áður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmistölur að nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein. b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari úthlutun með þvíaðdragafráatkvæðumhanshinanýjukjördæmistölu skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsæti. c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv. þessari grein skallækkaatkvæðatöluhanssemnemurkjördæmistölu hverju sinni. d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a- og b-lið, skal reikna að nýju jaínóðum og hvert landsframboð hlýtur fúlla tölu þingsæta. Afangar við úthlutun þingsœta. Þingsætum skv. þessari grein skal úthluta í þremur áföngum. Úthluta skal sæti hverju sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af kjördæmistölu. Haldaskal áfram úthlutun innanhversáfanga svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt næsta áfanga hefst. 1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með atkvæðatölu sem nemur 4/5 af kjördæmistölu eða meira. Þessum áfanga lýkur jaíhskjótt og ekki finnast fleiri slíkar atkvæðatölur. enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr. áður verið beitt ef við á. 2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til hvers kjördæmis sem ekki hlaut úthlutun í fyrsta áfanga. I þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann ekki fengið a.m.k. 7% gildra atvæða í kjördæmi sínu. 3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjördæmum. 114. gr. T akist ekki að fylla tölu þingsæta í kj ördæmi með ákvæðum 3. tölul. 3. mgr. 113. gr. skal ljúka úthlutun í hverju slíku kjördæmi eftir reglum 1. og 2. tölul. 111. gr. þrátt fyrir skiptingu þingsæta skv. 112. gr. Ef tvær eða fleiri tölur eru jafnháar þegar að þeim kemur við úthlutun skv. þessum kafla skal hluta um röð þeirra. Nú eru of fá nöfn á lista til þess að unnt sé að ljúka úthlutun til hans skv. þessum kafla og skal þá ganga fram hjá þeim lista. Ef einungis einn listi er í kjöri hlýtur hann öll þingsæti kjördæmisins.“ í 4. mgr. 115. gr. segir: „Framboðslisti í kjördæmi, sem hlotið hefur þingmann eða þingmenn kjörna, hefur rétt til jafnmargra varaþingmanna meðan nöfn endast á listanum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Alþingiskosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.