Alþingiskosningar - 01.03.2002, Blaðsíða 27

Alþingiskosningar - 01.03.2002, Blaðsíða 27
Alþingiskosningar 1999 25 kostur er að hver þingflokkur fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína. Er þá heimilt að úthluta allt að ijórðungi þingsæta hvers kjördæmis, þeim sem bundin eru og þeim sem ráðstafað er fyrir kosningar, með hliðsjón af kosningaúrslitum á landinu öllu. Úthlutun þingsætatil landsffamboðaeftirúrslitumálandinu öllu, samkvæmt 112. gr. kosningalaga, er sýnd í töflu 7. Vinstrihreyfingin -grænt framboð hlaut 4 sæti, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur hlutu 3 sæti hvort, Framsóknarflokkur 2ogFrjálslyndifIokkurinn 1 sæti. HefurFramsóknarflokkur aldrei áður hlotið svokölluð uppbótarsæti, þ.e. hvorki þingsæti samkvæmt 112. grein núverandi kosningalaga né heldur landskjörna þingmenn samkvæmt kosningalögunum frá 1934 og 1959. Til þess að ráðstafa þessum 13 þingsætum þarl' fyrst að reikna kjördæmistölu að nýju samkvæmt 2. mgr. 113. gr. kosningalaga. Sá reikningur er sýndur í töflu 8. Úthlutun þingsæta samkvæmt 113.gr. kosningalaga skiptist þannig á áfangana sem ákveðnir eru í 3. mgr.: 6 sætum var úthlutað í fyrsta áfanga, 3 í öðrum og 4 í þriðja áfanga. I töflu 9 er sýnt hvemig þingsætum var úthlutað samkvæmt 113. gr. í 17. yfirliti er sýnd tala þingsæta sem hvert lands- framboð hlaut í hverju kjördæmi, í heild og eftir úthlutunar- reglum 111. og 113. gr. Alls hlaut Sjálfstæðisflokkur 27 þingsæti, Samfylkingin 17, Framsóknarflokkur 12, Vinstri- hreyfingin - grænt framboð 6 og Frjálslyndi flokkurinn 2 þingsæti. I töflu 7 sést hve mörg atkvæði reyndust að baki hverju þingsæti landsframboðanna. Að lokinni úthlutun allra þingsæta eru flest atkvæði að baki þingmanna Frjálsynda flokksins, 3.460. Samfylkingin hefur 2.611 atkvæði að baki hverjum þingmanni, Sjálfstæðisflokkur 2.597, Framsóknar- flokkur 2.535 og Vinstrihreyfingin - grænt framboð 2.519. Þar sem öll stjórnmálasamtökin firnm hlutu þingsæti samkvæmt 112. grein kosningalaga náðist samkvæmt eðli máls fullurjöfnuðurmilli þeirravið úthlutun þingsæta. Þó að Framsóknarflokkur hlyti ekki þingsæti samkvæmt þeirri grein í kosningunum 1991 og 1995 náðist einnig fullur jöfnuður þá því að þegar lokið var úthlutun allra þingsæta átti ekkert landsframboðanna óúthlutað sæti með hærri atkvæða- tölu að baki en var að baki þingmanna Framsóknarflokks. 9. Breytingar á framboðslistum Changes in candidate lists Samkvæmt kosningalögum er kjósanda heimilað að breyta röð frambjóðenda á þeim lista er hann kýs með því að rita tölustafmn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst, töluna 2 fýrir framan það nafn sem hann vill hafa annað í röðinni o. s. frv. Vilji kjósandi hafna frambjóðanda á þeim listasemhannkýsstrikarhannyfirnafnhans. Frambjóðandinn hlýtur þá ekkert atkvæði af þeim seðli en þeir sem neðar standa á listanum færast upp um sæti.50 I kosningalögum segir hvemig fmna skal hverjir fram- bjóðendur hafi náð kosningu á hverjum lista í kjördæmi. Reikna skal frambjóðendum atkvæðatölu á eftirfarandi hátt: 50 2. og 3. mgr. 84. gr. laga nr. 80/1987. „Yfirkjörstjóm tekur saman þá kjörseðla þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafh listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv. Næst tekur yfirkjörstjóm alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverj ar breytingar á röð frambj óðendaogtelur atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti listans. Landskjörstjórnskalraðanöfnumframbjóðendaáhverjum lista þannig að sá, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti, samkvæmt næstu málsgrein hér á undan, hlýtur það sæti. Sá frambjóðandi, að þessum slepptum, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt, hlýtur 2. sætið o. s. frv. uns raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans að ljóst sé hverjir teljast þingmenn hans í kjördæminu og hverjir varaþingmenn.“51 Reglur þessar eru allt aðrar en þær sem giltu frá hausti 1959 til 1983. Samkvæmtþeimreglumskyldireiknaframbjóðanda atkvæðatölu að tveim þriðju hlutum eins og engin breyting hefði verið gerð á listanum, en að einum þriðja hluta eftir listanum að teknu tilliti til breytinga. Fyrsta sæti á lista hlaut atkvæðatölu listans, hvert sæti er á eftir fór hlaut það brot af þessari atkvæðatölu að í teljara væri tala þeirra þingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti, að frádreginni tölu þeirra sæta sem á undan voru álistanum, og í nefnaratalaþeirraþingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti.52 Fram til sumars 1959 var atkvæðatala frambjóðenda reiknuð á sama hátt nema að hún fór að öllu leyti eftir lista- num eins og hann var eftir breytingar.53 Samkvæmt þeim reglum sem nú gilda skipta frambj óðendur um sæti ef meiri hluti kjósenda færir einn niður fyrir annan með yfirstrikun eða nýrri tölusetningu. í aftasta dálki í töflu 10 sést atkvæðatala sem hver þing- maður hlaut í sitt sæti á lista eða ofar. Breytingar á listum breyttu engu um röð manna á þeim í alþingiskosningunum 1999 fremur en í fyrri kosningum - að undanskyldum kosningum í Reykjavík árið 1946. 10. Kjörnir þingmenn Elected Members of the Althingi í töflu 10 eru taldir kjörnir þingmenn og varamenn í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1999. Þar er sýnt hvaða stjómmálasamtök þeir eru kjörnir fyrir og úthlutunartölur þær sem kjör þeirra byggist á og lýst er í töflum 5-9 og í 8. og 9. kafla þessa inngangs. Þrír þingmenn kjörnir í alþingiskosningunum 1995 afsöluðu sér þingmennsku á kjörtímabilinu. Olafur Ragnar Grímsson, semtók við embætti forsetaíslands 1. ágúst 1996, afsalaði sér þingsetu í júlí 1996 er hann hafði verið kosinn til þess embættis. Sæti hans tók Sigríður Jóhannesdóttir (f. 10. júní 1943). Jón Baldvin Hannibalsson sagði af sér þing- mennsku í janúar 1998 og tók Ásta B. Þorsteinsdóttir (f. I. desember 1945) sæti hans. Hún lést 12. október 1998 ogtók Magnús Árni Magnússon (f. 14. mars 1968) sæti hennar. 51 2. og 3. mgr. 115. gr. laga nr. 80/1987. 52 84. gr. laga nr. 52/1959. 53 7. gr. laga nr. 11/1920 og síðar 88. gr. laga nr. 18/1934 (varðar aðeins Reykjavík) og enn síðar 88. gr. laga nr. 80/1942 (varðar Reykjavík og 6 önnur kjördæmi með hlutbundna kosningu).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Alþingiskosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþingiskosningar
https://timarit.is/publication/1387

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.