Alþingiskosningar - 01.03.2002, Síða 25
Alþingiskosningar 1999
23
8. Úthlutun þingsæta
Allocation of seats in the Althingi
Þegar landskjörstjórn hafa borist allar skýrslur um
kosningaúrslit í kjördæmum kemur hún saman til þess að
úthluta þingsætum. Akvæði kosningalaga um úthlutunina
eru í XIV. kafla. I 111.-115. gr. eru ákvæði um úthlutun
þingsæta til landsframboða. Tekið skal fram að með
landsframboði er í lögunum átt við þá framboðslista sem
saman eigaþegar þingsætum erúthlutað skv. 112. og 113. gr.
Þeir geta verið úr einu kjördæmi eða fleirum. Þessi ákvæði
farahér á eftir (að hluta í 9. kafla) en efni 5. gr., sem vísað er
til, var rakið í 1. kafla þessa inngangs:
„111. gr.
Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum í kjördœmum.
Þingsætum hvers kjördæmis skv. a- og b-lið fyrri mgr. 5.
gr. skal í fyrstu úthluta sem hér segir:
1. Deila skal tölu gildra atkvæða í hverju kjördæmi með
þingsætatölu þess og kallast útkoman kjördæmistala.
Brot úr heilli tölu skal fella niður.
2. Fyrst skal úthluta þingsæti þeim lista sem flest atkvæði
hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga
kjördæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú
hefúrhæsta atkvæðatölu o. s. frv. Með atkvæðatölu lista
er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frádreginni
kjördæmistölu svo oft sem hann hefúr hlotið þingsæti.
3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar svo mörgum
þingsætum að nemi 3/4 af þingsætatölu kjördæmisins.
Ef þá stendur á broti skal velja næstu heila tölu fyrir
ofan.
Nú hefúr sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en
nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hann þá ekki tilkall til
þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans
frá gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmis-
töluna að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista,
sem næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft
sem þarf. Ákvörðun kjördæmistölu með þessum hætti skal
lokið áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst.
H2.gr.
Skipting óráðstafaðra þingsœta.
Þingsætum skv. 5. gr., sem hefur ekki enn verið úthlutað
til lista, skal skipt milli landsframboða samkvæmt ákvæðum
þessarar greinar. Við þá skiptingu koma til álita þau
landsframboð ein sem hlotið hafa þingsæti skv. 111. gr.
Til þess að fínna hvernig skipta ber þingsætum skv. fyrri
mgr. þessarar greinar milli landsframboða skal fara þannig
að:
1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hverju
landsframboði, skal deila með tölu sem er 1,2,3 o. s. frv.
hærri en tala þeirra þingsæta sem það hefur þegar hlotið
skv. ákvæðum 111. gr. Útkomutölurnar eru skráðar
fyrir hvert framboð.
2. Þá skal úthluta þingsætum til landsframboða, einu í
senn. Fyrst fer sæti til þess landsframboðs sem hæsta
útkomutölu hefúr. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst
fer þingsæti til þess landsframboðs sem nú hefur hæsta
útkomutölu o. s. frv. uns öllum þingsætum hefur verið
úthlutað.
113. gr.
Uthlutun þingsœta skv. kosningaúrslitum á landinu öllu.
Listar sem til álita koma. Við úthlutun þingsæta, sem hefúr
verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita
þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k.
þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv.
111. gr. Þá skal einungis ráðstafa þingsæti í kjördæmi sem
hefur ekki þegar hlotið fúlla þingsætatölu.
Akvörðun kjördœmistölu. Kjördæmistölu skal einungis
miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun
þingsæta skv. þessari grein. I því skyni skal fylgj a eftirfarandi
reglum:
a. Áður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmistölur að
nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum
þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein.
b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari úthlutun með
þvíaðdragafráatkvæðumhanshinanýjukjördæmistölu
skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsæti.
c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv. þessari grein
skallækkaatkvæðatöluhanssemnemurkjördæmistölu
hverju sinni.
d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a- og b-lið,
skal reikna að nýju jaínóðum og hvert landsframboð
hlýtur fúlla tölu þingsæta.
Afangar við úthlutun þingsœta. Þingsætum skv. þessari
grein skal úthluta í þremur áföngum. Úthluta skal sæti hverju
sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af
kjördæmistölu. Haldaskal áfram úthlutun innanhversáfanga
svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun
kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt
næsta áfanga hefst.
1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með
atkvæðatölu sem nemur 4/5 af kjördæmistölu eða meira.
Þessum áfanga lýkur jaíhskjótt og ekki finnast fleiri slíkar
atkvæðatölur. enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr. áður verið
beitt ef við á.
2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til
hvers kjördæmis sem ekki hlaut úthlutun í fyrsta áfanga. I
þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann ekki
fengið a.m.k. 7% gildra atvæða í kjördæmi sínu.
3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjördæmum.
114. gr.
T akist ekki að fylla tölu þingsæta í kj ördæmi með ákvæðum
3. tölul. 3. mgr. 113. gr. skal ljúka úthlutun í hverju slíku
kjördæmi eftir reglum 1. og 2. tölul. 111. gr. þrátt fyrir
skiptingu þingsæta skv. 112. gr.
Ef tvær eða fleiri tölur eru jafnháar þegar að þeim kemur
við úthlutun skv. þessum kafla skal hluta um röð þeirra.
Nú eru of fá nöfn á lista til þess að unnt sé að ljúka úthlutun
til hans skv. þessum kafla og skal þá ganga fram hjá þeim
lista.
Ef einungis einn listi er í kjöri hlýtur hann öll þingsæti
kjördæmisins.“
í 4. mgr. 115. gr. segir: „Framboðslisti í kjördæmi, sem
hlotið hefur þingmann eða þingmenn kjörna, hefur rétt til
jafnmargra varaþingmanna meðan nöfn endast á listanum."