Víkurfréttir - 05.09.2019, Síða 20
20%
Ljósanæturafsláttur
miðvikudag til mánudags
Opnunartími
Miðvikudaginn, fimmtudaginn, föstudaginn 11:00 - 22:00
Steinanuddnámskeið í Reykjanesbæ
Jane Scrivner Stone Therapy
4.–6.október 2019
Steinanuddnámskeið í Om setrinu, Hafnar-
braut 6, Njarðvík; kennsla í meðferð á heitum
og köldum steinum fyrir sjúkranuddara,
heilsu nuddara, snyrtifræðinga og fleira fagfólk.
Námskeiðið er frá föstudegi til sunnudags.
Hámark 12 sem komast að.
Nánari upplýsingar og skráning á e-mail:
juliam@simnet.is, elsa@sjukranudd.is
Fyrir námskeiðinu stendur Elamy;
Júlía M Brynjólfsdóttir, lögg. sjúkra-
nuddari, hjúkrunarfræðingur og Elsa
Lára Arnardóttir lögg. sjúkranuddari
Þú finnur Elamy á facebook.
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Sara Dögg Gylfadóttir er hvorki meira né minna en félagsráð-gjafi, förðunarfræðingur, flautu-
leikari, fjölskyldumeðferðarfræðingur
og fjögurra barna móðir.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ég elska Ljósanótt, þá helst lista-
sýningarnar, tónlistina og að hitta
allt fólkið á röltinu. Ég er alltaf mjög
upptekin á Ljósanótt og tek sjálf þátt
í sýningum og menningarlífi. Það er
nóg að gera þessa helgi.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja?
„Ég fer á Með blik í auga, rölti Hafnar-
götuna á fimmtudeginum, er sjálf
með heimatónleika í stofunni heima á
föstudeginum og svo þarf maður auð-
vitað að taka röltið á laugardeginum
til að sjá listasýningar, tónleika og að
hitta fólk. Ég er líka sjálf með pop-up
tónleika hér og þar á Hafnargötunni
ásamt Birnu vinkonu minni á laugar-
deginum þar sem við komum fram
sem dúettinn Dúlludúskarnir.“
Hvað finnst þér ómissandi á Ljósa-
nótt?
„Að hitta allt fólkið og auðvitað við-
burðirnir. Mér finnst frábært að sjá
hvað allt lifnar við í bænum. Fólk
býður í mat, skreytir og kemur fram
með alls konar handverk og skemmti-
lega viðburði í tengslum við hátíðina.
Ég vil endilega fá meira svoleiðis
þar sem heimamenn brydda upp á
einhverju skemmtilegu. Svo er há-
punkturinn alltaf flugeldasýningin
á laugardeginum. Ég fæ alltaf tár í
augun, mér finnst þetta svo hátíð-
legt og skemmtilegt. Ég var sérstak-
lega ánægð að sjá að Gunni Þórðar er
búinn að leyfa aftur spilun á laginu
sínu, Gamli bærinn minn. Takk fyrir
það Gunni.“
Hverju af hátíðinni myndir þú mæla
með fyrir gesti?
„Fyrir heimamenn er Með blik í auga
geggjuð tónlistarhátíð og auðvitað
Heima í gamla bænum, heimatón-
leikarnir. Því miður eru færri sem
komast að en vilja en tónlistarunn-
endur eiga ekki að láta þessa viðburði
fram hjá sé fara. Fyrir aðra gesti þá
er laugardagurinn auðvitað aðalmálið
en ég myndi mæla með að fólk klæði
sig eftir veðri og taki sér góðan tíma
að rölta niður Hafnargötuna og njóti
þess að sjá hvað boðið sé upp á. Það
er eitthvað fyrir alla.“
Hver er eftirminnilegasta Ljósa-
nóttin þín?
„Ætli það sé ekki árið 2013 þegar ég
var kasólétt og farin að bíða eftir
barninu, sem kom svo eftir Ljósa-
nótt. Það var mjög róleg og skrýtin
Ljósanótt þar sem ég gat lítið gert og
var aðallega heima í rólegheitum og
sá flugeldasýninguna út um gluggann
í þvottahúsinu.“
Skúli Björgvin Sigurðsson er flugvirki, íþróttafréttaritari en fremst af öllu er hann faðir
fjöldans.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Ljósanótt er ómissandi viðburður
í menningarlífi bæjarins. Hún sam-
einar fjölskyldur, vini í hina ýmsu
viðburði sem gerir tilveruna litríkari
í miðju haustlægðanna.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja?
„Ég ætlaði mér á heimatónleikana en
miðar seldust upp á nanósekúndu. Ég
auglýsi hér með eftir tveimur miðum.
Annars er líklegt að ég mæti í árganga-
gönguna og á einhverjar myndlista-
sýningar. Það væri gaman að mæta á
Hjöbbquiz á Paddy´s og vinna kassa
af einum „skítköldum” en svo eru
yfirgnæfandi líkur að ég komi við á
viðburðum fyrir litlu púkana mína.“
Hvað finnst þér ómissandi á Ljósa-
nótt?
„Hátíðin í heild sinni er ómissandi
finnst mér. Það er búið að vera gaman
að fylgjast með því hvernig hátíðin
hefur stækkað með árunum.“
Hverju af hátíðinni myndir þú mæla
með fyrir gesti?
„Mér finnst alltaf notalegt að tölta um
og skoða myndlistarsýningarnar. Þar
er gítarleikari Hippa í Handbremsu,
Stebbi „Lefty” (Stefán Jónsson) í uppá-
haldi hjá mér í hópi annars frábærra
listamanna.“
Hver er eftirminnilegasta Ljósa-
nóttin þín?
„Það er í raun engin ein sem stendur
upp úr. Þær hafa þróast með eigin
aldri og upplifun hverrar hátíðar í
takt við það.“
Thelma Hrund Tryggvadóttir er uppalin Keflvíkingur en býr nú í Njarðvík ásamt kærastanum
sínum, syni þeirra og hundinum Arró.
Hún starfar hjá DHL og þolir ekki að
vera í sokkum.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Mér finnst Ljósanótt æðisleg. Það er
frábært að sjá svona mikið líf í bænum
og að hitta alla á röltinu.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja?
„Ég ætla á heimatónleikana, Skoppu
og Skrítlu í Hljómahöllinni, árganga-
gönguna, tónleikana á stóra sviðinu
svo eitthvað sé nefnt.“
Hvað finnst þér ómissandi á Ljósa-
nótt?
„Fjölskylduboð hjá Bigga og Höllu
og að rölta öll saman niður í bæ á
tónleikana og sjá flugeldasýninguna.“
Hverju af hátíðinni myndir þú mæla
með fyrir gesti?
„Ég mæli með að fara niður í bæ
og rölta, skoða myndlistasýningar
og horfa á flugeldasýninguna um
kvöldið.“
Hver er eftirminnilegasta Ljósa-
nóttin þín?
„Þær standa allar upp úr.“
Horft á flugeldana
úr þvottahúsinu
Óskar eftir miðum
í Gamla bæinn
Fjölskylduboð hjá Bigga og Höllu
Gullkistan á
Bryggjuballinu
Hljómsveitin Gullkistan leikur
í fyrsta skipti í Reykjanesbæ á
Ljósanótt. Hún hefur verið kölluð
„besta sixtís hljómsveit á Íslandi-
ever“. Liðsmenn Gullkistunnar
eru landsþekktir og hófu allir feril
sinn í tónlist á sjöunda áratugnum.
Heimamenn þekkja að sjálfsögðu vel
til Gunnars Þórðarsonar og Magn-
úsar Kjartanssonar en auk þeirra
skipa sveitina trommarinn Ásgeir
Óskarsson úr Stuðmönnum, Jón
Ólafsson bassaleikari og Óttar Felix
Hauksson gítarleikari úr Pops. Það
er sannarlega tilhlökkunarefni að
sjá þessa snillinga saman á sviði.
Gullkistan kemur fram á Bryggju-
balli Ljósanætur föstudagskvöldið 6.
september kl. 19:30 segir í tilkynn-
ingu frá Gullkistunni.
Gullkistan kemur fram á
bryggjuballi Ljósanætur.
Stálu rándýrum
snyrtivörum í
Fríhöfninni
Lögreglan á Suðurnesjum rann-
sakar nú tvö þjófnaðarmál sem
upp komu í komuverslun frí-
hafnarinnar fyrr í mánuðinum.
Tveir einstaklingar sem versluðu
þar eru grunaðir um að hafa
tekið dýrar snyrtivörur og áfengi
og stungið því undan án þess að
greiða fyrir. Söluverðmæti snyrti-
varanna nemur tugum þúsunda
króna.
20 LJÓSANÓTT 20 ÁRA f immtudagur 5. september 2019 // 33. tbl. // 40. árg.