Fréttablaðið - 30.10.2019, Page 4

Fréttablaðið - 30.10.2019, Page 4
Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is 1 Um mæli biskups um sið rof þjóðarinnar falla í grýttan jarð veg Einungis þriðjungur ber mikið traust til þjóð kirkjunnar og ní tján prósent eru á nægð með störf biskupsins. 2 Skólasaga nemenda á Íslandi gæti horfið Sérfræðingur hjá Gagnaþjónustu Reykjavíkurborgar segir erfitt að varðveita gögnin. 3 Lög reglan í trekar að varanir Veður stofu Ís lands Búast mátti við frost rigningu á Suður­ landi, sér stak lega á vegum austan Hellis heiðar að Hvols velli og í upp sveitum. 4 Lést í kjöl far sprengingar í kynja veislu At vikið átti sér stað í Kn ox vil le í Iowa. 5 Fyrr verandi for stjóri Matís á kærður eftir um deildar slátu r að ferðir Sveini var sagt upp störfum í desember síðast liðnum vegna „trúnaðar brests“. S JÁVARÚT VE G U R Samkeppnis- eftirlitið hefur ákveðið að ekki sé ástæða til að aðhafast neitt vegna kaupa Ramma hf., sem vinnur rækju á Siglufirði og fisk í Þor- lákshöfn, á öllu hlutafé í Sigur- birni hf., í Grímsey. Af laheimildir Sigurbjörns eru um 1.000 þorsk- ígildistonn og hafa um níu manns starfað hjá fyrirtækinu að jafnaði. Tilkynnt var um kaupin, með fyrir- vara um samþykki Samkeppniseft- irlitsins, um miðjan mánuð og varð það tilefni til umræðu um framtíð byggðar í eynni. Grímsey hefur um nokkurra ára skeið tekið þátt í verkefni Byggðastofnunar um brothættar byggðir, en sjávarútvegur er grund- völlur búsetu og aðalatvinnuvegur Grímseyinga, eins og fram kemur á vef Byggðastofnunar. – jþ Þúsund tonna fiskkvóti fer úr Grímsey Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is 50% Afsláttur Olíulitir, vatnslitir, akrýlitir, penslar, trönur, flúraðir rammar, o.fl. o.fl. ÚTSALA - ÚTSALA Opið 8 - 16 UTANRÍKISMÁL Breski f lugherinn, RAF, mun koma til Íslands í annarri viku nóvembermánaðar og sinna loftrýmisgæslu, sem stendur vana- lega í þrjár til fjórar vikur. Er það í fyrsta sinn sem Bretar hafa viðveru hér síðan þeir hertóku landið í seinni heimsstyrjöldinni. Sendar verða orrustuþotur af gerðinni Typhoon, sem þýsku, ítölsku og spænsku loftherirnir nota einnig. Hinar bresku Typhoon vélar eru reglulega notaðar, bæði á Falk- landseyjum og í Miðausturlöndum. Bretar komu hingað þann 10. maí árið 1940 en rúmu ári síðar var samið um að Bandaríkin tækju að sér hervörsluna. Í þorskastríðunum sigldu herskip hennar hátignar inn í íslenska lögsögu til varnar breskum togurum og mættu þá íslenskum varðskipum. Eftir að bandaríski herinn kvaddi landið 2006 hafa NATO-ríkin skipst á um að sinna loftrýmisgæslu við Ísland, og Bandaríkin langoftast. Árið 2008 var komið að Bretum en hætt var við það vegna Icesave- deilnanna og hryðjuverkalöggjafar- innar sem Bretar settu á Ísland. – khg Breski herinn verður með viðveru á Íslandi í fyrsta sinn frá seinna stríði Rétturinn til að gleymast varð til árið 2014 vegna aukins aðgangs að upplýsingum með tilkomu veraldarvefsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI DÓMSMÁL Nöfn þeirra sem hlotið hafa dóm fyrir refsivert brot verða afmáð úr dómum á vefsíðum dóm- stólanna einu ári eftir birtingu, sé þess óskað. Kveðið er á um þetta í nýjum reglum sem Dómstólasýslan hefur sett um birtingu dóma og úrskurða á vefsíðum íslenskra dóm- stóla. Reglan gildir einnig um aðila einkamáls sem óska nafnleyndar og tekur til bæði einstaklinga og lögaðila eftir atvikum. „Þessi regla var þegar í gildi fyrir héraðsdómstólana en gildir nú fyrir öll dómstigin,“ segir Benedikt Bogason, formaður stjórnar dóm- stólasýslunnar. Hann segir að helsta breytingin sé fólgin í því að nú gildi samræmdar reglur fyrir öll dóm- stigin og hver og einn dómstóll beri ábyrgð á því að reglunum sé fylgt. Unnið hefur verið að breyttu fyrirkomulagi um birtingu dóma um nokkurt skeið, ekki síst vegna sjónarmiða um persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Skiptar skoðanir um málið komu meðal annars fram á málþingi Dómstólasýslunnar síð- asta haust. Í erindi Ingibjargar Þor- steinsdóttur, formanns Dómara- félags Íslands, kom meðal annars fram að takmarkanir á birtingu dóma gætu komið illa við almenn- ing, með vísan til aukins vantrausts til dómstólanna, ekki síst í kyn- ferðisbrotamálum. Ingibjörg lýsti einnig efasemdum um nafnleynd þeirra sem sakfelldir eru fyrir refsi- verð brot. „Ég er nú bara þeirrar skoðunar að nöfn þeirra geti átt erindi við almenning,“ sagði Ingi- björg í erindi sínu. Í reglunum, sem birtar voru 14. október á vef Dómstólasýslunnar er miðað við að nafnleyndar sé gætt í dómsúrlausnum. Ákærði er þó nafngreindur ef hann er sakfelldur nema hann sé undir átján ára aldri eða nafnbirting hans sé andstæð hagsmunum brotaþola eða annarra vitna. Í einkamálum eru nöfn aðila birt nema sérstök ástæða sé til nafn- leyndar til dæmis vegna viðkvæmra persónulegra mála. Þegar ár er liðið frá birtingu dóms, hvort heldur er í einkamáli eða sakamáli, geta aðilar máls óskað eftir því að nafn þeirra sé afmáð og ber þá að verða við slíkri beiðni. Í reglunum eru taldar nokkrar tegundir dómsúrlausna sem ekki eru birtar á vef héraðsdómstólanna, svo sem úrskurði og dóma í barna- verndarmálum, forræðismálum, málum er varða nauðungarvistun, hjónaskilnaði og skipti milli hjóna, erfðamál, mál er varða kröfur um gjaldþrotaskipti, opinber skipti, nauðasamninga og greiðslustöðv- un, auk úrskurða sem kveðnir eru upp undir rekstri máls og fela ekki í sér lokaniðurstöðu þess. Dómstjór- ar hafa þó undanþáguheimild til að kveða á um birtingu dómsúrlausnar sem ekki á að birta samkvæmt regl- unum og kveða á um að úrlausn sem á að birta skuli ekki birt. Rökstuðn- ing um slíkar ákvarðanir ber að skrá í málaskrá og bréfabók héraðsdóms. Framangreindar skorður taka ekki til æðri dómstiga og verði málum vísað til Landsréttar og eftir atvikum til Hæstaréttar, ber að birta dómsúrlausnir þeirra auk dómsúrlausnar málsins í héraði. Þá er kveðið á um að æðri dóm- stigin geti ákveðið að gæta nafn- leyndar eða afmáð atriði úr dóms- úrlausnum í ríkari mæli en leiðir af reglunum ef sérstakar ástæður mæla með, svo sem þegar hags- munir hlutaðeigandi eru sérstak- lega þungvægir eða vegna fámenns landsvæðis þar sem atvik máls gerð- ust eða þau eru tengd við. adalheidur@frettabladid.is Nöfn dómþola verða afmáð úr dómum ári eftir birtingu Dómstólasýslan hefur birt reglur fyrir öll dómstigin um birtingu dómsúrlausna á vefsíðum dóm - stólanna og hafa þær verið samræmdar. Dómþolar og aðilar einkamála geta óskað eftir nafnleynd ári eftir að dómur hefur verið birtur. Í nokkrum málaflokkum verða aðeins birtir dómar efri dómstiga. Bretar áttu að taka við loftrýmisgæslu árið 2008 en hætt var við það vegna Icesace-deilunnar og hryðju- verkalöggjarinnar. Eurofighter Typhoon orrustuþota breska flughersins. NORDICPHOTOS/GETTY Þegar ár er liðið frá birtingu dóms, hvort heldur er í einkamáli eða sakamáli, geta aðilar máls óskað eftir því að nafn þeirra sé afmáð og ber þá að verða við slíkri beiðni. 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 D -8 6 D 0 2 4 1 D -8 5 9 4 2 4 1 D -8 4 5 8 2 4 1 D -8 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.