Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 8
10 af 21 brottreknum Íhaldsmönnum var aftur hleypt í flokkinn. Þ Ý S K A L A N D T É K K L A N D Ú K R A Í N A S L Ó V A K Í A P Ó L L A N D L I T H Á E N RÚ S S L A ND HV ÍTA - RÚS S L A ND Poznań Aðalbæki­ stöðvar framvarna, stórherdeildar og stuðnings­ liðs bandaríska hersins. Drawsko Pomorskie Æfinga­ miðstöð fyrir hernaðarátök fyrir pólskar og bandarískar hersveitir. Wrocław- Strachowice Útrásaraðstaða fyrir banda­ ríska flug­ herinn. Łask Aðstaða bandaríska flughersins fyrir fjarstýrða flugsveit. Powidz Aðstaða fyrir hersveit með orrustuflug­ vélar, hersveit til stuðnings í hernaðarátök­ um og aðstaða fyrir bandaríska sérsveit. Lubliniec Frekari aðstaða fyrir bandarísk­ ar sérsveitir. 2 1 1 2 3 4 5 6 5 3 4 6 Viðræður standa yfir um heppilega staðsetningu í Póllandi fyrir bandarískar brynvarðar átakahersveitir. n Rússland / Hvíta-Rússland Hernaðarleg ógn að mati Pólverja. Heimildir: Forsetaskrifstofa Póllands, Militarytimes, Atlanticcouncil og Sendiráð Bandaríkjanna í Póllandi. ✿ Uppbygging bandarískrar hernaðaraðstöðu í Póllandi Varsjá Poznań Drawsko Pomorskie Wrocław- Strachowice Łask Powidz Lubliniec PÓLLAND Á síðustu misserum hafa Bandaríkin styrkt mjög tengsl sín við Pólland á sviði varnar- og öryggismála. Það hefur verið gert með samstarfi þjóðanna innan Atlantshafsbandalagsins en Pól- verjar hafa verið í NATO frá árinu 1999. Samstarfið hefur einnig verið tvíhliða þar sem bandaríski herinn hefur verið að byggja upp aðstöðu í Póllandi. Bandaríkin reka meðal annars öf luga skrifstofu varnar- málafulltrúa í Varsjá til að sjá um samskiptin við pólska herinn. Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna, og pólskur starfsbróðir hans, Andrzej Duda, undirrituðu „Sameiginlega yfirlýsingu um fram- þróun varnarsamstarfs“ í New York þann 23. september. Þar er gert ráð fyrir að ef la hernaðarleg umsvif bandarísks herafla í Póllandi, með hermenn á sex stöðum til að vinna gegn hugsanlegum rússneskum ógnum. Í yfirlýsingunni, sem birt er á vef pólska forseta- embættisins, seg ir að um 4.500 banda- rískir hermenn séu í Póllandi að staðaldri en gert sé ráð fyrir að þeim muni fjölga um eitt þúsund. Trump hefur sagt að líklegast verði hermenn sendir til Pól- la nd s f r á her- stöðvum Banda- r í k j a m a n n a annars staðar í Evrópu. Póllandsforseti og þarlend stjórnvöld hafa ítrekað lýst vilja til að ef la viðveru banda- rísks herliðs til að sporna við Rússum enda á ríkið löng l a nd a mær i að Rússlandi. Pólverjar hafa miklar áhyggjur af auknum umsvifum herja Rússa í nágrannaríkjunum, Georgíu og í austurhluta Úkraínu, sem og inn- limun þeirra á Krímskaganum árið 2014. Pólverjar segja hana sýna virðingarleysi Rússa gagnvart alþjóðalögum. Þeir buðust nýverið til að greiða minnst tvo milljarða Bandaríkjadala, um 220 milljarða króna, af kostnaðinum við upp- byggingu og rekstur nýrrar banda- rískrar herstöðvar í landinu. Pólverjar, sem afnámu herskyldu árið 2009, hafa um 120.000 manna fastaher og um 70.000 manna hlið- arher, svo sem landamæraverði og sérhæfða lögreglu. Ríkin hafa komið sér saman um aukna hernaðarlega við- veru í eftirfarandi bæjum og borgum Póllands: Poznań, borg í Mið-Póllandi, Drawsko Pomorskie, sem er bær í norðvest u rhlut a Póllands, Wrocław- Strachowice, borg í Vestur-Póllandi, Łask, bæ í Mið- Póllandi, Powidz, smábæ í Mið-Pól- landi, Lubliniec, bæ í Suður-Pól- landi. Að auk i eru ríkin að ræða heppilega stað- setningu í Pól- landi f y rir bandarískar brynvarðar á t a k a h e r - sveitir. david@ frettabladid.is Uppbygging bandarískra herstöðva Forsetar Bandaríkjanna og Póllands samþykktu nýverið yfirlýsingu um verulega aukna viðveru bandarískra herja í Póllandi. Alls verða 5.500 bandarískir hermenn að staðaldri á sex stöðum í Póllandi til að vinna gegn hugsanlegum rússneskum ógnum. Fundað í Buckingham-höll Pólverjar vilja sporna við Rússum enda með löng landamæri að Rússlandi og bandamönnum þeirra. +PLÚS Elísabet II Englandsdrottning tók á móti dr. Farahanaz Faizal, sendiherra Maldíveyja í Bretlandi, í Buckingham-höllinni í Lund- únum í gær. Með Faizal í för var eiginmaður hennar dr. Mohamed Ahmed Didi. Sendiherrann og drottningin áttu fund í höllinni en sama dag hitti Elísabet drottning einnig sendiherra Lesótó í Bretlandi, frú Rethabile Mahlompho Mokaeane. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Þingkosningar í Bretlandi verða haldnar þann 12. desember næstkomandi eftir að Boris Johnson forsætisráðherra lagði fram frum- varp um kosningar í fjórða skiptið. Allir þrír stóru stjórnarandstöðu- flokkarnir, Verkamannaflokkurinn, Skoski þjóðarflokkurinn og Frjáls- lyndir demókratar, studdu tillöguna enda hafði Evrópusambandið veitt útgöngufrest til 31. janúar næst- komandi. Búist var við því að tillögur um að færa kosningaréttinn niður í 16 ár og að innflytjendur frá Evrópusam- bandslöndum fengju að kjósa yrðu lagðar fram. En svo fór ekki, enda var talin hætta á að Johnson hefði dregið frumvarpið til baka ef það yrði leyft. Samkvæmt könnunum mælist Íhaldsflokkurinn með 36 prósent atkvæða, Verkamannaflokkurinn með 23, Frjálslyndir demókratar 18, Brexit-flokkurinn 12 og Græningjar 6 prósent af þeim f lokkum sem bjóða fram á landsvísu. Þetta myndi þýða að Íhaldsmenn myndu ná meirihluta á þinginu með 348 menn. Önnur markverð tíðindi voru að Boris Johnson hleypti 10 þing- mönnum, af þeim 21 sem reknir voru í byrjun september, aftur inn í flokkinn. Á meðal þeirra er Nich- olas Soames, barnabarn Winstons Church ill. – khg Kosningar þann 12. desember 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 D -9 5 A 0 2 4 1 D -9 4 6 4 2 4 1 D -9 3 2 8 2 4 1 D -9 1 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.