Fréttablaðið - 30.10.2019, Qupperneq 14
Ráðg ja f a r f y r i r t æk ið Grant Thornton, sem stjórn GAMMA réð til að gera úttekt á Upphafi og fagfjárfestasjóðnum Novus, mun
gera ítarlega greiningu á öllum
þeim greiðslum sem greiddar voru
af bankareikningum Upphafs og
dótturfélaga þess allt frá því að fast
eignafélagið tók til starfa.
Þetta kom fram á upplýsinga
fundi með sjóðsfélögum Novus,
eiganda Upphafs, á föstudaginn í
síðustu viku, samkvæmt heimild
um Markaðarins. Sú vinna Grant
Thornton miðar að því að ganga
úr skugga um réttmæti þeirra
greiðslna sem runnu frá Upphafi og
keyra þær saman við samninga fast
eignafélagsins við hina ýmsu aðila,
meðal annars verktaka og ráðgjafa,
sem hafa komið að verkefnum fyrir
Upphaf á síðustu árum. Niðurstaða
úttektarinnar á að liggja fyrir á
þessu ári.
Sjóðsfélagar Novus, sem er í
stýringu GAMMA, dótturfélags
Kviku banka, höfðu lagt á það
mikla áherslu að ráðist yrði í slíka
vinnu vegna gruns um að mögu
lega hafi ekki verið eðlilega staðið
að greiðslum Upphafs í einhverjum
tilfellum. Þá hafa þeir einnig meðal
annars leitað eftir því að kannaður
sé þáttur endurskoðanda, sem skrif
aði upp á reikninga Novus, og eins
og hvort sjóðurinn hafi starfað í
samræmi við reglur.
Í bréfi til sjóðsfélaga Novus í lok
september voru þeir upplýstir um
að við endurmat á eignum og áætl
unum sjóðsins þá væri eigið fé, sem
þremur mánuðum áður var metið
á um 3,9 milljarða, nú aðeins talið
vera um 42 milljónir. Þá var gengi
sjóðsins, sem fór hæst í 250 í árslok
2017, lækkað niður í 2. Samkvæmt
ný jum stjórnendum GA MM A
reyndist framvinda margra verk
efna Upphafs ofmetin, kostnaður
við framkvæmdir var langt yfir
áætlunum og þá tóku fyrri mats
aðferðir ekki að fullu tillit fjár
magnskostnaðar félagsins.
Til að leysa lausafjárvanda fast
eignafélagsins var ákveðið að ráð
ast í útgáfu forgangsskuldabréfs
til tveggja ára upp á einn milljarð
króna. Kvika banki hefur skuld
bundið sig til að sölutryggja útgáf
una að fjárhæð samtals 500 millj
ónir og þá náðist samkomulag fyrr
í þessum mánuði við helstu skulda
bréfaeigendur Upphafs um að þeir
myndu leggja félaginu til sömu
fjárhæð. Samkvæmt heimildum
Markaðarins var hins vegar um það
samið að forgangsbréfin skiptist í
tvo hluta – A og Bflokk – og að fjár
festarnir, sem eigendur Aflokks, fái
þannig greiddan höfuðstól sinn til
baka á undan bankanum.
Á meðal stærstu skuldabréfaeig
enda Upphafs, sem gaf út 2,7 millj
arða skuldabréf til tveggja ára í júní,
eru fjárfestingafélagið Stoðir, TM og
félag í eigu Guðbjargar Matthías
dóttur, aðaleiganda Ísfélags Vest
mannaeyja. Forgangsskuldabréfin
verða framar í kröfuröð en skulda
bréf í fyrri skuldabréfaútgáfunni
og munu þau bera 12 prósent fasta
vexti.
Upphaf, sem var stofnað árið
2014, er með um 280 íbúðir í bygg
ingu á höfuðborgarsvæðinu og eru
áætluð lok allra framkvæmda í árs
lok 2020 en hvert verkefni félagsins
er unnið í aðgreindu dótturfélagi. Í
kynningu til fjárfesta vegna skulda
bréfaútboðs Upphafs í maí síðast
liðnum kemur fram að vaxtaber
andi skuldir hafi þá numið tæplega
10 milljörðum króna en þeir bankar
sem hafa lánað til fasteignaverkefna
félagsins, samkvæmt heimildum
Markaðarins, eru Íslandsbanki,
Landsbankinn og Kvika.
hordur@frettabladid.is
Alltaf til taks
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Algjörlega
hnökralaust
Vodafone hentar mínum rekstri
best. Þau hafa þjónustað okkur
með allt sem þarf, algjörlega
hnökralaust.
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Helgi Magnússon fjárfestir, sem sat í stjórn Marels á árunum 2005 til 2019, hefur
á síðustu mánuðum selt tæplega
helming bréfa sinna í fyrirtækinu
fyrir jafnvirði samtals um 820 millj
óna króna miðað við núverandi
hlutabréfaverð Marels.
Þetta má lesa út úr lista yfir alla
hluthafa Marels, sem Markaðurinn
hefur séð, en samkvæmt honum
eiga félögin Hofgarðar og Eignar
haldsfélagið Harpa í dag samanlagt
1.645 þúsund bréf í fyrirtækinu að
nafnverði, sem jafngildir rúmlega
0,2 prósenta eignarhlut, og eru þau
metin á um 970 milljónir króna.
Hofgarðar eru að öllu leyti í eigu
Helga en hlutur hans í Hörpu nemur
56 prósentum.
Helgi er aðaleigandi Torgs,
útgáfufélags Fréttablaðsins.
Í byrjun mars á þessu ári, þegar
Helgi hætti í stjórn Marels, áttu
hins vegar þrjú félög Helga sam
tals rúmlega þrjár milljónir hluta
að nafnverði í Marel og nam mark
aðsvirði bréfanna á þeim tíma,
þegar hlutabréfaverðið stóð í 505
krónum á hlut, um 1.550 milljónum
króna. Hlutabréfaverð Marels hefur
hækkað talsvert síðan þá og hefur
gengi bréfa félagsins að jafnaði
verið á bilinu um 550 til 600 krónur
á hlut. Við lokun markaða í gær stóð
gengið í 587 og frá áramótum hefur
það hækkað um 57 prósent.
Félagið Varðberg, sem er að öllu
Helgi hefur selt í Marel
fyrir um 800 milljónir
Helgi
Magnússon.
970
milljónir er markaðsvirði
eignarhlutar tveggja félaga í
eigu Helga í Marel í dag.
Nespresso kaffiverslunin í Kringlunni og á netinu velti um 516 milljónum króna
á árinu 2018 og hagnaðist um
sjö milljónir króna. Versl
unin var opnuð í Kringlunni
í lok nóvember árið 2017
og í Smáralind í maí í ár.
Af koman kemur fram
í ársreikningi Perroy
sem heldur utan
um reksturinn.
Varða Capital,
sem er að stærstum
hluta í eigu Gríms
Garðarssonar og Jón
asar Hagan Guðmunds
sonar, á 75,5 prósenta hlut í Perroy,
Hagan Holding, sem er í eigu fyrr
nefnds Jónasar, á 14,5 prósenta hlut
og RE22, sem er í eigu Jóns Björns
sonar, fyrrverandi forstjóra
Festar, á tíu prósenta hlut.
Perroy voru lagðar til
samtals 80,5 milljónir
króna í hlutafé á árun
um 2017 og 2018. Eigið
fé félagsins var 70
milljónir króna og
eiginfjárhlutfallið
50 prósent ár ið
2018. Skammtíma
skuldir við lánastofnanir
voru tíu milljónir króna. – hvj
Seldi Nespresso fyrir
hálfan milljarð króna
leyti í eigu Helga, hefur þannig selt
öll bréf sín í Marel en það átti 316
þúsund hluti. Þá hafa Hofgarðar og
Eignarhaldsfélagið Harpa, sem áttu
samanlagt um 2,72 milljónir hluta
í Marel í mars síðastliðnum, selt
nærri helming bréfa sinna.
Helgi, sem er meðal annars
stjórnarformaður Bláa lónsins
og fyrrverandi stjórnarformaður
Lífeyrissjóðs verslunarmanna og
Samtaka iðnaðarins, hefur á undan
förnum mánuðum fjárfest í félögum
á borð við Iceland Seafood, Kviku
banka og fjárfestingafélagið Stoðir.
Þá keypti Helgi einnig í júní helm
ingshlut í Torgi, og fyrr í þessum
mánuði eignaðist hann, ásamt fleiri
aðilum, félagið að fullu. – hae
Ráðast í úttekt á öllum
greiðslum frá Upphafi
Stjórnendur GAMMA hafa fengið óháðan sérfræðing til að fara yfir allar
greiðslur sem hafa verið greiddar af bankareikningum Upphafs síðustu ár.
Sjóðsfélagar Novus hafa leitað eftir því að þáttur endurskoðanda sé kannaður.
Haldinn var upplýsingafundur með sjóðsfélögum Novus í húsakynnum GAMMA síðasta föstudag.
280
íbúðir er Upphaf með í
byggingu víðs vegar á höfuð-
borgarsvæðinu.
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
3
0
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
D
-7
C
F
0
2
4
1
D
-7
B
B
4
2
4
1
D
-7
A
7
8
2
4
1
D
-7
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K