Fréttablaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 20
Garðlist þjónustar einstakl-inga, húsfélög, fyrirtæki og bæjarfélög allt árið um
kring. Yfir sumartímann sinnir
fyrirtækið viðhaldi á görðum
og annars konar garðyrkju en á
veturna færist áherslan yfir á snjó-
mokstur og jólaskreytingar.
„Jólaskreytingar þjóna fyrir-
tækjum mjög vel og ættu í raun
að vera hluti af markaðskostnaði
þeirra,“ segir Brynjar Kjærnested,
skrúðgarðyrkjumeistari og fram-
kvæmdastjóri Garðlistar. „Góðar
skreytingar trekkja fólk að og auka
umferð, sem skilar sér í aukinni
verslun. Um leið verður húsnæði
verslananna verðmætara.
Það er því mjög mikilvægt að
leggja mikið upp úr skreytingum
og líta á þær sem fjárfestingu,“
segir Brynjar. „Við höfum sagt að
það sem þú eyðir í jólaskreytingar
skili sér alltaf til baka.“
Samstarf við erlenda
sérfræðinga
Garðlist er í sterkri stöðu til að
tryggja að jólaskraut hafi tilætluð
áhrif fyrir fyrirtæki. „Við vinnum
með MK Illumination, sem er
stærsta jólaskreytingafyrirtæki
í heimi,“ segir Brynjar. „Það sér
um að skreyta mörg þekktustu
kennileiti heims, t.d. jólatréð við
Rockefeller Center í New York og
miðborg Stokkhólms.
Samstarfið við MK Illumina-
tion gefur okkur sérstöðu. Þar
eru sérfræðingar á sínu sviði sem
gera nánast ekkert annað en jóla-
skreytingar,“ segir Brynjar. „Við
fáum mikinn stuðning frá þeim,
hvort sem við erum að vinna fyrir
einstaklinga, fyrirtæki eða sveitar-
Jólakötturinn
í miðbænum
er dæmi um
skraut sem
bæði skapaði
upplifun og
dró athygli að
svæðinu.
Einstaklingum er boðið að leigja skraut og það hefur verið mjög vinsælt.
Garðlist getur
séð um skreyt-
ingar fyrir alla,
hvort sem það
eru einstakl-
ingar, fyrirtæki,
húsfélög eða
sveitarfélög.
félög og vinna þau náið með okkur
að hönnuninni.
Eftir að við byrjuðum að vinna
með þeim höfum við tekið að
okkur nokkur stór verkefni, eins
og jólaköttinn, sem vakti mikla
athygli í miðbænum í fyrra, en
það er fyrsta stóra skreytingin
sem við höfum flutt til landsins
og sett upp,“ segir Brynjar. „MK
Illumination er alltaf með ákveðna
nálgun á hverju svæði og fólkið þar
heillaðist af jólasveinunum okkar
og þá sérstaklega jólakettinum
þegar það kafaði ofan í sögu lands-
ins. Þaðan kom hugmyndin um að
gera heimsins stærsta jólakött.
Eitt af mörgum dæmum um
það hvernig jólaljós trekkja að er
í Salerno á Ítalíu, þar sem umferð
jókst úr 300 þúsund manns í fjórar
milljónir milli jóla og að sama
skapi jókst verslun á svæðinu um
140% eftir að MK Illumination var
fengið til að skreyta svæðið.
Skraut ætti líka helst að vera
gagnvirkt. Þess vegna er kötturinn
tilbúinn að grípa vegfarendur í
klærnar og þegar fólk stillir sér
upp hjá honum lítur út eins og
kötturinn sé að fara að bíta haus-
inn af því,“ segir Brynjar. „Fyrir
vikið vill fólk láta taka mynd af
sér við köttinn sem annað fólk sér
Við notum vörur
frá MK Illumina-
tion, en helsta sérkenni
þeirra er að þau endast
mun lengur en flest
önnur LED-ljós. svo á samfélagsmiðlum og þannig
skapar skrautið upplifun og dregur
athygli að svæðinu. Þessi athygli er
lykilatriði í að láta skreytingarnar
vinna fyrir fyrirtækin og jóla-
tíminn er dýrmætasti tíminn til að
fá þessa aukaumferð.“
Vandaðar vörur sem
endast lengur
„Þegar við vinnum skreytingar
fyrir einstaklinga höfum við boðið
fólki að leigja skrautið og það
hefur verið mjög vinsælt,“ segir
Brynjar. „Við notum vörur frá MK
Illumination, en helsta sérkenni
þeirra er að þau endast mun lengur
en flest önnur LED-ljós. Eftir 10
þúsund klukkustundir halda
ljósin enn 98% af styrkleika sínum,
sem er endingartími sem enginn
önnur jólaljós geta státað sig af.
Þannig að þó þessi ljós séu dýrari
til að byrja með eru þau ódýrari til
lengri tíma litið, því endingin er
svo góð.
Við hvetjum alla til að hafa sam-
band við okkur, við vinnum í bæði
stórum og litlum verkum,“ segir
Brynjar og glóir.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
3
0
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
D
-9
F
8
0
2
4
1
D
-9
E
4
4
2
4
1
D
-9
D
0
8
2
4
1
D
-9
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K