Fréttablaðið - 30.10.2019, Page 41

Fréttablaðið - 30.10.2019, Page 41
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 30. OKTÓBER 2019 Hvað? Fræðslufundur Hvenær? 12.00 Hvar? Þjóðminjasafnið Fjallað um nýja Nóbelsverðlauna- hafann í bókmenntum, Olgu Tokarczuk. Hvað? Hrekkjavakan að fornu og nýju Hvenær? 12.15 Hvar? Bókasafn Kópavogs Björk Bjarnadóttir umhverfis- þjóðfræðingur fjallar um sögu hrekkjavökunnar. Hvað? Óperudagar Hvenær? 12.30 Hvar? Háskóli Íslands Á opnunartónleikum Ljóðadaga Óperudaga frumflytja Eva Þyri Hilmarsdóttir píanisti, Catherine Maria Stankiewicz sellóleikari og Guja Sandholt söngkona íslensk og erlend verk. Dagskrá verður síðan víða þennan dag og næstu daga. Hátíðin stendur til 3. nóvember. Upplýsingar á operudagar.is. Hvað? Jazz Hvenær? 21.00 Hvar? Björtuloft, 5. hæð Hörpu Tríó píanóleikarans Agnars Más Magnússonar skemmtir. Hvað? Argentínsk bókakynning Hvenær? 17.30 Hvar? Veröld – hús Vigdísar Dr. Denise León ljóðskáld og Fabián Soberón, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður, kynna bækur sínar og lesa upp úr þeim. Viðburðurinn fer fram á spænsku. Hvað? Málþing og opnun nýs Íðorðabanka Árnastofnunar Hvenær? 15.30 Hvar? Norræna húsið Bandaríska tónskáldið David Lang er komið hingað til lands í til-efni þess að tvö verk eftir Lang verða f lutt a f s öng v u r u m og hljóð færaleikurum á tónleikum í Fríkirkjunni á föstudag, 1. nóv- ember, klukkan 20.00. Verkin eru Little Match Girl Passion og Death Speaks. Að tónleikum loknum mun Helgi Rafn Ingvarsson ræða við tón- skáldið. Lang er margverðlaunað tón- skáld og hlaut Pulitzer-verðlaunin í tónlist árið 2008 fyrir Little Match Girl Passion og geisladiskur með upptöku á verkinu hlaut Grammy- verðlaun. Efniviðinn sótti Lang í söguna um Litlu stúlkuna með eld- spýturnar eftir H.C. Andersen og Matteusarpassíu Johanns Sebasti- ans Bach. Þjáningar barns „Bandaríkjamenn þekkja vel þessa sögu H.C. Andersen, sjálfur kynntist ég henni á barnsaldri,“ segir Lang. Forsaga verksins er sú að Carnegie Hall pantaði verk eftir Lang fyrir hinn fræga söngvara Paul Hillier. „Hillier hefur hljóðritað trúarlega Lítil stúlka í stað Krists Verk eftir hið fræga bandaríska tónskáld David Lang verða flutt á tónleikum. Annað verkið fékk Pulitzer-verðlaunin. Verk David Lang njóta vinsælda víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is klassíska tónlist um þjáningar Krists. Ég er ekki kristinn en mikill unnandi klassískrar tónlistar og Bach er uppáhalds tónskáldið mitt. Ég ákvað því að vinna með Matte- usarpassíu hans. Þar er kjarninn sá að við eigum að skynja þjáningar Krists og breyta lífi okkar og verða betri manneskjur. Þetta er falleg hugmynd og ég hugsaði með mér að kannski væri hægt að ná fram sömu tilfinningu ef maður tæki Krist út og fjallaði um þjáningar einhverrar annarrar manneskju. Ég leitaði uppi sögur af þjáningum og dauðastríði fólks en ekkert gekk upp. Á síðustu stundu sagði konan mín: Hvað með litlu stúlkuna með eldspýturnar? Hún deyr hræðilegum dauðdaga. Ég prófaði það og það gekk upp. Þetta er mín tónlist en textinn er endurskrift mín á Bach-textanum og þýðing á sögu H. C. Andersen.“ Pulitzer breytti ýmsu Seinna verkið sem f lutt verður eftir Lang á tónleikunum er Death Speaks en þar talar dauðinn. „Mér hefur alltaf þótt áhugavert hversu oft dauðinn er persóna í söngvum Franz Schubert og talar til manns. Í Dauðinn og stúlkan eftir Schu- bert syngur stúlkan um það hversu hrædd hún er við að deyja og Dauð- inn segir: Vertu róleg, komdu með mér. Ég fór í gegnum öll lög Schu- berts þar sem dauðinn kemur við sögu, safnaði þeim saman, þýddi og stytti eins og í Little Match Girl Passion.“ Aðspurður segir Lang að Pulitzer- verðlaunin hafi breytt mörgu í lífi hans. „Eins og allt tónlistarfólk vil ég vera tekinn alvarlega og njóta virðingar fyrir listsköpun. Þegar ég vann Pulitzer-verðlaunin varð ég allt í einu miðpunktur menningar- lífsins og það hjálpaði mér mikið. Þetta var stórkostlegt.“ Hann var tilnefndur til Óskars- verðlauna árið 2015 fyrir tón- list sína við kvikmyndina Youth þar sem Michael Caine, Harvey Keitel og Jane Fonda voru í aðal- hlutverkum. Hann var viðstaddur verðlaunaaf hendinguna. „Þetta var brjálæði, algjör sirkus en frá- bært,“ segir hann. „Þegar maður er tilnefndur fara kvikmyndaverin í auglýsingaherferð til að hjálpa manni að vinna. Heil hótelhæð var pöntuð, í einu herbergi var Jane Fonda, í öðru Mchael Caine, leik- stjórinn í enn öðru og svo ég í einu. Maður sat þarna og á hálftíma fresti kom fjölmiðlamaður inn og maður svaraði spurningum. Þetta stóð yfir í heila viku og var kostulegt.“ Á SÍÐUSTU STUNDU SAGÐI KONAN MÍN: HVAÐ MEÐ LITLU STÚLKUNA MEÐ ELDSPÝTURNAR? Björk Bjarnadóttir umhverfis-þjóðfræðingur segir frá hrekkjavökunni. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 D -9 5 A 0 2 4 1 D -9 4 6 4 2 4 1 D -9 3 2 8 2 4 1 D -9 1 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.