Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 44

Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 44
Rithöfundurinn Ólafur Jóhann Ólafsson hefur alið manninn í Banda­ríkjunum nánast allan sinn höf undar fer il þar sem hann hefur dansað hárfínan línudans milli skáldskaparins og kaldhamraðs raunveruleika viðskiptalífsins. Íslandsheimsóknir hans teljast því jafnan til tíðinda, ekki síst þegar hann er með nýja skáldsögu í farteskinu, þannig að eðlilega var fjölmenni í útgáfuhófi hans í Ás­ mundar sal í gær þegar hann fylgdi sinni nýjustu bók, Innf lytjand­ anum, úr hlaði. Ólafur Jóhann er vanur lofi og verðlaunum og hlaut einróma lof fyrir síðustu bók sína, Sakramentið, sem kom út 2017 og ef marka má for­ leggjara hans er fyrirsjáanlegt að hann endurtaki leikinn með Inn­ flytjandanum þar sem hann „sýnir allar sínar bestu hliðar og í stór­ brotinni sögu sem kemur á óvart“. Atburðarás Innflytjandans hefst þegar innflytjandi finnst látinn úti í Örfirisey á dimmum og köldum febrúardegi. Um sömu helgi verða landsmenn helteknir af hvarfi ungrar, íslenskrar stúlku sem gufar sporlaust upp í myrkrinu, snjónum og ófærðinni. toti@frettabladid.is Árekstur menningarheima í boði Ólafs Jóhanns Ólafur Jóhann Ólafsson fagnaði með spenntum væntanlegum lesendum í Ásmundarsal í gær þegar útgefandi hans blés til hófs í tilefni af útkomu skáldsögunnar Innflytjandinn. Bókaormarnir Páll Valsson, útgefandi með miklu meiru, og Einar Már Guðmundsson, stórskáld og rithöfundur, voru að sjálfsögðu mættir. Pétur Már Ólafsson, forleggjari Ólafs Jóhanns hjá Bjarti og Ver- öld, og rithöfundurinn höfðu ærna ástæðu til að fagna í gær. Ásdís Árnadóttir og Ólöf Sigurðardóttir kíktu á Ólaf Jóhann og Innflytjandann í Ásmundarsal. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Guðný Magnús- dóttir, Haraldur Sigurðsson, Valdimar Harðarson og Guðleif Helgadóttir gættu þess að missa ekki af Ólafi Jóhanni og Inn- flytjandanum. Frétta- konan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir var svona líka ljóm- andi kát í haust- rökkrinu. Gestir Ólafs Jóhanns gripu tækifærið til þess að ræða við höfundinn. Jón Kaldal blaðamaður til áratuga tók stöðuna á Ólafi Jóhanni. 3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 3 0 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 D -9 5 A 0 2 4 1 D -9 4 6 4 2 4 1 D -9 3 2 8 2 4 1 D -9 1 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.