Fréttablaðið - 04.11.2019, Page 35
EKKERT
BRUDL
Bónus Bolognese Kjötsósa, 1 kg, 998 kr.
Hatting Hvítlauksbrauð, 3 stk., 298 kr.
Barilla Spaghetti, 1 kg, 259 kr. kr.1.555
Samtals
Bónus réttur mán
aðarins
Ég er bjartsýn og hef tröllatrú á börnum og bókum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Karítas og Sumarliði eru söguhetjur í Koparegginu eftir Sigrúnu.
Sigrún Eldjárn sendir frá sér tvær barnabækur fyrir þessi jól. Önnur bókin er myndabók, Sigurf ljóð í grænum hvelli, og er þriðja bókin um ofurstúlkuna
sem leggur sitt af mörkum til að
bjarga heiminum. Áður hafa komið
út Sigurfljóð hjálpar öllum og Áfram
Sigurfljóð. „Í þessari bók leysir hún
úr umhverfismálum með grænu
flugeðluna og ungana hennar tólf
sér til aðstoðar. Þær sjá að ýmislegt
hefur farið úrskeiðis í heiminum og
taka þá til sinna ráða. Að endingu
verður Sigurfljóð alveg bálreið og
segir fólki að hætta þessari vitleysu
strax! Það hljómar kannski sem allt-
of einföld lausn en auðvitað hlýða
allir henni Sigurf ljóð og hennar
ofurkröftum þegar hún fyllist rétt-
látri reiði!“ segir Sigrún.
Óvenjuleg leynivopn
Hin bókin er Kopareggið, framhald
af Silfurlyklinum sem kom út í fyrra
og fékk Íslensku bókmenntaverð-
launin í f lokki barnabóka og var
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlanda í f lokki barna- og
unglingabóka og Barnabókaverð-
launa Reykjavíkur. „Silfurlykillinn
gerðist í framtíðinni þegar margt
það sem nú er talið sjálfsagt er ekki
lengur til vegna einhverrar óheilla-
þróunar í heiminum. Öll sú tækni
sem við treystum á í dag er ónýt og
virkar ekki lengur. Einhvers staðar
í leynikjallara er samt bókasafn og
bækurnar virka ennþá,“ segir Sigrún.
„Í þessari nýju bók eru söguhetj-
urnar þær sömu og í fyrri bókinni.
Það eru systkinin Sumarliði og Sól-
dís og vinkona þeirra Karítas. En svo
bætist við ungur drengur sem setur
strik í reikninginn,“ segir Sigrún. „Í
byrjun bókarinnar er þó nokkurs
konar forleikur þar sem sagt er frá
tveimur krökkum sem eru mun nær
okkur í tímanum. Þegar allt stefnir í
óefni skrifa þau í rauða minnisbók
skilaboð til framtíðarinnar. Þau
safna líka saman ýmsum hlutum
sem þau vona að geti verið til gagns í
framtíðinni og fela þá á góðum stað.
Aðalpersónurnar finna rauðu bók-
ina löngu seinna og reyna að fylgja
vísbendingum til að finna þessa
hluti. Það er því smá tímaf lakk í
þessari sögu.
Kopareggið fjallar líka um stríð
og ásókn í heimsyfirráð. Í Silfur-
lyklinum kynntumst við hópi
kvenna sem höfðu orðið innlyksa
ofan í djúpri gjá. Í þessari bók verða
þær fyrir árás og lenda í bardaga við
rustana í Heiðardalnum sem leggja
til atlögu við þær. Þær svara með
sínum óvenjulegu leynivopnum sem
reynast vera dans og söngur, gleði og
jákvæðni.“
Það er alltaf von
Það er sterkur umhverfisverndar-
tónn bæði í Koparegginu og bókinni
um Sigurfljóð. „Mér finnst mjög gott
að krakkar eru að vakna til meðvit-
undar um það hvernig heimurinn er
að þróast og að þau fái að vita að þau
geti og eigi að fara vel með umhverfi
sitt. Ég vil hins vegar alls ekki að
þau verði hrædd og vonlaus. Ég vil
sýna þeim fram á að það sé alltaf
von. Vonin um betri heim er fólgin í
börnunum sjálfum. Ég er bjartsýn og
hef tröllatrú á börnum og bókum,“
segir Sigrún.
Glöð og stolt
Vart þarf að taka fram að Sigrún
myndskreytir báðar þessar bækur
eins og allar sínar bækur. Á dögun-
um var tilkynnt að hún væri tilnefnd
til hinna virtu ALMA-verðlauna,
sem stofnuð voru í minningu Ast-
rid Lindgren árið 2002. Verðlaunin
eru veitt árlega einstaklingum sem
skapað hafa hágæða bókmennta-
efni fyrir börn og ungmenni. Sigrún
er tilnefnd fyrir höfundarverk sín
sem rithöfundur og myndskreytir.
„Ég er óskaplega glöð og stolt að vera
á þessum lista og fá að tengjast nafni
átrúnaðargoðsins Astrid Lindgren,“
segir Sigrún.
Hún er nú að vinna að framhaldi
Kopareggsins. „Bókin endar í algerri
óvissu þannig að það er lífsnauðsyn-
legt að koma með framhald,“ segir
Sigrún.
Vonin um betri heim
Tvær bækur koma frá Sigrúnu Eldjárn og í báðum er sterkur
umhverfisverndartónn. Hún er tilnefnd til virtra verðlauna.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
MÉR FINNST MJÖG
GOTT AÐ KRAKKAR
ERU AÐ VAKNA TIL MEÐVIT-
UNDAR UM ÞAÐ HVERNIG
HEIMURINN ER AÐ ÞRÓAST OG
AÐ ÞAU FÁI AÐ VITA AÐ ÞAU
GETI OG EIGI AÐ FARA VEL MEÐ
UMHVERFI SITT.
Þrungin sterkum og óvæntum náttúrumyndum.
Áhrifamikil bók eftir eitt af höfuðskáldum
okkar, Steinunni Sigurðardóttur.
SLÁANDI ÁSTARJÁTNING
TIL LANDS OG JÖKULS
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
0
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
5
-3
D
D
0
2
4
2
5
-3
C
9
4
2
4
2
5
-3
B
5
8
2
4
2
5
-3
A
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K