Fréttablaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 BETRA VERÐ & MEIRI UPPLIFUN Mitsubishi og HEKLA enn meiri upplifun á betra verði! HEKLA · www.hekla.is/mitsubishisalur FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Elín Edda Sigurð- ardóttir er á leið til Kenýa í æfinga- búðir þar sem hún mun undirbúa sig fyrir HM en hún nálgast óðfluga tuttugu ára gamalt Íslandsmet þjálf- ara síns, Mörthu Ernstsdóttur. Lágmarkskröfur Ólympíusam- bandsins voru nýlega hertar og Elín sér því ekki fram á að komast til Tókýó en hana dreymir um að komast á Ólympíuleika einn daginn. „Ég er á leiðinni til Kenýa í janúar í Mekka langhlaupanna í háfjalla- búðir. Ég hlakka mikið til þess að æfa við þær aðstæður sem fremstu langhlauparar sögunnar alast upp við og æfa í.“ – hó Æfir í Mekka langhlaupanna VIÐSKIPTI Félagið Aðaldalur ehf. keypti í lok árs 2009 hluti í þremur jörðum með veiðiréttindi í Laxá í Aðaldal. Um er að ræða jarð- irnar Knútsstaði og Straumsnes í Aðaldælahreppi og jörðina Hóla í Laxárdal. Að auki keypti félag- ið íbúðarhús á jörðinni Lynghóli í Aðaldælahreppi. Í áratug sýslaði félagið ekki meira með fasteignir allt þar til nú í sept- ember þegar félagið keypti hluta jarðarinnar Austurhaga í Aðaldæla- hreppi. Erfitt er að henda reiður á hve stóra hlutdeild í veiðiréttindum Laxár í Aðaldal félagið Aðaldalur á nú. Samkvæmt óvísindalegu mati sérfræðings sem Fréttablaðið ræddi við er hlutdeildin líklega um 3-5 prósent. Aðaldalur er í eigu félagsins Dylan Holding SA sem skráð er í Lúxemborg. Sá sem hefur verið í forsvari fyrir Dylan Holding SA um veiðiréttindi félagsins er stjórnarformaður þess, fjárfestirinn Jóhannes Kristinsson, sem er þekkt- ur fyrir aðild sína að Fons og Iceland Express á árum áður. Hann hefur verið sagður eigandi félagsins en einnig hefur því verið haldið fram, meðal annars í fréttum Morgun- blaðsins og Kjarnans, að raunveru- legur eigandi Dylan Holding SA sé Jim Ratcliffe. Gísli Ásgeirsson, talsmaður Jims Ratcliffe hérlendis, vísar því þó alfarið á bug að breski auðkýfingur- inn ætli að seilast til áhrifa í Laxá í Aðaldal. „Jim Ratcliffe er ekki eig- andi Dylan Holding SA,“ segir Gísli. – bth / sjá síðu 6 Huldufélag bætir við sig jörð með veiðirétti í Laxá í Aðaldal Félagið Aðaldalur, sem er í eigu eignarhaldsfélagsins Dylan Holding SA, keypti á dögunum jörð með veiðirétti í Laxá í Aðaldal, ókrýndri drottningu íslenskra laxveiðiáa. Síðarnefnda félagið hefur sterk tengsl við breska auðkýfinginn Jim Ratcliffe en talsmaður hans segir félagið ekki í eigu Bretans. Jim Ratcliffe er ekki eigandi Dylan Holding SA. Gísli Ásgeirsson, talsmaður Jims Ratcliffe Elín Edda Sigurðardóttir. +PLÚS Góðgerðadagurinn, Gott mál, var haldinn í Hagaskóla í gær. Dagurinn hefur verið haldinn árlega síðastliðin ellefu ár og er markmiðið með deginum að safna fé til góðgerðar- mála. Í ár styrkja nemendur skólans Landvernd og Bjarta sýn.Frá því að dagurinn var haldinn í fyrsta sinn hafa Hagskælingar safnað yfir tuttugu milljónum FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 0 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 F -C E 5 4 2 4 2 F -C D 1 8 2 4 2 F -C B D C 2 4 2 F -C A A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.