Fréttablaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 4
Ég skil læknana
mjög vel, þeir eru í
erfiðri stöðu með þau
úrræði sem eru í boði. Það
sem við þurfum er með-
ferðarfangelsi.
Baldur Borg
þórsson, vara
borgarfulltrúi
Miðflokksins
Af vefnum
Í dag 8. nóvember er hinn árlegi Dagur gegn einelti og kynferðis-of beldi í öllum aldurshópum.
Í tilefni dagsins er vert að staldra
við og skoða hvar við erum stödd
með þessi erfiðu, viðkvæmu mál.
Þessi grein fjallar um aðgerðir
gegn einelti meðal barna. Enda
þótt margt hafi áunnist í eineltis-
málum, forvörnum og viðbrögðum
við þeim er enn einelti í skólum,
íþróttum og tómstundum barna.
Lestu greinina í heild á
frettabladid.is/skodun
Láttu mig vera
Einelti meðal barna
má ekki ná fótfestu,
hvað þá þrífast.
Kolbrún
Baldursdóttir
sálfræðingur
og borgar
fulltrúi Flokks
fólksins
****
S.J. Fréttablaðið
,,Átakanleg sýning um
uppgjör við lífið og dauðann”
borgarleikhus.is
STJÓRNSÝSLA Seðlabankastjóri
telur ekki tímabært að ráðast í
byggingu tveggja hæða ofan á
núverandi höfuðstöðvar Seðla-
bankans.
Morgunblaðið greindi frá því í
byrjun vikunnar að framkvæmd-
irnar væru áformaðar en seðla-
bankastjóri vísar því á bug. Aðeins
hafi verið kannað hvort möguleik-
inn væri fyrir hendi.
„Áður en ég settist í stól seðla-
bankastjóra hafði Seðlabankinn
látið kanna afstöðu borgaryfir-
valda til mögulegrar hækkunar
á húsnæði bankans ef á þyrfti að
halda. Ég tel mjög gott að vita hvort
þessi möguleiki stendur raunveru-
lega til boða en tel sjálfur að það
sé ekki tímabært að ráðast í slíka
framkvæmd,“ segir Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Hann bendir á að höfuðstöðv-
arnar séu komnar til ára sinna og
vænlegra sé að setja endurbætur á
húsinu í forgang frekar en nýbygg-
ingu. Þá sé mikilvægt að nýta betur
það rými sem er til staðar.
Hugmyndirnar um nýju hæðirn-
ar tvær komu ekki síst til vegna þess
að um næstu áramót munu Seðla-
bankinn og Fjármálaeftirlitið sam-
einast. Að sögn seðlabankastjóra
gengur undirbúningurinn vel. Fyrst
um sinn verði starfsemi Fjármála-
eftirlitsins í Borgartúni en ráðgert
er að starfsemin muni öll verða í
húsnæði Seðlabankans.
„Húsnæði Seðlabankans ætti vel
að geta rúmað starfsfólk beggja
stofnana,“ segir Ásgeir. – bþ
Engin áform um að hækka Seðlabanka um tvær hæðir
HEILBRIGÐISMÁL Hópur langt leiddra
vímuefnaneytenda með alvarlega
smitsjúkdóma fær úthlutað Ritalin
Uno eða Contalgin í skiptum fyrir að
taka lyfin sín. Markmiðið er að draga
úr útbreiðslu HIV og lifrarbólgu C
meðal vímuefnaneytenda. Starfs-
menn velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar sjá um að koma lyfjunum til
einstaklinganna.
Már Kristjánsson, yfirlæknir
smitsjúkdómalækninga á Land-
spítalanum, segir að um sé að ræða
fimm til sex einstaklinga. „Til þess
að ná árangri þá gerum við samning
við þessa einstaklinga. Við skoðum
sjúkrasögu þeirra og ef það er
læknisfræðileg ástæða til að ávísa
ávanabindandi lyfjum þá gerum
við samning við þá. Þá ávísum við
ýmist sterku verkjalyfi eða örvandi
lyfi í einni töflu gegn því að þeir taki
HIV-lyf eða lyf við lifrarbólgu C,“
segir Már. Oftast er það heimilis-
læknir sem ávísar lyfinu.
Verkefnið hefur staðið yfir í rúmt
ár og gefið góða raun. „Okkur hefur
tekist að halda þessum einstakling-
um, sem hafa engin önnur úrræði,
veirufríum,“ segir Már. Vill hann að
verkefnið verði eflt. „Oftast nær þarf
ekki að grípa til þessa. Það er fullt af
fíklum sem þrátt fyrir sína neyslu
geta sinnt sinni meðferð, en það er
smá kjarni sem er svo langt leiddur
að þeir geta ekki komið og er ekki
treystandi fyrir lyfjunum.“
Baldur Borgþórsson, varaborgar-
fulltrúi Miðflokksins, hefur vakið
athygli á málinu að undanförnu.
„Úrræðaleysið hefur orðið til þess að
okkar verst stöddu fíklar kúga út úr
kerfinu kolólögleg lyf,“ segir Baldur
„Þeir fá sterk lyfseðilsskyld lyf, sem
þeir mylja. Þeir fá svo af hentan
búnað, sprautur, nálar, teygjur til að
binda um handlegginn, bolla til að
malla efnin í og svo fá þeir baðað-
stöðuna á Lindargötu til að nota sem
neyslurými.“
Hrafnhildur Ólafsdóttir, deildar-
stjóri hjá Þjónustumiðstöð Vestur-
bæjar, Miðborgar og Hlíða, tekur
undir með Má að það þurfi að efla
starfið. Tekur hún fram að það sé
aldrei starfsmaður gistiskýlisins
sem útdeili lyfjunum, heldur starfs-
maður vettvangs- og ráðgjafateymis
borgarinnar. „Það er alltaf hjúkrun-
arfræðingur sem sér um lyfjagjöf,“
segir Hrafnhildur.
Baldur segir einstaklingana hafa
hótað að smita aðra ef þeir fá ekki
stærri skammta. „Það eru dæmi um
að þeir hafi hótað að dreifa blóð-
ugum nálum á leikskólalóðum.“
Már segir að ekki sé um að ræða
stóra skammta og það sé ekki hægt
að semja um þá. „Neysla þessa fólks
er miklu meiri en sem nemur þessu,
það vitum við. Þetta er nægilega
góður díll fyrir þessa einstaklinga
til að þeir láti sig hafa þetta og taki
veirulyfin, það er það sem skiptir
máli.“
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir sitt embætti ekki eiga
aðkomu að þessu, en hann viti af
ýmsum brögðum sem læknar beiti
til að meðhöndla sjúklinga. „Þeir
sem eru að meðhöndla einstaklinga
sem eru með mjög alvarlega og smit-
andi sjúkdóma eru með alls konar
tilfæringar til að ná fram samvinnu
og veita fólki meðferð við smitsjúk-
dómum,“ segir hann. „Það eru mjög
erfiðir einstaklingar þarna úti sem er
erfitt að eiga við, þá þurfa menn að
beita alls konar ráðum.“ Hann fagnar
því að læknar geti sýnt sveigjanleika.
„Þessi skaðaminnkandi úrræði eru
einmitt til þess að auðvelda samstarf
við þennan hóp.“ arib@frettabladid.is
Fá rítalín eða Contalgin í
skiptum fyrir að taka lyfin sín
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri
Dæmi eru um að sjúklingar fái lyfin afhent í gistiskýlinu við Lindargötu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hópur langt leiddra
fíkla með alvarlega smit-
sjúkdóma fær að gera
samning um að fá töflu
af Ritalin Uno eða Con-
talgin í skiptum fyrir
að taka veirulyfin sín.
Borgarfulltrúi og sótt-
varnalæknir ósammála
um fyrirkomulagið.
SAMFÉLAG Um 300 manns af öllu
landinu munu um helgina taka þátt
í rökræðukönnun um endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Er þetta liður í
samráði við almenning um endur-
skoðunina.
Rökræðukönnunin sem fram
fer í Laugardalshöll mun taka fyrir
nokkur afmörkuð atriði stjórnar-
skrárinnar. Rætt verður um forseta-
embættið, þjóðaratkvæðagreiðslur,
breytingar á stjórnarskrá, skipan
kjördæma, atkvæðavægi og fleira.
Framkvæmdin verður þannig að
þátttakendum verður skipt í hópa
og verða viðfangsefnin rædd út frá
rökum með og á móti tillögum. Svo
mun þátttakendum gefast tækifæri
til að eiga samtal við sérfræðinga.
Í upphafi og við lok fundar verður
gerð viðhorfskönnun og athugað
hvort breytingar hafi orðið á við-
horfum fólks. Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands annast framkvæmd
könnunarinnar. – sar
Rökræða um
stjórnarskrá
Þátttakendum verður
skipt í hópa og verða við-
fangsefnin rædd út frá
rökum með og á móti.
8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
F
-E
7
0
4
2
4
2
F
-E
5
C
8
2
4
2
F
-E
4
8
C
2
4
2
F
-E
3
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K