Fréttablaðið - 08.11.2019, Blaðsíða 8
FRAKKLAND Emmanuel Macron
Frakklandsforseti segir að fram-
ganga Bandaríkjanna að undan-
förnu hafi gert það að verkum að
Atlantshafsbandalagið sé í raun
„heiladautt“. Bandaríkin hafi ávallt
verið burðarstólpinn í varnarsam-
starfinu en þeir séu hættir að líta á
veru í NATO sem skuldbindingu.
„Það sem við erum að horfa upp á
er heiladauði NATO,“ sagði Macron
við tímaritið The Economist. Vís-
aði hann meðal annars til einhliða
ákvörðunar Bandaríkjanna um að
yfirgefa Sýrland. NATO fagnar 70
ára afmæli sínu á fundi í Lundúnum
í desember. Hefur NATO gefið út í til-
efni af ummælum Macron að sam-
band NATO-ríkjanna sé sterkt.
Fimmta grein stofnsáttmála
NATO kveður á um að árás á eitt ríki
jafngildi árás á þau öll. Macron sagð-
ist ekki vita hvort fimmta greinin
væri í gildi. „Ég veit það ekki,“ sagði
Macron. Bandalagið myndi aðeins
virka ef Bandaríkin væru í því af
heilum hug. „Ég segi að við þurfum
að endurmeta tilgang NATO í ljósi
skuldbindingar Bandaríkjanna.“
Hvetur hann Evrópu til að standa
saman og líta á sig sem stórveldi,
aðeins þannig geti Evrópa haft stjórn
á örlögum sínum. – ab
8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
OPEL INSIGNIA ST SW
Skráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / 60.000 km.
VERÐ: 3.290.000 KR.
TOYOTA AYGO
Skráður: 2019 / Bensín
Beinskiptur / 26.000 km.
VERÐ: 1.990.000 KR.
TRYGGÐU ÞÉR:
• Enga vexti
• Engin lántökugjöld
• Hraðari eignamyndun
• Lægri mánaðargreiðslur
NOTAÐIR BÍLAR
NÚLL
VEXTIR
Við förum alla leið og bjóðum núll prósent vexti við
fjármögnun á völdum notuðum bílum, í takmarkaðan tíma.
TOYOTA YARIS ACTIVE
Skráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / 61.000 km.
VERÐ: 1.930.000 KR.
OPEL KARL ENJOY
Skráður: 2018 / Bensín
Beinskiptur / 25.000 km.
VERÐ: 1.490.000 KR.
SSANGYONG KORANDO DLX
Skráður: 2018 / Dísel
Beinskiptur / 42.000 km.
VERÐ: 3.390.000 KR.
VOLVO XC60
Skráður: 2012 / Dísel
Sjálfskiptur / 140.000 km.
VERÐ: 3.290.000 KR.
SSANGYONG REXTON HLX
Skráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / 25.000 km.
VERÐ: 5.390.000 KR.
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Núll prósent vextir, allt að 80% ármögnun í allt að 24 mánuði af völdum notuðum bílum.
Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
720138 445948
NISSAN QASHQAI TEKNA
Skráður: 2018 / Dísel
Beinskiptur / 52.000 km.
VERÐ: 3.390.000 KR.
OPEL CORSA ENJOY
Skráður: 2015 / Bensín
Sjálfskiptur / 115.000 km.
TILBOÐSVERÐ: 890.000 KR.
445895
590393
Verð áður: 1.190.000 kr.
590424
445801
445949 680056
TOYOTA C-HR HYBRID
Skráður: 2018 / Bensín / Rafmagn
Sjálfskiptur / 54.000 km.
VERÐ: 3.690.000 KR.
445807
TILBOÐ
TILBOÐ
445953
Verð áður: 2.100.000 kr.
Endurmeta þurfi tilgang NATO
Fimmta grein stofnsátt-
mála NATO kveður á um að
árás á eitt ríki jafngildi árás
á þau öll.
ÍRAK Íraskar öryggissveitir skutu í
það minnsta fjóra mótmælendur
til bana og 35 særðust í átökum sem
brutust út í nágrenni Shuhada-brú-
arinnar í Bagdad, höfuðborg Íraks,
í vikunni. Þá kveiktu tugir mótmæl-
enda í hjólbörðum umhverfis Umm
Qasr-hafnarsvæðið og hindruðu
þannig að f lutningabílar kæmust
inn á hafnarsvæðið með lífsnauð-
synleg gögn fyrir íbúa landsins, svo
sem matvæli. Reuters greinir frá.
Blóðug mótmæli sem beinast
gegn stjórnvöldum í Bagdad og
f leiri borgum í suðurhluta Íraks
hafa staðið yfir í landinu í rúman
mánuð og að sögn írösku lög-
reglunnar virðist ekkert lát vera á
mótmælunum. Rúmlega 250 mót-
mælendur hafa látið lífið síðan 1.
október.
Mótmælin hófust eftir að gras-
rótarhreyfingar ungra Íraka settu
fram kröfur um að ráðist yrði í
aðgerðir til að skapa þeim atvinnu-
tækifæri og að spilling í landinu
yrði upprætt.
Stjórnvöld í Írak hafa reynt
ýmsar leiðir til að róa mótmælend-
ur en ekkert virðist ganga. Ríkjandi
stjórn landsins hefur aldrei áður í
valdatíð sinni staðið frammi fyrir
slíkri áskorun en ró hefur verið
yfir landinu eftir ósigur Íslamska
ríkisins árið 2017. Öryggisgæsla er
betri en verið hefur um árabil, en á
sama tíma ríkir hömlulaus spilling
í landinu, innviðir hafa ekki verið
endurbyggðir og atvinnuleysi er
mikið.
Ein leið sem stjórnvöld hafa
beitt til að reyna að stöðva mót-
mælin var að slökkva á internetinu
í landinu en það hefur ekki skilað
tilsettum árangri. Lokun internets-
ins hefur hins vegar teygt anga sína
inn í bæði einkarekin fyrirtæki
og bankakerfi landsins sem hafa
þannig tapað stórum fjárhæðum.
Áætla má að samanlagt tap
banka, fjarskiptafyrirtækja, ferða-
þjónustu og bókunarskrifstofa íra-
skra f lugfélaga sé um 40 milljónir
Bandaríkjadala á hverjum degi,
sem þýðir tap upp á einn og hálfan
milljarð Bandaríkjadala á þeim
rúma mánuði sem mótmælin hafa
staðið yfir.
Stjórnvöld hafa gefið það út að
umræður um að ganga að kröfum
mótmælenda standi yfir en ekki
hafa enn komið fram tillögur sem
mæta kröfum þeirra.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst úr
hópi mótmælenda um að nú sé of
seint að mæta kröfum þeirra um
aukinn jöfnuð, f leiri störf og upp-
rætingu spillingar. Sömu raddir
hafa sett fram auknar kröfur um
breytt vinnulag ríkisstofnana
ásamt breyttu kosninga- og stjórn-
kerfi. birnadrofn@frettabladid.is
Mótmæli hafa staðið
yfir í rúman mánuð
Fjórir létust og 35 slösuðust í átökum mótmælenda og öryggissveita í Írak.
Mótmæli hafa staðið yfir í mánuð og yfir 250 hafa manns látið lífið. Stjórn-
völd hafa reynt ýmsar leiðir, meðal annars að loka á aðgang að interneti.
250 manns hafa látið lífið í átökum mótmælenda og öryggissveita í Írak. Mótmælin hafa staðið yfir í rúman mánuð
eða frá 1. október síðastliðnum. Fjórir voru skotnir til bana í vikunni og 35 manns eru særðir. NORDICPHOTOS/GETTY
Macron, Frakklandsforseti sagði NATO „heiiadautt“. NORDICPHOTOS/GETTY
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
F
-F
5
D
4
2
4
2
F
-F
4
9
8
2
4
2
F
-F
3
5
C
2
4
2
F
-F
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K