Fréttablaðið - 08.11.2019, Síða 16
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gréta Jónsdóttir
Reynimel 50, Reykjavík,
lést sunnudaginn 3. nóvember á
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Sigurður Erling Baldursson
Þuríður Ellisif Baldursdóttir Jóhann S. Erlendsson
Ingi Þór Vöggsson
Baldur og Freyr Jónssynir
Baldur Erling, Margeir Jón, María Sif og Hulda Hrönn
Sigurðarbörn
Arnar Páll og Jóhann Baldur Jóhannssynir
og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar,
ástvinur og bróðir,
Ómar Ásgeirsson
búfræðingur og trésmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
þann 3. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 11. nóvember klukkan 13.00.
Ólöf Huld Ómarsdóttir
Arnar Hlynur Ómarsson
Ómar Sigurbjörn Ómarsson
Einar Auðólfur Ómarsson
Elísabet María Haraldsdóttir
Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir
Sigurbjörn Ásgeirsson
Málfríður Ásgeirsdóttir
Valgerður Ásgeirsdóttir
Ásgerður Ósk Jakobsdóttir
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bera Þorsteinsdóttir
frá Laufási í Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum þriðjudaginn
5. nóvember. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Þorsteinn Ingólfsson Kristrún Gísladóttir
Gylfi Ingólfsson Anna Jenný Rafnsdóttir
Ingólfur Ingólfsson Júlíanna Theodórsdóttir
barnabörn, makar þeirra og langömmubörn.
Innilega þakkir til allra þeirra er
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju
vegna andláts og útfarar eiginmanns
míns og föður okkar,
Ísaks J. Guðmann
Holtateigi 16, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
skurðlækningadeild SAk og starfsfólks Beykihlíðar
á Dvalarheimilinu Hlíð.
Auður Þórhallsdóttir
Guðlaug Halla Ísaksdóttir Gunnlaugur Frímannsson
Kári Í. Guðmann Hrafnhildur Stefánsdóttir
Jón Í. Guðmann Arna Þöll Arnfinnsdóttir
Anna María Guðmann Adam Traustason
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Evy Britta Kristinsdóttir
lést miðvikudaginn 30. október
á Landspítalanum í Fossvogi.
Útför hennar fer fram í Fríkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 13.00.
Ragnar Örn Ottósson Patricia Bustamante Colón
Arnar Már Ottósson
Christel Líf Ottósdóttir Dalmar Ýmir Aronsson
Thelma Karen Ottósdóttir
og barnabörn.
Listamaðurinn
Nonni Ragnarsson
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
F.h. fjölskyldu og vina,
Guðrún Einarsdóttir
Erlingur Einarsson
Brynja var stofnuð 1919, leyfis-bréfið sem hangir hér uppi er frá 8. nóvember það ár. Kannski hefur búðin ekki verið opnuð þann dag, en við ákváðum að miða afmælið
við hann,“ segir Brynjólfur Björnsson,
eigandi Brynju á Laugavegi 29. Hann
ætlar að bjóða gestum og gangandi í kaffi
og tertu í dag milli klukkan 14 og 18. „Það
er full ástæða til að gera sér dagamun,“
segir hann réttilega.
Verkfæri og járnvörur eru aðal Brynju
eins og alþjóð veit, því verslunin hefur
verið fastur punktur í lífi landans í
hundrað ár. Þar starfa nú sjö manns. Við
Brynjólfur sitjum á skrifstofu á efri hæð-
inni sem merkt er Forstjórinn. Áður hafði
ég gengið fram hjá öðrum dyrum með
skilti sem á stendur: Hér er alltaf borgað
út milli klukkan 14 og 17 á föstudögum.
Hinum megin gangsins er lítið eldhús
með lágum bekk því þó að versluninni
hafi verið breytt í tímans rás, til hag-
ræðingar fyrir viðskiptavini, er ýmsum
hlutum leyft að halda sér á loftinu.
Fyrstu tíu árin sín var Brynja á Lauga-
vegi 24, að sögn Brynjólfs, en stofnand-
inn, Guðmundur Jónsson, ákvað þá að
festa kaup á húsi hinum megin götunnar.
„Þetta hús er byggt 1906. Þá var sagt:
„Hvað ertu að byggja búð langt fyrir
utan bæinn?“ því byggðin var öll í Kvos-
inni og náði aðeins upp í Bakarabrekk-
una (Bankastrætið) þannig að þetta var
aðeins úr leið. Hér uppi var íbúð en það
var strax einhver verslun á neðri hæðinni
og gluggarnir voru stærstu búðargluggar
í bænum.
Guðmundur, stofnandi Brynju, var
hálfbróðir ömmu minnar,“ lýsir Brynj-
ólfur. „Hann kom frá Akranesi að læra
smíðar hjá Völundi. Svo slasaðist hann á
hendi og gat ekki smíðað lengur, fór þá
til Noregs og Svíþjóðar og sá þar mikið
af góðum verkfærum sem hann lang-
aði að flytja inn svo hann kom heim og
opnaði Brynju og hún var fyrsta sér-
vöruverslunin með verkfæri. Hann seldi
verslunina árið 1937 og beindi kröftum
sínum að umboðs- og heildsölu við hluta-
félagið Vélar og verkfæri og það er enn
fjölskyldufyrirtæki.“
Brynja hefur verið innan sömu fjöl-
skyldu frá 1954 og Brynjólfur kveðst
hafa verið þar í sendiferðum sem strákur
á sumrin, ef hann hafi ekki verið sendur
í sveit. „Ég var í Englandi og Þýskalandi
í nokkur ár en hef unnið hér sleitulaust
frá 1965 og tók við rekstrinum þegar faðir
minn dó 1993.“
Brynjólfur segir mikil viðskipti hafa
verið við landsbyggðina alla tíð og sýnir
auglýsingu frá Brynju sem birtist í Vest-
firska fréttablaðinu á 4. áratugnum. Þar
stendur: „Saumur, skrúfur, lamir, skrár,
gluggar, gler. Eina sérverslunin sem er
með allar vörur tengdar veggfóðrara-
iðninni.“ Hann kveðst ekki vita um
aðra verslun af þessari stærðargráðu á
landinu nú. „En hér á Laugavegi, Hverfis-
götu, Lindargötu og Skúlagötu var fjöldi
svipaðra verslana á tímabili. Kanarnir
sem koma hingað sem ferðamenn eru
stórhrifnir, þeir segja þessar búðir ekki
sjást lengur vestra, heldur bara risastórar
byggingarvörubúðir, þeim finnst gaman
að koma hingað og líka Bretum. Þessar
búðir eru horfnar hjá þeim og þeir sakna
þeirra. En nú veit maður ekkert hvernig
þessar breytingar í miðbænum fara með
okkur.“ gun@frettabladid.is
Fyrsta verkfæraverslunin
Verslunin Brynja fagnar aldarafmæli í dag. Hún plumar sig á Laugaveginum innan um
lundabúðir og kaffihús. Búðargluggar hennar voru í byrjun þeir stærstu í borginni.
Brynjólfur Björnsson í ríki sínu innan um hin aðskiljanlegustu áhöld og allt sem þeim tilheyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Borgaði með vísu
Í lokin er hér lítil saga úr kreppunni
upp úr 1930, sem Brynjólfur miðlar.
„Guðmundur, eigandi Brynju, hafði
selt heila rúllu af gólfdúk gegn
loforði um greiðslu ákveðinn dag,
kaupandinn mætti á tilsettum tíma
og borgaði með þessari vísu:
Margir stynja mín er trú.
Mér er synjað braskið.
Þótt að hrynji þjóðarbú
þolir Brynja hnjaskið.
1879 Hið íslenska fornleifafélag er stofnað.
1895 Wilhelm Conrad Röntgen uppgötvar röntgengeislana.
1949 Fyrstu umferðarljósin eru tekin í notkun á fjórum gatna-
mótum í miðbæ Reykjavíkur.
1960 John F. Kennedy er kosinn forseti Bandarikjanna.
1978 Friðrik Ólafsson er kjörinn forseti Alþjóðaskáksambandsins
FIDE.
1979 Hjördís Björk Hákonardóttir er fyrst kvenna skipuð sýslu-
maður á Íslandi. Það er í Strandasýslu.
1983 Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Rán, ferst í Jökulfjörðum og
með henni fjórir menn.
2013 Fellibylurinn Haiyan ríður yfir Filippseyjar. Tugir þúsunda
farast og hundruð þúsunda lenda á vergangi.
2016 Donald Trump er kosinn forseti Bandarikjanna.
Merkisatburðir
8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
0
-0
4
A
4
2
4
3
0
-0
3
6
8
2
4
3
0
-0
2
2
C
2
4
3
0
-0
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K