Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 6
Við erum að eyða gríðarlegum fjár- hæðum í að kaupa aðgang að rannsóknarniðurstöðum. Sigurgeir Finnsson, verkefnastjóri hjá Landsbókasafni VÍSINDI „Við erum svolítið á eftir þegar kemur að opnum aðgangi. Á hinum Norðurlöndunum hefur verið mörkuð stefna um hvernig eigi að ná fram markmiðum um opinn aðgang. Íslensk stjórnvöld eru ekki með neina stefnu en vinna er þó í gangi,“ segir Sigurgeir Finns- son, verkefnastjóri hjá Landsbóka- safni. Sigurgeir, sem einnig er ritstjóri vefsins openaccess.is, sem fjallar um opinn aðgang, verður meðal frummælenda á málþingi Vísinda- félags Íslendinga um opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum. Mál- þingið verður haldið í Þjóðminja- safninu í dag klukkan 12 til 14. Hugtakið opinn aðgangur snýst um þá kröfu að almenningur, nem- endur og vísindafólk um allan heim hafi óheftan aðgang að niður- stöðum rannsókna sem unnar hafa verið fyrir almannafé. Sigurgeir bendir á að samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir skuli niðurstöð- ur rannsókna sem styrktar eru úr rannsóknarsjóði eða innviðasjóði birtar í opnum aðgangi nema um annað sé samið. „Það eru nokkrir háskólar hér sem hafa markað sér stefnu um opinn aðgang, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Bifröst, en þar er líka gefið færi á undan- þágum,“ segir Sigurgeir. Undanþágur séu veittar vegna þess að f lestir vilji birta rannsóknir sínar í virtustu og áhrifamestu ritunum sem oft þurfi að kaupa áskrift að. „Við hérna á Landsbókasafni sjáum um landsaðgang sem er samlag íslenskra háskóla og rann- sóknarstofnana um kaup á þessum áskriftum. Það er verið að borga um 200 milljónir árlega fyrir það.“ Sigurgeir segir að á heimsvísu sé um gríðarlegar fjárhæðir að ræða en háskólar og bókasöfn séu á árs- grundvelli að borga á bilinu 7 til 8 milljarða evra fyrir þessar áskriftir. „Það sem þessi hreyfing um opinn aðgang gengur út á er að breyta þessu módeli. Fá fólk frekar til að birta í tímaritum í opnum aðgangi.“ Í landsaðganginum séu ekki allar vísindagreinar aðgengilegar og þótt hægt sé að nálgast mikið efni í gegnum íslenskar IP-tölur sé ekki um opinn aðgang að ræða þar sem búið sé að borga fyrir aðganginn. Einn stærsti útgefandi vísinda- rita er Elsevier en hagnaður fyrir- tækisins á síðasta ári nam um 1,2 milljörðum dollara eða sem nemur um 150 milljörðum króna. „Það sem er að gerast úti í heimi er að margir aðilar eru hættir að kaupa þessar áskriftir að Elsevier. UCLA-háskóli ákvað til dæmis að hætta þessum áskriftum en vís- indamenn við skólann koma að um tíu prósentum allra vísindagreina sem eru birtar í Bandaríkjunum.“ Þar að auki hafi hópur opin- berra evrópskra rannsóknarsjóða sett fram markmið um að árið 2021 verði allar niðurstöður rannsókna sem fengið hafi opinbera styrki birtar í opnum aðgangi. „Við erum að eyða gríðarlegum fjárhæðum í að kaupa aðgang að rannsóknarniðurstöðum og vís- indamenn eru að reyna að leysa alls kyns vandamál. Þá viltu komast í nýjustu rannsóknir eins f ljótt og auðið er.“ sighvatur@frettabladid.is Rannsóknir séu sem flestum aðgengilegar Verkefnastjóri hjá Landsbókasafni segir Ísland á eftir hinum Norðurlönd- unum þegar komi að opnum aðgangi að niðurstöðum vísindarannsókna. Málefnið verður rætt á málþingi Vísindafélagsins í Þjóðminjasafninu í dag. Háskólar og bókasöfn greiða um 200 milljónir króna á ári í áskriftir að vísindaritum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Eigum nokkra yfirfarna nýlega Hyundai hjá okkur í Kauptúni 1, Garðabæ sem eru enn í ábyrgð. Komdu og gerðu frábær kaup! Notaðir ALLT AÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ Hyundai notaðir bílar Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 575 1200 - notadir@hyundai.is Opið frá kl. 9–18 virka daga og á laugardögum frá kl. 12–16. KJARAVERÐ: 4.090.000 kr. VERÐ: 3.790.000 kr. VERÐ: 2.490.000 kr. KJARAVERÐ: 1.990.000 kr. VERÐ: 5.590.000 kr. VERÐ: 3.540.000 kr. KJARAVERÐ: 2.190.000 kr. KJARAVERÐ: 2.190.000 kr. Rnr. 121786 Rnr. 121707 Rnr. 103932 Rnr. 170458 Rnr. 146323 Rnr. 121785 Rnr. 103941 Rnr. 103938 E N N E M M / S ÍA / N M 9 6 8 1 9 B íl a la n d H y u n d a i n o t a ð ir 2 x 3 8 1 5 n o v HYUNDAI IONIQ PHEV Style Nýskr. 05/19, ekinn 2 þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. HYUNDAI i30 Premium Nýskr. 05/18, ekinn 20 þ.km, bensín, sjálfskiptur. HYUNDAI i20 Premium Nýskr. 11/18, ekinn 13 þ.km, bensín, beinskiptur. HYUNDAI i10 Premium Nýskr. 09/19, ekinn 100 km, bensín, beinskiptur. HYUNDAI Santa Fe III Premium Nýskr. 07/16, ekinn 50 þ.km, dísil, sjálfskiptur. HYUNDAI i30 Comfort Nýskr. 04/19, ekinn 2 þ.km, bensín, sjálfskiptur. HYUNDAI i20 Classic Nýskr. 09/19, ekinn 100 km, bensín, beinskiptur. HYUNDAI i10 Comfort Nýskr. 07/19, ekinn 300 km, bensín, sjálfskiptur. HEILBRIGÐISMÁL „Á heilbrigðis- þingi verður fjallað um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustunni. Það er tímabært að fram fari víðtæk umræða um þenn- an mikilvæga grundvöll f lókinna ákvarðana sem heilbrigðisstarfs- fólk þarf að glíma við á hverjum degi,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Heilbrigðisþing 2019 fer fram á Hilton Nordica í dag. Í fyrsta hluta þingsins verður fjallað um mann- helgi og virðingu fyrir mannlegri reisn. Einnig verður fjallað um þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og rétt þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu. Í síðasta hlutanum verður svo rætt um hagkvæmni og skilvirkni. Svandís segir að ákvörðunum um siðferðileg gildi og forgangsröðun muni fjölga með nýrri tækni, f lókn- ari lyfjum og framförum í vísindum og nýsköpun. „Ég stefni að því að leggja fram þingsályktun um gildi og forgangs- röðun á vorþingi til að treysta enn betur grundvöll okkar öfluga heil- brigðiskerfis.“ Umræðuefni þingsins tengist áherslum sem fram koma í heil- brigðisstefnu til 2030 sem sam- þykkt var á Alþingi í júní síðast- liðnum. Í aðdraganda þingsins var hald- inn fjölmennur vinnufundur til að leggja grunn að umfjöllun þings- ins. Þar tóku þátt stjórnendur og fagfólk frá stofnunum heilbrigðis- ráðuneytisins og fulltrúar háskóla- samfélagsins. Dagskrá heilbrigðisþings hefst klukkan 9 í dag og stendur til klukk- an 16. Streymt verður frá þinginu á vefslóðinni heilbrigdisthing.is. – sar Tímabært að ræða um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu Svandís Svavarsdóttir. 1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 E -1 C B 8 2 4 3 E -1 B 7 C 2 4 3 E -1 A 4 0 2 4 3 E -1 9 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.