Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 21
Sala á tengiltvinnjeppum og rafmagnsbílum hefur farið vaxandi víða um heim und- anfarin ár þar sem sífellt f leiri velja umhverfisvæna kosti og Ísland er þar engin undantekning. Peugeot leggur sitt af mörkum til að taka þátt í raforkuskiptum með fram- boði á langdrægum, kraftmiklum Peugeot 3008 tengiltvinnjeppa með allt að 59 km drægni, Peugeot e-208 raf bíl með 340 km drægni og Peugeot e-2008 raf bíl sem hefur 310 km drægni. „Þessir bílar eru merki um einbeitta stefnu Peugeot um að allar gerðir Peugeot bíla verði fáanlegar í rafmagnaðri útgáfu árið 2025,“ segir Benný Ósk Harðardóttir, sölustjóri Peugeot á Íslandi. „Brimborg, umboðsaðili Peugeot á Íslandi, hefur nú þegar hafið forsölu á Peugeot 3008 SUV tengiltvinnjeppanum og Peugeot e-208 raf bílnum, en forsala á Peugeot e-2008 raf bílnum hefst í desember.“ Langdrægur tengiltvinnjeppi með fram- eða fjórhjóladrifi „Peugeot 3008 SUV á stóran hlut í auknum vinsældum Peugeot á Íslandi og nú kemur hann í tengil- tvinnútgáfu með 22 cm veghæð og drægni á 100% hreinu rafmagni sem er allt að 59 kílómetrar. Bílinn er hægt að fullhlaða á aðeins einni klukkustund og 45 mínútum,“ segir Benný. „Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er ekki nema 1,6 til 2,2 l á hverja 100 kílómetra og CO2 losun er aðeins 33-49 grömm á kílómetra, samkvæmt WLTP- mælingu. Í Peugeot 3008 SUV PHEV er val um tvær aflrásir,“ segir Benný. „Annars vegar 225 hestöfl með framdrifi og hins vegar 300 hestöfl með fjórhjóladrifi. Báðar útgáfur bjóða upp á átta gíra sjálfskipt- ingu, fimm ára heildarábyrgð og átta ára ábyrgð á rafhlöðu. Í fyrstu verður Peugeot 3008 SUV PHEV í boði í GT útfærslu, hlaðinn staðalbúnaði auk 300 hestafla vélar og fjórhjóladrifs,“ segir Benný. „Hann er annars vegar knúinn áfram af bensínvél og hins vegar af tveimur rafmagnsvélum sem skila samanlagt 300 hest- öflum, miklu afli og einstökum aksturseiginleikum. Það er líka hægt að nota fjórhjóladrifið á 100% rafmagnsstillingu. Peugeot 3008 SUV er marg- verðlaunaður og hefur fengið sérstakt lof fyrir einstaka hönnun. Að innan er nútímaleg i-Cockpit innrétting í lykilhlutverki með nýjustu tækni, þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu öku- manns,“ segir Benný. „Nýr Peugeot 3008 SUV PHEV er væntanlegur í febrúar 2020.“ 100% rafbíll með 340 km drægni „Glænýr Peugeot e-208 er sjálf- skiptur, 136 hestafla raf bíll með 50 kW rafhlöðu sem skilar allt að 340 kílómetra drægni við kjöraðstæð- ur, samkvæmt WLTP mælingu. Rafhlöðuna er hægt að hraðhlaða í allt að 80% hleðslu á 30 mínútum og í 100% hleðslu á 7,5 klst. með heimahleðslustöð,“ segir Benný. „Hönnun nýja Peugeot e-208 hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið útlit að innan sem utan og bíllinn er rúmgóður að innan, þar sem rafhlaðan tekur ekkert pláss frá innra rými bílsins. Þú sest inn í fullkominn staf- rænan heim í Peugeot e-208, með nýjustu kynslóð af tækni og þrívíddarmælaborð,“ segir Benný. „Bíllinn hefur nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoðar ökumann- inn við akstur og tryggir örugga ökuferð. Peu- geot e-208 er væntanlegur í janúar og verð er frá 3.790.000 kr.“ Nýr Peugeot e-2008 SUV rafbíll með 300 km drægni „Nýr Peugeot e-2008 SUV er sjálfskiptur, 136 hestafla raf bíll með 50 kW rafhlöðu sem skilar drægni við kjöraðstæður allt að 310 kílómetra, samkvæmt WLTP- mælingu. Rafhlöðuna er hægt að hraðhlaða í allt að 80% hleðslu á 30 mínútum og í 100% hleðslu á 7,5 klst í heimahleðslustöð,“ segir Benný. „Útlitið er nútímalegt og sportlegt að innan sem utan og óhætt er að segja að nýr 2008 gefi Peugeot 3008 SUV ekkert eftir. Með stafrænu i-Cockpit þrí- víddarmælaborði hefur þú akstursupplýsingar og stjórntæki á skjánum fyrir framan þig eða í stýrinu. Sportstýri i-Cockpit eykur líka stjórn og veitir næmara viðbragð, en þetta gerir þér sem ökumanni kleift að einbeita þér að því skemmtilega; að keyra!“ segir Benný. „Peugeot e-2008 SUV er væntanlegur í apríl 2020 og verður kynntur nánar síðar.“ Nýtt snjallsímaforrit sem gefur yfirsýn og aukna stjórn „Samhliða þessum nýju bílum kynnir Peugeot snjallsímaforritið My Peugeot App, þar sem þú hefur yfirsýn og getur stjórnað aðgerð- um. Má þar nefna stöðu á hleðslu, tölfræði um rafmagnsnotkun í síðustu ferðum og möguleika á að virkja, stöðva eða tímasetja hleðslu,“ segir Benný. „Það er meira að segja hægt að tímastilla forhitun svo að þú getir sest inn í heitan bíl. Vinsældir Peugeot bíla á Íslandi hafa aukist síðustu ár og nýtt raf- magnað framboð mun bara auka vinsældirnar enn frekar,“ segir Benný. „Nú þegar hafa viðbrögðin í forsölu á nýjum Peugeot 3008 SUV PHEV og Peugeot e-208 farið fram úr björtustu vonum. Sala tengiltvinnjeppa hefur aukist víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi, en Brimborg hefur tryggt sér takmarkað magn bíla sem eru nú til forsölu í nýjum vefsýningar- sal á brimborg.is og í sýningar- sal Peugeot við Bíldshöfða 8 í Reykjavík og á Tryggvabraut 5 á Akureyri,“ segir Benný. „Komdu og láttu gæðin heilla þig og stökktu með okkur inn í næstu kynslóð af tækni og rafmagnaða framtíð hjá Peugeot.“ Allar nánari upplýsingar má fá hjá sölustjóra Peugeot á Ís- landi, Benný Ósk Harðardóttur, bennyh@brimborg.is eða í síma 515 7802. Rafmögnuð framtíð með Peugeot Peugeot ætlar að bjóða alla sína bíla í rafmagnaðri útgáfu fyrir árið 2025. Nú þegar er von á tveimur nýjum rafmagnsbílum og 300 hestafla tengiltvinnjeppa frá framleiðandanum. Benný hvetur fólk til að líta inn í sýningarsali Peugeot við Bíldshöfða í Reykjavík og Tryggvagötu á Akureyri og láta gæðin heilla sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Peugeot 3008 tengiltvinnjeppinn er með allt að 59 km drægni á hreinu raf- magni og það er hægt að fullhlaða hann á aðeins einni klukkustund og 45 mínútum. Hægt er að nota fjórhjóladrifið á 100% rafmagnsstillingu. Peugeot e-208 rafbíllinn er sjálfskiptur og hefur allt að 340 kílómetra drægni. Bíllinn er rúmgóður að innan og búinn nýjustu aksturs- og öryggistækni. Peugeot e-2008 SUV er sjálfskiptur og með allt að 310 kílómetra drægni. Hann hefur nútímalegt og sportlegt útlit og er með sportstýri. Allar gerðir Peugeot bíla verða fáanlegar í raf- magnaðri útgáfu árið 2025. KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 1 5 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 VISTVÆNIR BÍLAR 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 E -0 D E 8 2 4 3 E -0 C A C 2 4 3 E -0 B 7 0 2 4 3 E -0 A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.