Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 20
Ari Ásgeir Guðjónsson ariasgeir@frettabladid.is Áætlunin var unnin í sam-starfi við Alþjóðaaksturs-íþróttasambandið, FIA, Formúlu 1 lið, sérfræðinga í sjálf- bærni og aðra tengiliði samtak- anna. Samkvæmt tilkynningunni verður um leið hafist handa við minnkun kolefnislosunar á kapp- akstursbrautunum. „Með því að koma af stað fyrsta sjálf bærniverkefni í sögu Form- úlu 1, erum við meðvitaðir um það mikilvæga hlutverk sem öll samtök verða að taka að sér í bar- áttunni við það alheimsvanda- mál sem loftslagsbreytingarnar eru,“ segir Chase Carey, stjórnar- formaður og framkvæmdastjóri F1. Í fréttinni er lögð áhersla á það mikilvæga hlutverk sem Formúla 1 gegnir er kemur að nýsköpun í bílaiðnaðinum. Samtökin hafi stærri vettvang til þess að stuðla að hraðari þróun nýrrar tækni 4 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RVISTVÆNIR BÍLAR Gefur út sjálfbærniverkefni Formúla 1 tilkynnti á heimasíðu sinni fyrir skemmstu áætlanir sínar um að kolefnisjafna sig fyrir árið 2030. Formúlan hefur verið frumkvöðull í tæknimálum og nýjungum í yfir 70 ár. Formúla 1 hefur alla tíð verið framarlega í nýjustu tækni er varðar búnað í aksturstæki. Kappakstur Formúlu 1 sem fram fór í Austin í Texas núna í nóvember. Glæsilegir kappakstursbílar fóru eftir brautinni og hér er einn þeirra. með það að markmiði að minnka kolefnislosun sem núverandi sprengihreyf lar gefa frá sér. Sam- kvæmt því munu tvinnhreyf lar leika stórt hlutverk í framtíð bíla- iðnaðarins. Frumkvöðull í tæknimálum „F1 hefur í yfir 70 ár verið frum- kvöðull í tæknimálum og tækni- nýjungum sem hafa verið lofsvert framlag til heimsbyggðarinnar og stuðlað að minni kolefnis- losun. Dæmi um þetta eru tíma- mótaskref í loftf læðihönnun og framförum í hemlatækni. Fram- farir á þessum sviðum, sem hafa orðið innan herbúða Formúlu 1 keppnisliða, hafa gagnast hundr- uðum milljóna ökutækja sem eru í notkun í dag,“ sagði Carey. Með tvinnhreyf lum í núver- andi formúlubílum, sem gerir þá af lmeiri þrátt fyrir minni eldsneytiseyðslu, ásamt sjálf bæru eldsneyti og endurnýtanlegri orku, gefst tækifæri til þess að draga enn frekar úr umhverf- isáhrifum þeirra. Af öllum bílum heimsins, sem eru um 1,1 milljarður, er rúmur milljarður knúinn sprengihreyf lum og gæfi þessi tækni því tækifæri til gríðarlegs samdráttar í kolefnis- losun um allan heiminn. Carey sagði að það væri ekki á allra vitorði að sparneytnustu af lrásir sem til eru miðað við af l væri að finna í F1 bílum. „Við teljum að F1 geti áfram verið í fararbroddi tæknifram- fara í bílaiðnaðinum. Við teljum að með samstarfi við vélafram- leiðendur og bílaiðnaðinn sé framleiðsla á tvinnvél sem losar ekki kolefni innan seilingar. Vél af þessu tagi myndi draga gríðarlega úr kolefnislosun um allan heim þegar hún fer síðar í fjöldafram- leiðslu fyrir önnur ökutæki.“ Til þess að auka framlag sitt enn frekar til kolefnisjöfnunar ætlar F1 að eiga frumkvæði að því að tryggja eins mikla nýtni og hægt er. Til að mynda á öllu sem lýtur að skipulagningu á aðdráttum, viðhaldi og f lutningi á vistum, skrifstofum, aðstöðu og verksmiðjum og með notkun 100% endurnýtanlegrar orku. Skuldbinda sig til sjálfbærni Samkvæmt áætlun munu allir viðburðir F1 vera orðnir sjálf- bærir fyrir 2025. Í því felst notkun sjálf bærra efna og bann við einnota plasti. Einnig mun allur úrgangur verða endur- nýttur, endurunninn eða settur í safnhaug. Auk þess ætlar F1 að bjóða upp á leiðir fyrir aðdá- endur til að komast á kappakstur eftir umhverfisvænni leiðum og tryggja vellíðan þeirra á braut- unum án þess þó að taka nánar fram hvernig það verður gert. Einnig verður aðgengi heima- manna, fyrirtækja og samtaka að Formúlu 1 viðburðum bætt. Jean Todt, fyrrverandi liðs- stjóri Ferrari og forseti FIA frá árinu 2009, fagnar mjög framtaki F1 og segir það í takt við stefnu umhverfisverndar- og sjálf bærni- nefndar Alþjóðaakstursíþrótta- sambandsins og rannsóknir þess á endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir akstursíþróttir. FIA hafi kynnt til sögunnar tvinnvél fyrir Formúlu 1 strax árið 2014 og stefnan nú sé í rökréttu fram- haldi. „FIA fagnar mjög framtaki F1. Það boðar ekki einungis bjarta framtíð fyrir akstursíþróttirnar heldur ekki síður fyrir heims- byggðina alla. Með samstilltu átaki Formúlu 1 keppnisliðanna, ökuþóra, fjölda hagsmunaaðila sem tengjast F1 og síðast en ekki síst þeirra milljóna aðdáenda íþróttarinnar um allan heim eru F1 og FIA staðráðin í því að knýja fram tækniframfarir á þessu sviði og tryggja það að mikil- vægi akstursíþrótta í framþróun umhverfisvænna tækninýjunga aukist enn frekar,“ segir Todt. FULLKOMNASTA HLEÐSLUTÆKIÐ OKKAR FYRIR RAFBÍLA Reykjanesbær Bolafæti 1 S: 420 7200 Reyðarfjörður Nesbraut 9 S: 470 2020 Selfoss Eyrarvegi 67 S: 4 800 600 Hafnarfjörður Bæjarhrauni 12 S: 5 200 880 Grundartangi Mýrarholtsvegi 2 S: 5 200 830 Akureyri Draupnisgötu 2 S: 4 600 800 Reykjavík Klettagörðum 25 S: 5 200 800 CHARGESTORM CONNECTED Allt að 22 kW, eitt eða tvö tengi, með eða án snúru Innbyggður varbúnaður og lekaliði Aflstýranlegt MID-vottaður orkumælir Nánari upplýsingar á ronning.is/rafbilar Fyrir einbýli, fjölbýli, fyrirtæki og hótel Samkvæmt áætlun munu allir við- burðir F1 vera orðnir sjálf bærir fyrir 2025.Í því felst notkun sjálf- bærra efna og bann við einnota plasti. 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 E -0 D E 8 2 4 3 E -0 C A C 2 4 3 E -0 B 7 0 2 4 3 E -0 A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.