Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.11.2019, Blaðsíða 14
Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD KL. 20:10 KAUPTU STAKAN LEIK: Lið Íslands í leiknum (4-4-2) Hannes Þór Hallórsson Guðlaugur Victor Pálsson Kári Árnason Ragnar Sigurðsson Ari Freyr Skúlason (Mikael Neville Anderson) (85.) Arnór Ingvi Traustason (Hörður Björgvin Magnússon) (63.) Birkir Bjarnason Gylfi Þór Sigurðsson (f) Jón Daði Böðvarsson Alfreð Finnbogason (Arnór Sigurðsson) (24.) Kolbeinn Sigþórsson ✿ Undankeppni EM Tyrkland 0 0- Ísland Hörður Björgvin Magnússon var nálægt því að tryggja íslenska liðinu stigin þrjú í Istanbúl í gærkvöldi en skalli hans var varinn á línu. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ísland mun þurfa umspil til þess að tryggja sér farseðilinn í lokakeppni Evrópumótsins í knatt­ spyrnu karla en það varð ljóst eftir jafntef li íslenska liðsins á móti Tyrklandi í leik liðanna í Istanbúl í gærkvöldi. Það var ljóst fyrir leikinn að jafn­ tefli myndi duga Tyrklandi til þess að komast áfram og leikmyndin litaðist töluvert af þeirri staðreynd. Tyrkneska liðið, sem hafði fengið þrjú mörk á sig í undankeppninni fyrir þennan leik, varðist vel og var ávallt hættulegt þegar liðið sótti hratt. Tvö af mörkunum sem Tyrkland hafði fengið á sig í riðlinum komu í fyrri leik Íslands og Tyrklands á Laugardalsvellinum en þau komu bæði eftir föst leikatriði. Íslenska liðið tók við sér undir lok leiksins Það var einmitt eftir eitt slíkt sem Hörður Björgvin Magnússon sem kom inn á sem varamaður í seinni hálf leik fékk langbesta tækifæri Íslands til þess að tryggja íslenska liðinu sigurinn og halda lífinu í von­ inni um að enda í öðru af tveimur efstu sætum riðilsins fyrir lokaum­ ferðina. Skalla  Harðar Björgvins eftir hnitmiðaða hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar var bjargað á mark­ línu af tyrkneskum varnarmanni.   Skipulagið sem Erik Hamrén og Freyr Alexandersson, þjálfarar íslenska liðsins, og teymið í kring­ um liðið hafði gert fyrir leikinn riðlaðist líklega þó nokkuð þegar Alfreð Finnbogason fór meiddur af velli um miðbik fyrri hálfleiks. Hörður var nálægt því að kasta líflínu  Íslenska karlalands- liðið í knattspyrnu gerði markalaust jafntefli á móti Tyrklandi á útivelli í næstsíðustu umferð í undankeppni EM 2020 í gærkvöldi. Þar með er það ljóst að Tyrkland og Frakkland fara beint áfram í lokakeppnina og Ísland fer í umspil um laust sæti á mótinu.   Hamrén og Freyr skiptu Arnóri Sigurðssyni inn á en þeir hafa lík­ lega haft Arnór í huga sem vara­ mann fyrir annan leikmann og seinna í leiknum. Eftir að hafa leikið varfærnis­ lega framan af leiknum fóru leik­ menn íslenska liðsins að taka meiri áhættu þegar um það bil hálftími var eftir af leiknum. Það leikplan var nálægt því að ganga upp. Umspilsleikur fram undan í vetrarkuldanum í mars Viðar Örn Kjartansson var síðan veikur í gærkvöldi og það fækkaði sóknarmöguleikunum af vara­ mannabekknum ofan á þau meiðsli sem herjuðu á hópinn fyrir lands­ liðsgluggann. Það er ljóst að Ísland fer í umspil um laust sæti á Evrópumótinu en þeir leikir fara fram  í mars á næsta ári. Eins og staðan er núna verður andstæðingur íslenska liðs­ ins þar Búlgaría, Rúmenía eða Ísrael.   Fari svo að Sviss komist áfram úr D­riðli keppninnar verður andstæð­ ingurinn hins vegar Norður­Írland, Írland eða Slóvakía. Sviss er í þriðja sæti D­riðilsins eins og sakir standa en liðið mætir Georgíu í kvöld og Gíbraltar í lokaumferð riðilsins. Fari úrslit eftir bókinni í þeim leikjum sem eftir eru í D­riðlinum verður seinni sviðsmyndin raunin í mars. Næsta verkefni íslenska liðsins er hins vegar að klára riðilinn með sóma en liðið mætir Moldóvu í loka­ umferðinni á sunnudaginn kemur. Alfreð verður fjarri góðu gamni í þeim  leik en hann  fór úr axlar­ lið í leiknum  í gær.  Ekki  er ljóst hversu  alvarleg meiðsli Arnórs Ingva Traustasonar eru. Arnór Ingvi virtist hafa tognað aftan í læri en hann fór af velli í seinni hálfleik. Þá er spurning hvort Viðar Örn verði búinn að hrista af sér veikindin í tæka tíð fyrir þann leik. Nú þurfa svo vallarstarfsmenn Laugardalsvallar að fara upp á tærnar og íslenskir knattspyrnu­ áhugamenn að biðja til veður­ guðanna í von um að Laugardals­ völlurinn verði leikfær þegar að umspilinu kemur. Litlar líkur eru á því að bygging Laugardalsvallar verði komin úr undirbúnings­ nefnd í tæka tíð fyrir þá viðureign. hjorvaro@frettabladid.is Kári Árnason Var eins og klettur í vörn íslenska liðsins og gerði sig gildandi í föstum leikat- riðum. Eldist eins og gott rauðvín og lætur engan bilbug á sér finna þótt kominn sé hátt á fertugsaldur. ✿ Maður leiksins 1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 5 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 E -1 2 D 8 2 4 3 E -1 1 9 C 2 4 3 E -1 0 6 0 2 4 3 E -0 F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.