Fréttablaðið - 15.11.2019, Qupperneq 11
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
Hönnun: ARTPRO
Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegi 6 | 113 Reykjavík | Sími 534 6050 | merkur@merkur.is | www.merkur.is
The largest of a successful family.
125 K
Technical data
Max. lifting capacity 8,000 kg
Max. radius 55 m
Max. lifting capacity at the jib head 1,300 kg
Maximum hook height 65 m
The largest of a successful family.
125 K
Technical data
Max. lifting capacity 8,000 kg
Max. radius 55 m
Max. lifting capacity at the jib head 1,300 kg
Maximum hook height 65 m
- 8 tonna lyftigeta, alltaf í tvöföldu.
- 55m bóma, 1.300 kg í enda.
- 19,3 til 41,5m hæð undir krók (65,5m í 30°).
- Micromove = nákvæmni upp á mm eins og í öllum sjálfreisandi Liebherr krönum.
- Allir kostir Liebherr turnkrana s.s hraði eru í þessum sjálfreisandi krana.
- Kostnaður við reisingu / fellingu er brot af kostnaði við turnkrana.
Þú getur komið og skoðað / prófað laugardaginn 16. nóvember milli kl. 12 & 15 á Suðurgötunni.
Hlökkum til að sjá þig.
Er mættur til vinnu í Húsi íslenskunnar
Stærsti & Sterkasti
SJÁLFREISANDI KRANI HEIMS
Það er vitað frá aldaöðli að þorstinn eftir ríki-dæmi er vísasta leiðin til þess að týna sjálfum sér. Algjör samstaða er um
þetta meðal trúarbragða heimsins
og helstu hugsuða mannkyns-
sögunnar—allt frá Móse til Krists,
Búddha, Múhameðs og Yoda.
Ásælni er ein af höfuðsyndunum;
það er synd að vera upptekinn af
því að vilja komast yfir sífellt f leiri
efnislega hluti. Það er illt að vera
gráðugur.
Er græðgin góð?
Það er margt sem skilur að ólíka
heimspeki og trúarbrögð heims-
ins, en viðvaranir við dýrkun á
veraldlegum munaði og ríkidæmi
eiga þau sem sagt sammerkt.
Þessi sannleikur virðist þó þess
eðlis að mennirnir þurfi sífellt
að uppgötva hann upp á nýtt,
því villuljósin sem benda í hina
áttina eru býsna sterk. Á undan-
förnum árum og áratugum hafa
nefnilega ýmsir nýir spámenn og
spekingar sett fram kenningar í
þveröfuga átt við hinar aldagömlu
kennisetningar trúarbragða og
heimspeki. Gordon Gekko sagði í
kvikmyndinni Wall Street: „Greed
is good“ og rökstuddi það með
þeirri kenningu að græðgi væri
forsenda allra framfara, því án
hennar fengi hið nýja aldrei að
ryðja hinu gamla úr vegi. Margir
trúðu þessu.
Þegar betur er að gáð þá
finnast örugglega engin dæmi
um uppfinningamenn, listafólk,
vísindamenn eða raunverulega
frumkvöðla í viðskiptum sem
hafa þakkað peningagræðgi fyrir
árangur sinn. Engum dettur í
hug að það sé græðgi sem rekur
milljarðamæringa eins og Paul
McCartney og Madonnu upp á
svið eða að blind græðgi drífi
áfram gott vísinda- og listafólk. Öll
markverð framþróun er nefnilega
knúin áfram af máttugri og göfugri
hvötum.
Græðgi og spilling
Græðgi er hugtak sem á fyrst og
fremst við um það þegar menn
verða svo helteknir af efnislegum
gæðum og stöðutáknum, að þeir
stytta sér leið til þess að njóta
uppskeru sem þeir hafa ekki sáð
til heldur einhver annar. Gróðinn
sjálfur er sem sagt ekki vondur
þótt græðgin sé slæm. Það er ekki
græðgi að verða ríkur, ef ríki-
dæmið er uppskera þess að hafa
lagt eitthvað af mörkum sem aðrir
þurfa á að halda eða kunna að
meta.
Í samfélagi sem vill beina
kröftum fólks í uppbyggilegan far-
veg er því mikilvægt að hagnaðar-
vonin leiði fólk frekar í áttir þar
sem það berst fyrir því að skapa
af eigin rammleik ný verðmæti
frekar en að ná til sín verðmætum
frá öðrum.
Í spilltum samfélögum eiga þeir
erfitt uppdráttar sem vilja skapa
verðmæti á heiðarlegan og upp-
byggilegan hátt en þeir blómstra
hins vegar sem svífast einskis við
að sölsa undir sig auðlindir og
verðmæti sem aðrir eiga eða skapa.
Ekkert land er alveg alsaklaust af
spillingu og meira að segja er það
þannig víða í Evrópu að ekki er
hægt að stunda venjulega starf-
semi án þess að greiða hin ýmsu
„verndargjöld“ til glæpasamtaka.
Heimurinn er nefnilega oftast ekki
Þungt högg fyrir markaðsfrelsið
alveg svart-hvítur, heldur risa-
stórt grátt svæði. Strangheiðarlegt,
jafnt sem flókið eða óheiðarlegt
fólk þarf að sætta sig við slíkan
tilkostnað við að eiga í viðskiptum.
En þetta er hættusvæði. Þeir sem
freista þess að stunda viðskipti í
slíkum samfélögum þurfa að hafa
sterk bein til þess að láta ekki
spillinguna og græðgina ná sömu
tökum á sjálfum sér. Sjálfsrétt-
lætingin nær nefnilega gjarnan
yfirhöndinni þegar fyrirhafnar-
lítil gróðavon blasir við, og smám
saman flyst fólk frá ljósgráa
svæðinu yfir á það dökkgráa, uns
það áttar sig á því að sífelldar mála-
miðlanir við samviskuna hafa leitt
það inn á kolsvartar brautir.
Nægilega mörg kurl
Ekki eru nærri því öll kurl komin
til grafar í málefnum Samherja
í Namibíu, en nægilega mörg þó
til þess að augljóst sé að þar hafi
menn villst af leið. Frásögnin í
Kveik var sannfærandi, vönduð og
vel unnin. Af þættinum að dæma
er stjórnkerfið í Namibíu grund-
vallað á græðgi og spillingu vald-
hafa, og Samherji tók fullan þátt
í þeim leik sem þar var boðið upp
á. Af því sem komið er fram um
viðskipti Samherja í Namibíu þá
er ástæða til þess að fyllast óhug,
reiði og sorg yfir því að íslenskt
félag hafi tekið þátt í að treysta
stoðir spilltra afla þar í landi, þótt
stærstu glæpirnir felist vitaskuld í
því að rukka eða þiggja múturnar.
Allir eiga rétt á sinni málsvörn
og margt á eflaust eftir að koma
i ljós en nógu mikið virðist nú
þegar óumdeilt til þess að fullyrða
að margt í framkomu Samherja
í Afríku var til skammar. Það
hlýtur að vekja reiði hjá þeim sem
vilja halda á lofti kostum frjálsra
viðskipta því enginn pólitískur
andstæðingur þeirra sjónarmiða á
Íslandi hefði getað veitt þeim hug-
myndum þyngra högg.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 1 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
1
5
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
D
-F
A
2
8
2
4
3
D
-F
8
E
C
2
4
3
D
-F
7
B
0
2
4
3
D
-F
6
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K