Fréttablaðið - 22.11.2019, Side 2
3,5%
var atvinnuleysi að jafnaði á
þriðja ársfjórðungi.
Veður
Suðaustlæg átt, 3-10 m/s og víða
skúrir í dag, en þurrt að mestu
NA til. Hiti 0 til 8 stig að deginum,
hlýjast syðst. SJÁ SÍÐU 20
Fimir fætur
Dansarar Hátíðarballetts Sankti Pétursborgar æfðu Svanavatnið í Hörpu en sýningar á hinu sígilda verk Pjotr Tsjaíkovskí hófust í gærkvöldi.
Svanavatnið var frumf lutt í Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu árið 1877. Ballettinn segir af prinsessunni Odette sem illur galdramaður breytir í svan og
prinsinum Siegfried sem finnur hana. Vitaskuld verða þau ástfangin en galdramaðurinn leggur stein í götu þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
SAMFÉLAG Ólafur Þór Gunnars-
son, þingmaður Vinstri grænna,
varði titil sinn í kótilettukappáti
á dvalarheimilinu Hrafnistu þar
sem blásið var til kótilettuveislu á
afmæli Sjómannadagsráðs. Hafði
hann algera yfirburði yfir aðra
keppendur, og sá eini sem náði
að klára 1.200 gramma skammt á
fimm mínútum.
Ólafur var saddur og sæll þegar
Fréttablaðið náði tali af honum eftir
sigurinn og vottaði ekki fyrir maga-
verk. „Mér líður ljómandi vel, en ég
þarf líklega ekki að borða fyrr en
einhvern tímann á morgun,“ segir
hann. „Mér finnst lambakjöt voða-
lega gott, hvort það eru kótilettur
sem slíkar skiptir ekki öllu máli.“
Á meðal keppinauta Ólafs voru
kollegar hans á þingi, Sjálfstæðis-
mennirnir Ásmundur Friðriksson
og Vilhjálmur Árnason. Burðugir
að vöxtum en áttu aldrei mögu-
leika í Ólaf. Íþróttafréttamaður-
inn skeleggi Hörður Magnússon
lýsti viðburðinum með miklum
tilþrifum.
Ljóst er að Ólafur hefur með-
fæddan hæfileika til kappáts, en
áhorfendur fylgdust með honum
naga letturnar inn að beini með
lítilli fyrirhöfn. Hefur hann aðeins
tvisvar tekið þátt í kappáti um
ævina, kótilettuveislunni í ár og í
fyrra, þegar hann lagði meðal ann-
ars Hjalta Úrsus að velli. Ólafur vill
lítið gefa upp um hver sé lykillinn
að sigri. „Ætli það sé ekki bara að
mæta og hafa gaman af þessu,“
segir hann og glottir við tönn.
Ólafur segist hafa haft gaman af
þessum keppnum á Hrafnistu en
að það sé ekkert sérstakt kapps-
mál hjá sér að vinna. „Á næsta ári
hljóta þeir að geta fundið einhvern
Þingmaður og læknir
vann kótilettukappát
Ólafur Þór Gunnarsson þingmaður var sá eini sem náði að klára skammtinn
sinn í kótilettukappáti sem haldið var á Hrafnistu. Ólafur, sem er læknir, segir
óhætt að taka þátt einu sinni á ári en að þetta sé alls ekki hollt til lengdar.
Ólafur var vel að fyrsta sætinu kominn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Mér finnst lamba-
kjöt voðalega gott.
Ólafur Þór Gunnarsson,
þingmaður Vinstri grænna
annan en mig til að keppa,“ segir
hann. Ólafi verður þó varla kápan
úr því klæðinu, því að hann hefur
sett viðmiðið hátt. Má því ætla að
f leiri vilji fá að reyna sig við hann.
Út frá lýðheilsusjónarmiðum
kemur nokkuð á óvart að Ólafur
skuli hafa tekið þátt en eins og
margir vita er hann öldrunarlækn-
ir að mennt. „Þetta er alls ekki hollt
til lengdar,“ segir hann. „Sennilega
er óhætt að gera þetta einu sinni á
ári, en alls ekki á hverjum degi.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi á
þriðja ársfjórðungi var að jafnaði
3,5 prósent sem þýðir að 7.200
manns töldust án atvinnu. Jókst
atvinnuleysi um 1,3 prósentustig
frá árinu áður. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Hagstofunni.
Rúmlega sjö
þúsund manns
atvinnulaus
Atvinnuþátttaka fólks á aldr-
inum 16-74 ára var að jafnaði 80,8
prósent sem jafngildir tæplega 209
þúsund manns.
Meðalfjöldi vinnustunda í viku
var 40,8 klukkustundir. Ef aðeins
er litið til þeirra sem voru í fullu
starfi var meðaltalið hins vegar 45,2
stundir á viku. – sar
SAMGÖNGUMÁL Skýrsla starfshóps
um f lugvallakosti á suðvestur-
horninu var kynnt í umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis í gær. Sig-
urður Ingi Jóhannsson, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, skipaði
starfshópinn á síðasta ári.
Formaður starfshópsins er Eyj-
ólfur Árni Rafnsson, formaður SA.
Verkefni hans var að skoða nánar
hugmyndir um nýjan alþjóðaflug-
völl í Hvassahrauni og skoða stað-
setningu innanlandsf lugvallar á
höfuðborgarsvæðinu.
RÚV greindi frá því í gær að
meðal niðurstaðna skýrslunnar
væri að það tæki allt að 20 ár að
byggja flugvöll í Hvassahrauni eftir
að ákvörðun um slíkt lægi fyrir.
Þá myndi kostnaður við flugvöll
í Hvassahrauni sem bæði sinnti
millilanda- og innanlandsf lugi
verða að minnsta kosti 300 millj-
arðar króna. Verðmiði á innan-
landsflugvelli í Hvassahrauni yrði
hins vegar um 40 milljarðar.
Samkvæmt frétt RÚV telur starfs-
hópurinn ekki vænlegt að endur-
nýja Reykjavíkurf lugvöll. Slíkt
myndi kosta 15-20 milljarða en
lengja þyrfti f lugbrautir yfir Suður-
götu og út í Fossvoginn.
Flutning ur innanlandsf lugs
til Kef lavíkur myndi samkvæmt
skýrslunni kosta um 44 milljarða.
Til stóð að kynna skýrsluna í dag
en vegna óvissu um verkfall blaða-
manna á vefmiðlum voru líkur
taldar á því að það myndi dragast
fram á mánudag. – sar
Birting skýrslu
gæti dregist
vegna verkfalls
Skýrslan bíður nú kynningar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
B
-6
B
9
8
2
4
4
B
-6
A
5
C
2
4
4
B
-6
9
2
0
2
4
4
B
-6
7
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K