Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 4
SKIPULAGSMÁL „Þetta er allt hið
leiðinlegasta mál því í raun er þetta
jákvætt verkefni en það verður að
vinnast lögum samkvæmt,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, um aftur-
köllun leyfa til Neyðarlínunnar til
að byggja rafstöð í Drekagili við
Öskju.
Drekagil er í þjóðlendu og því
þurfti Neyðarlínan leyfi frá bæði
forsætisráðuneytinu og Skútu-
staðahreppi fyrir virkjun þar.
Virkjunin á að framleiða rafmagn
fyrir f jarskiptamastur Neyðar-
línunnar á Vaðöldu og fyrir ferða-
þjónustu Vatnajökulsþjóðgarðs og
Ferðafélag Akureyrar.
Eftir að í ljós kom í haust að
stíf lumannvirki Neyðarlínunnar
var sjöfalt lengra en leyft var aftur-
kallaði Skútustaðahreppur fyrir sitt
leyti framkvæmdaleyfið. Forsætis-
ráðuneytið hefur nú gert slíkt hið
sama eftir að frestur sem Neyðar-
línan fékk til að gera athugasemdir
rann út án þess að svar bærist.
„Staðan er sú að það hafa engin
viðbrögð heldur borist frá Neyðar-
línunni til sveitarfélagsins, þrátt
fyrir beiðni þar um,“ segir Þor-
steinn. Eftir að Skútustaðahreppur
afturkallaði leyfið hafi Neyðar-
línan verið beðin um ný og upp-
færð gögn.
„Því það er ljóst að þessi fram-
kvæmd er hvorki í samræmi við
deiliskipulag né framkvæmdaleyfi
en það hafa engin gögn eða við-
brögð borist frá þeim,“ segir hann.
Erfitt sé að segja hvernig túlka eigi
það. „Þetta veldur okkur bara von-
brigðum.“
Aðspurður hvað gerist bregðist
Neyðarlínan ekki við segir Þor-
steinn sveitarfélagið geta farið fram
á að Neyðarlínan fjarlægi mann-
virkin. Ef það verði ekki gert geti
sveitarfélagið gert það á kostnað
Neyðarlínunnar. „En ég vona svo
sannarlega að til þess komi ekki,“
segir sveitarstjórinn.
Forsætisráðuneytið hefur nú
gert Neyðarlínunni að leggja fram
uppfærð gögn og nákvæma fram-
kvæmdaáætlun og að sækja um
nýtt leyfi frá ráðuneytinu eftir að
Skútustaðahreppur hefur veitt
fyrirtækinu sitt leyfi.
Fram kom í Fréttablaðinu 11.
október að Skútustaðahreppur
hefði kvartað sérstaklega undan
framkomu framk væmdastjóra
Neyðarlínunnar við fulltrúa sveit-
arfélagsins og að stjórn Neyðar-
línunnar hefði í kjölfarið harmað
„þá hnökra sem urðu á framkvæmd
þessa þjóðþrifaverks og þá sérstak-
lega þá sem sneru að samskiptum
við sveitarfélagið“, eins og sagði í
bréfi stjórnar Neyðarlínunnar.
Þórha l lu r Óla f s son, f r a m-
kvæmdastjóri Neyðarlínunnar,
segist ekkert vilja tjá sig um stöðu
mála varðandi framkvæmdirnar í
Drekagili. gar@frettabladid.is
Mývetningar vonsviknir með
stöðuna á Neyðarlínuvirkjun
Forsætisráðuneytið hefur nú líkt og Skútustaðahreppur afturkallað leyfi Neyðarlínunnar fyrir rafstöð í
þjóðlendunni í Drekagili vegna þess að framkvæmdin er umfangsmeiri en leyft var. Neyðarlínan hefur
hvorki svarað ráðuneytinu né hreppnum. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar tjáir sig ekki um málið.
STJÓRNSÝSLA Sameiginlegir hags-
munir Ríkisútvarpsins og Reykja-
víkurborgar urðu til þess að byggt
var íbúðarhúsnæði á lóðum í kring-
um Útvarpshúsið í Efstaleiti. Með
samningnum við Reykjavíkurborg
varð RÚV sér úti um 1,5 milljarða
króna sem afstýrði því að stofnunin
yrði ógjaldfær.
Fram kemur í nýrri skýrslu Ríkis-
endurskoðunar að heildarsöluverð-
mæti byggingaréttarins hafi numið
nærri tveimur milljörðum króna.
Kostaði það RÚV 495 milljónir til
að gera lóðina söluhæfa.
Í skýrslunni segir að það sé
athyglisvert að Reykjavíkurborg
geri ekki kröfu um þátttöku RÚV
í stofnkostnaði innviða, en það er
sérstaklega tekið fram í samningn-
um. Framkvæmdaraðili á lóðinni
greiddi borginni alls 523 milljónir
króna í gatnagerðargjöld.
Lóðin sem um ræðir er 5,9 hekt-
arar, sem er nokkru stærra en
Útvarpshúsið að flatarmáli.
Upphaf málsins má rekja til
erindis sem borgin sendi á ríkis-
stjórnina árið 2013 um ríkislóðir
til að byggja á. Lóðin í kringum
Útvarpshúsið var sú fyrsta sem
samningar náðust um. Fram kemur
í svari borgarinnar við fyrirspurn
Fréttablaðsins að Ríkisútvarpið ohf.
hafi verið skráður eigandi lóðar-
innar í heild sinni. Reykjavíkurborg
átti ekki rétt á að afturkalla lóðina
vegna ákvæða í samningi frá 1995,
sem var breytt útgáfa samnings frá
1990 sem kvað á um að borgin fengi
lóðina aftur árið 2040.
Það hafi verið sameiginlegir hags-
munir beggja að vinna nýtt skipu-
lag og fjölga íbúðum á svæðinu.
Reykjavíkurborg fékk land til að
þétta byggð á, 20 prósent af bygg-
ingaréttinum og rétt til byggingar
félagslegra íbúa. – ab
Sameiginlegir hagsmunir með borginni gerðu RÚV gjaldfært
Staðan er sú að það
hafa engin viðbrögð
heldur borist frá Neyðar-
línunni til sveitarfélagsins,
þrátt fyrir beiðni þar um.
Þorsteinn
Gunnarsson,
sveitarstjóri
Skútustaðahrepps
Frá stífluframkvæmdum Neyðarlínunnar við Drekagil sem nú hafa verið stöðvaðar.
Framkvæmdir hófust í nóvember
2016. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu
fyrir unglinga til að keppa um Íslensku
barnabókaverðlaunin 2020.
Skilafrestur er til og með 10. janúar.
Allar upplýsingar á www.forlagid.is
DÓMSMÁL Riftunarmál þrotabús
ACE Handling ehf. gegn eignar-
haldsfélögunum ACE FBO, Global
Fuel Iceland og Bjargfasti var tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í
vikunni. Samkvæmt Sveini Andra
Sveinssyni, lögmanni þrotabúsins,
var ákveðið að fresta málinu um
tíma og reyna sættir.
Félögin voru öll í eigu Hilmars
Ágústs Hilmarssonar, f lug- og
athafnamanns sem búsettur var í
Sviss, en nafn hans kom við sögu
þegar Panamaskjölin voru opin-
beruð. Sumarið 2018 fjallaði DV
ítarlega um starfsemina í Skýli 1 á
Reykjavíkurflugvelli þar sem félög-
in höfðu aðsetur.
Áður en ACE Handling ehf.
varð gjaldþrota var Sigurður Ingi
Þórðarson, betur þekktur sem
Siggi hakkari, skráður stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri.
En hann hefur hlotið dóma fyrir
kynferðisbrot, eins og hinn skráði
stjórnarmaðurinn, Robert Tomasz
Czarny. Báðir höfðu þeir aðgang að
haftasvæðum.
Í Skýli 1 á Reykjavíkurf lugvelli
hafði einnig trúfélagið Postula-
kirkjan aðstöðu, en Dan Sommer,
prestur kirkjunnar, var lífvörður
Sigurðar þegar hann kom fyrir
allsherjarnefnd Alþingis árið 2013
vegna Wikileaks-málsins. Greint
var frá því að í Skýli 1 hefði verið
búið að koma fyrir kapellu og þar
færu meðal annars fram skírnir.
– khg
Flugvallarmáli
frestað í bili
Sigurður Ingi Þórðarson var fram-
kvæmdastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
B
-7
F
5
8
2
4
4
B
-7
E
1
C
2
4
4
B
-7
C
E
0
2
4
4
B
-7
B
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K