Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 20
Bókaunnendur þurfa að kynna sér þessa nýju höfunda því þetta eru meistarar framtíðarinnar. Bryndís segir að í könnuninni megi finna margar áhuga-verðar upplýsingar. „Ég veit ekki til þess að áður hafi verið spurt hvað Íslendingar vilji helst lesa en niðurstaða könnunarinnar sýnir að yfirgnæfandi meirihluti lesenda sækir í spennusögur eða um 60 prósent. „Þetta sýnir styrk- leika spennusögunnar sem hefur einmitt verið í mikilli þróun á liðnum árum. Til eru bóksalar sem greina spennusögur niður í allt að 20 mismunandi undirflokka svo hér er engin jaðarbókmennta- grein á ferð,“ segir hún. „Fólk mátti nefna fimm mismunandi bóka- flokka sem það vildi lesa meira af og spennusögur komu þar sterkt fram hjá öllum hópum, óháð kyni og aldri. Þessi niðurstaða ætti að hjálpa þeim sem eru í vandræðum með jólagjafavalið, það eru yfir- gnæfandi líkur á að spennusögur hitti í mark,“ segir Bryndís sem bendir á að í Bókatíðindunum sem dreift var í hús í vikunni séu nítján nýjar, íslenskar spennusögur. „Að auki eru yfir þrjátíu þýddar glæpasögur svo úrvalið í þessum flokki er alveg glæpsamlega gott. Fyrir 30 árum, árið 1989, voru kynntar fimmtán glæpasögur í Bókatíðindum og þar af aðeins tvær eftir íslenska höfunda. Alls voru 2.285 sem fengu senda könnunina og voru þeir 18 ára og eldri. Svarhlutfall var 56 prósent. Heimsmet í lestri Í könnuninni kemur glöggt fram að Íslendingar eru mikil bóka- þjóð og halda enn heimsmetinu í lestri. Bryndís segist frekar merkja aukinn lestur á liðnu ári. „Könn- unin getur gefið útgefendum vís- bendingu um á hvaða bækur þeir ættu að leggja áherslu fyrir jólin,“ segir hún. „Rómantískar sögur voru til dæmis mjög vinsælar fyrir þrjátíu árum en þegar maður skoðar Bókatíðindi það ár voru mun fleiri ástarsögur gefnar út en spennusögur. Nú eru ástarsögur aftur að sækja í sig veðrið, en þær hafa, líkt og glæpasögurnar, þróast mikið á undanförnum árum og teygja sig nær fagurbókmenntum í gæðum. Það er bara svo gott að setjast niður í friði og ró með nýja bók og leyfa höfundi að leiða sig inn í annan heim. Um leið er hægt að hvíla sig frá áreiti snjalltækja og öðlast frið frá f lestum lífsins raunum,“ segir hún. Meistarar framtíðarinnar Bryndís segir að ný kynslóð öflugra rithöfunda sé að spretta upp. „Bókaunnendur þurfa að kynna sér þessa nýju höfunda því þetta eru meistarar framtíðarinn- ar. Þetta ár hefur verið gríðarlega sterkt skáldverka- og ljóðabókaár og auk þess metútgáfa skáldverka fyrir börn upp í tólf ára. Bókin verður áfram langvinsælasta jóla- gjöf þjóðarinnar og jólabókaflóðið í ár er sannkallað skáldverkastór- flóð.“ Íslendingar spenntastir fyrir spennusögum Félag íslenskra bókaútgefanda lét fyrr á þessu ári fram- kvæma könnun á lestri og kaupum Íslendinga á bókum og hvers konar bækur væru vinsælastar auk annars. Bryn- dís Loftsdóttir segir að margt hafi komið sér á óvart. Bryndís starfar hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Rithöfundurinn Sigrún Elías-dóttir gaf út sína fyrst barna-bók á dögunum sem ber heitið Leitin að vorinu. Hún segir að börn séu á vissan hátt kröfu- harðari lesendur en fullorðnir. „Ég myndi segja að það væri að mörgu leyti erfiðara að skrifa fyrir börn. Mörg nútímabörn hafa frek- ar litla þolinmæði og gera kröfu um hraða byrjun og atburðarás í bókum. Ef athygli þeirra er er ekki gripin á fyrstu síðunum, snúa þau sér bara að einhverju öðru áhuga- verðara,“ segir Sigrún. „Það sama gildir um unga áheyrendur; það getur verið erfitt að halda athygli þeirra með upplestri á bókum á meðan fullorðnir sitja yfirleitt kyrrir í sætunum sínum og grípa ekki fram í.“ Sonur Sigrúnar lagði henni lið við skrifin en hann er áhugasamur og fróður um kynjaverur af öllum toga. „Eldri sonur minn Ernir, sem er 13 ára, hefur alltaf verið mikill aðdáandi furðusagna, skrímsla, kynjaskepna og goðsögu- legra vera, kannski hann hafi erft það frá mér. Þær skepnur í bókinni Góður boðskapur er mikilvægur Sigrún Elíasdóttir segir góðan boðskap mikilvægan í barnabókum. Mér hefur verið sagt að Sterkasta kona í heimi sé aðgengilegasta bókin mín. Aðgengilegri en Samfeðra og Raddir úr húsi loftskeytamanns- ins. Kannski er það rétt, segir rit- höfundurinn og myndlistarkonan Steinunn G. Helgadóttir um sína þriðju skáldsögu sem kom nýverið út. Steinunn segir sköpunarferlið hafa verið ánægjulegt. „Það var alla vega gaman að „byggja“ þessa bók, reikna út burðarþol, smíða útskotsglugga með útsýni og setja svo inn þetta fólk, fólkið mitt. Sterku konuna, Gunnhildi, sem montar sig aldrei af ofurkröft- unum, sem er eftirsótt- ur líksnyrtir (því hún lætur allar sögur enda vel), sem er einstæð móðir, sem er sögu- hetjan í þessari bók. Og bróður hennar, sem ekki trúir lengur að mótmæli beri árangur en verður engu að síður ófús foringi í samtín- ingslegum hópi aðgerðasinna auk viðskiptavina Gunnhildar sem hafa mikla þörf fyrir að tjá sig.“ Þá hefur Steinunn einnig starfað töluvert við myndlist sem hún segir að mörgu leyti áþekkt starfi rithöfundarins. „Ég finn ekki mikinn mun á að vera mynd- listarmaður og rithöfundur. Þetta er alltaf spurning um að vinna vinnuna sína, hvernig sem þú ert stemmd. Þú verður að trúa á það sem þú ert með í höndunum og höfðinu og mátt aldrei láta aðra teyma þig út fyrir það sem þú vilt og getur staðið við. Og þegar upp er staðið þarftu svo auðvitað að gefa öllum skotleyfi á það sem þú skapar, því hvort sem þú gerir mynd- verk eða skrifar þá er verkið aldrei tilbúið fyrr en það mætir lesandanum (eða hlustandanum eða sýningargest- inum). Þá fyrst hefst samtalið.“ Margt líkt með skrifum og myndlist Steinunn segir myndlist að mörgu leyti áþekka starfi rithöfundarins. sem ekki eru norrænar þjóð- sagnaskepnur eru mestmegnis hannaðar af honum. Ef ég verð stopp í skrifum ræði ég iðulega við hann um hvað gæti gerst næst, hvaða veikleika skepna hafi svo hægt sé að sigra hana eða hvaða skýringu væri hægt að gefa á hinu eða þessu.“ Þá er boðskapur í barnabókum mikilvægur. „Í fjölskyldubók- menntum mætti alveg og ætti jafnvel að vera einhver góður boðskapur undir niðri, án þess þó að fara út í leiðinlegar predikanir. Ég fagna alltaf góðum undirtóni í bókum þegar ég les fyrir mín börn, það gefur aukna möguleika á góðum umræðum okkar á milli. Í ímynduðum heimi eins og í Leitinni að vorinu er svo auðvelt að setja hlutina í annað sam- hengi en við höfum fyrir augunum alla daga og þannig er til dæmis hægt að benda á fáránleika óréttlætis eða misréttis. Mér finnst líka mikil- vægt að allir geti verið hetjur og hafi eitthvað til málanna að leggja við að leysa vandamál. Enginn er fullkominn eða getur allt og það sem sumir telja galla á fólki, geta líka verið helstu kostir þess.“ Mér finnst líka mikilvægt að allir geti verið hetjur og hafi eitthvað til málanna að leggja við að leysa vandamál. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBÓKAMESSA 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 B -9 8 0 8 2 4 4 B -9 6 C C 2 4 4 B -9 5 9 0 2 4 4 B -9 4 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.