Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 16

Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Framhald af forsíðu ➛ lega mikið í tísku nú um mundir, sérstaklega í Danmörku. Það finn ég vel, en Íslendingar eru alltaf aðeins seinni að taka við sér þótt það leyni sér ekki að áhuginn hefur aukist hér heima,“ segir Bjarni. Krúttlegur jólamarkaður Nú um helgina stendur Bjarni fyrir sínum árlega jólamarkaði. „Þegar ég flutti aftur heim til Íslands ákvað ég að halda jóla- markað hér heima, rétt eins og ég hafði gert á vinnustofu minni í Dan- mörku. Við maðurinn minn, Guð- brandur Árni Ísberg, keyptum hús í Hafnarfirði haustið 2007, fluttum inn 12. nóvember og þaðan í frá ákvað ég að jólamarkaðurinn yrði alltaf á sama tíma ár hvert; helgina fyrir fyrsta sunnudag í aðventu,“ segir Bjarni sem tjaldar öllu til á jólamarkaðinum. „Fyrsti markaðurinn var krútt- legur; tvær hillur af vörum, enginn gluggi á vinnustofunni og lítið að sjá utan frá. Ég bauð upp á smávegis af veitingum og seldi þó slatta, sem gladdi mig mikið. Síðan hefur margt breyst og í dag er jólamarkaðurinn orðinn það stór að fólk bara hringir og spyr: „Sami tími, er það ekki?“ Mér þykir vænt um það og hitti fólk héðan og þaðan sem er yfir sig spennt að koma,“ segir Bjarni, fullur tilhlökkunar. „Ég býð upp á heimagerðar smákökur, átta til níu sortir, og kanelsnúðana sem má ekki vanta. Fólk flippar yfir snúðunum sem eru meðal annars bakaðir úr kartöflu- mús. Þetta verður í boði alla dagana ásamt jólaglöggi, kaffi, rauðvíni og hvítvíni, jólabjór og gosi,“ upplýsir Bjarni sem tók ákvörðun um að bjóða líka upp á dýrindis hnall- þórur með kaffinu þegar jóla- markaðurinn varð tíu ára og þannig hefur það verið allar götur síðan. „Einnig laufabrauð, ávexti og gotterí fyrir börnin, og eftir að ég fór að opna jólamarkaðinn á föstudegi fyrir fjórum árum hef ég verið með heitan og kaldan mat, til dæmis lambalæri með béarnaise-sósu á súrdeigsbrauði og fleira gómsætt og jólalegt,“ segir Bjarni sem leggur mikið upp úr veitingunum. „Mér þykir gott að gefa af mér og láta fólki líða vel þegar það kemur.“ Matargestir eignast stellin Á jólamarkaðnum teflir Bjarni ein- göngu fram nýjum verkum. „Það eru bæði stakir og stórir hlutir, vasar, skálar og slíkt, en líka matarstell sem njóta mikilla vin- sælda og ég tala nú ekki um bollar og glös. Allt eru það söfnunarmunir sem fólk elskar að bæta í hjá sér en líka að gefa í jólagjafir,“ útskýrir Bjarni. Hann segir tengsl við íslenska náttúru blasa við í verkum sínum, ekki síst þegar kemur að litavali. „Formin fylgja þar fast á eftir og er áferð hvers hlutar mjög einstök. Því er engin leið að apa handverkið mitt eftir því að ég vinn með fleiri hundruð glerunga og blöndur og geri eins og mig lystir. Ég hef gert það frá því í náminu og var kennarinn minn þá mjög hrifinn enda fór hann að leika sér á þennan máta sjálfur,“ segir Bjarni sem verður með um 500 demantabolla á jólamarkaðnum og enga tvo eins. Bjarni segist oft vilja eigna sér hlutina sjálfur þegar þeir koma úr ofninum. „En þó er það þannig, því miður, eða bara skondið, að ég á mitt eigið sköpunarverk ekki lengi í eldhús- inu. Oftar en ekki enda matarboðin með því að gestirnir kaupa diskana mína eða þá vasa eða annað af veggjunum hjá mér. Ég hef gert það, og finnst skrýtið að fólk vilji eignast það sem ég hef valið mér sjálfur. En ég hugsa þá alltaf: Æ, ég geri mér bara nýjan hlut sem þó gengur ekki upp því hver hlutur er einstakur. Mér finnst bara yndislegt að gefa af mér og leyfa öðrum að njóta líka og finn mér þá bara eitthvað annað,“ segir Bjarni og hlær. Á samningi um allan heim Bjarni gerði nýverið samning við hið víðfræga vöruhús Illum í Kaup- mannahöfn. „Verkin eru komin í sölu og geng- ur vel, hef ég heyrt. Sjálfur hef ég ekki séð hvernig þetta kemur út en heyrt allt gott um það. Maður hefur ekki alltaf tíma til að fylgja öllu eftir og vera á staðnum þegar opnun er, eins og var hjá Illum 15. nóvem- ber, en þá breyttu þeir allri fjórðu hæðinni þar sem einungis hand- gerðir munir eru til sölu, til dæmis japanskt te og slíkt,“ segir Bjarni um þann heiður sem honum var sýndur að vera valinn af Illum. „Þeir völdu mig vegna þess að þeim finnst ég hafa einstakan stíl og þótt hægt sé að sjá hundrað bolla eftir mig í hillu er engir tveir eins. Ég átti fund með Illum í júlí og fannst erfitt að skilja hvert fundurinn væri að fara því ég hélt að Illum og Illums Bolighus væri sama fyrirtækið. Svo er ekki og kom í ljós að fjölskyldan sem átti Illums Bolighus seldi Illum úr fyrirtækinu upp úr 1970,“ upp- lýsir Bjarni en bæði Illums Bolighus og Illum eru hvort með sína ólíku muni frá Bjarna. „Til dæmis vildi Illum fá dem- antabollana mína og diska sem Illums Bolighus hefur ekki. Ég vinn þannig að ég geri ákveðna muni fyrir ákveðna staði því þá hafa engir tveir sömu verk frá mér. Þannig er Louisiana-safnið í Danmörku með glös sem seljast gífurlega vel hjá þeim og fást eingöngu hjá þeim en ég verð með þau á jólamarkaðnum í ár,“ upplýsir Bjarni. Hann segir samningana við Illum og Illums Bolighus vera gæða- stimpil. „Vinsældir og viðurkenning á verkum mínum í Danmörku hefur aukist gífurlega og nú vinn ég að samningi við fyrirtæki sem vill verða umboðsaðli minn fyrir öll Norðurlöndin; bæði gallerí og verslanir en einnig veitingastaði og hótel. Þetta hefur líka gefið mér það tækifæri að vera valinn einn af tíu bestu og áhugaverðustu leirlista- mönnum Norðurlanda og á nýárinu mun ég einnig starfa með einum eða tveimur af tíu Michelin-veit- ingastöðum á Norðurlöndunum sem einnig verður að sýningu í Kaupmannahöfn og útgáfu bókar,“ segir Bjarni sem er með mörg járn í eldinum og samning við eina stærstu og virtustu lífsstílsverslun Bandaríkjanna, ABC Carpet and Home sem verslar eingöngu með handgerða muni. Keramik er rómantískt Vinnudagurinn hjá Bjarna er langur enda margir um hituna þegar kemur að eftirsóttum leirmunum hans. „Ég vinn tíu tíma á dag alla virka daga en reyni að halda vinnudeg- inum innan átta tíma um helgar, þótt það gangi ekki alltaf upp. Þrátt fyrir annríkið loðir rómantík við þetta starf. Ég er gamall banka- maður og ekkert rómantískt við það starf en þegar maður er sinn eigin herra, þótt vinnan sé mikil, þá fylgir innri hamingja hverju handtaki, ilmurinn af leirnum og hitinn frá ofninum á meðan Rás 1 malar. Já, það er rómó að vera í keramikinu,“ segir Bjarni og hlær hamingjuhlátri. „Ég tók ákvörðun um að koma mér á framfæri eftir að ég útskrifað- ist úr skólanum árið 2000, sem ég og gerði. Ég vann hörðum höndum að því að skapa mér nafn og virðingu innan listarinnar í Danmörku, sem og tókst. Eftir að heim kom hafði ég sáð mjög mikilvægum fræjum ytra sem síðan fóru að vaxa og dafna sem var gott fyrir mig á meðan ég tókst á við það drama að vera kominn til Íslands árið 2007, byrja aftur að vinna í banka til að ná endum saman og verða þátttakandi alla leið í bankahrunið,“ segir Bjarni sem hætti störfum í bankanum 2010 til að stofna galleríið Kaolin sem er enn starfandi en nú er hann einn af eigendum gallerísins Stígs á Skólavörðustíg. „Ég hef verið sjálfstætt starfandi í leirnum síðan 2010 og framleitt og skapað hin ýmsu verk. Eitt er þó það sem ég er stoltastur af, má ég segja, og það eru hringvasarnir. Þá skapaði ég í skólanum og hef unnið síðan enda eru þeir mjög vinsælir, bæði hér heima og í Danmörku.“ Skyggn frá barnsaldri Bjarni er með vinnustofu í bílskúrn- um en í vor verður breyting á. „Ég ákvað að nota það sem ég hef fengið út úr keramikinu til að stækka vinnustofuna. Búið er að gera grunninn og í apríl verður bílskúrinn rifinn og stærri vinnu- stofa byggð. Jólamarkaðurinn sem ég opna í dag verður því sá síðasti í þessu rými því á næsta ári verður hann á nýju vinnustofunni, sem verður yndislegt,“ segir Bjarni. „Ég hef lifað dálítið eftir því sem tengdamamma sagði við mig á sínum tíma: Þú ert það sem þú gefur. Þegar frítími gefst hitti ég vini og elska að halda matarboð og eiga góðar stundir með fólki. Stundum bjóðum við bara hinum og þessum sem ekkert þekkjast og komum á skemmtilegum kynnum. Það er oft æðislega gaman,“ segir Bjarni sem nýtur þess líka að eiga náðugri stundir með sínum heittelskaða. „Guðbrandur er sálfræðingur og við eigum oft dýrmætar stundir þar sem við spjöllum lengi og vel. En tja, þegar ég vil virkilega slaka á er ég á vinnustofunni. Þar er svo góður andi, og já, líka andi,“ segir Bjarni hinn dularfyllsti. „Ég hlakkaði svo mikið til að geta unnið á vinnustofunni þegar við keyptum húsið. Fyrsta daginn þar inni var mér gjörsamlega ýtt út af einhverjum sem þar er en ég hef síðan náð sáttum við. Við erum þarna saman á einhvern máta og þegar ég brenni leir í ofninum hef ég alltaf kveikt ljós fyrir hann. Ég hef upplýsingar um að andinn sé karlmaður sem hafi verið með verk- stæði hér áður og núna er svolítill óróleiki á heimilinu og hundarnir skynja hann vel. Því fer ég með bæn fyrir andann sem deilir með mér vinnustofunni því hann finnur að það eru breytingar í vændum og óttast, held ég, um sig. Ég þarf því að spjalla aðeins við hann og biðja fyrir honum og okkur, en það er allt í lagi. Hann þarf bara að vita að hann getur áfram verið hjá mér þegar nýja verkstæðið verður tilbúið næsta sumar,“ segir Bjarni sem frá barnsaldri hefur haft mikla skyggnigáfu sem fylgir honum enn. „Sem lítill drengur fékk ég sjaldan frið fyrir þessu og það jókst bara með aldrinum. Mikið var komið inn í herbergið mitt og ég sá hluti gerast, dyr opnast og annað. Í dag fæ ég skilaboð um óorðna hluti og það sem hefur aukist enn fremur, skilaboð um komandi andlát fólks. Þegar við Guðbrandur bjuggum í Danmörku og stóðum eitt kvöld við eldamennsku fékk ég til dæmis skilaboð um að jafnaldra mín næði ekki að lifa fimmtugsafmæli sitt. Þá vorum við 41 árs en níu árum síðar hringdi systir mín til að tilkynna um andlát þessarar manneskju sem hafði látist af völdum krabba- meins. Ég hafði sagt systur minni frá þessum skilaboðum níu árum áður og hún sagði mér sem var, að sú látna hefði átt tvo mánuði í fimm- tugt. Þá fékk systir mín sjokk, og ég líka. Skilaboðin eru mun fleiri og ég veit ekki hvers vegna mér er gert viðvart. Ég hef meira að segja séð nýkeypt hús vinafólks og getað lýst þeim að innan og hver bjó þar áður.“ Jólamarkaður Bjarna er opnaður í dag og verður opinn fram á sunnudag á vinnustofu hans að Hrauntungu 20 í Hafnarfirði. Allir velkomnir. Listmunir og matarstell Bjarna eru eftirsótt um allan heim en nýlega gerði hann samning við Illum í Kaup- mannahöfn og á nýárinu taka við ný og spennandi verkefni, meðal annars samstarf við tvo af tíu Mich elin-stöðum á Norðurlöndum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hver og einn listmunur Bjarna er einstakur og engum líkur. Stíll Bjarna er einstakur og hefur vakið eftirtekt og aðdáun um allan heim.Litríkar skálar, vasar og leirtau. Bjarni segir keramikið rómantískt. Nú er svolítill óróleiki á heimil- inu. Ég þarf því að spjalla aðeins við andann og biðja fyrir honum og okkur. Það er í allt í lagi. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 B -8 9 3 8 2 4 4 B -8 7 F C 2 4 4 B -8 6 C 0 2 4 4 B -8 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.