Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 30

Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 30
Aragrúi bóka kemur út fyrir þessi jól og ekki fá þær allar ríflega athygli. Ekki er gott ef góðar bækur fara fram hjá öfl- ugum lestrarhestum. Glæsilegur Potter Fáir barnabókahöfundar hafa glatt æsku heimsins í jafn ríkulegum mæli og J. K. Rowling með bókum sínum um Harry Potter. Tuttugu ár eru síðan fyrsta bókin um galdra- strákinn kom út á íslensku, Harry Potter og viskusteininn. Af því tilefni er komin út einkar glæsileg útgáfa af bókinni með myndum eftir Jim Kay. Hann er virtur myndskreytir og myndskreytti til dæmis á listilegan hátt Skrímsl- ið kemur eftir Patrick Ness sem kom út í íslenskri þýðingu fyrir örfáum árum. Myndir hans í þessari bók eru hreint stórkost- legar og minna á hversu mikil upplifun það er að lesa dásam- lega barnabók með myndum sem styðja vel við söguna og auka á upplifunina. Harry Potter og viskusteininn er ævintýrarík, spennandi og fyndin bók sem gleður alla sem eru svo lánsamir að hafa varðveitt barnið í sér. Gefandi lestur Smásögur heimsins er ritröð þar sem er að finna íslenskar þýðingar á smásögum úr öllum heimsins hornum. Í nýj- asta bindinu, því fjórða í röðinni, er að finna á annan tug smásagna frá Afríku. Á undan hverri sögu er sagt frá viðkomandi höfundi og verkum hans í stuttum og skýrum texta. Meðal höfunda eru nokkrir Nóbelsverðlaunahafar, Nadine Gordimer, Naguib Mahfouz og J. M. Coetzee. Aðrir eru ekki vel þekktir eins og Fatmata A. Conteth sem á eina eftirminnilegustu sögu bókarinnar, Bréf til systra minna, en þar skrifar múslimakona, sem svipta á frelsi sínu, átakanlegt bréf þar sem hún skýrir frá áformum sínum. Önnur áhrifamikil saga í látleysi sínu er Prófessorinn eftir Edwige-Renée Dro um einstakt sam- band kennara og nemanda. Þetta er bók sem unnendur góðs skáld- skapar eiga ekki að láta fram hjá sér fara. Ómótstæði- legar sögur Hinir heillandi múmínálfar Tove Jansson mæta til leiks í stórbók sem hefur að geyma þrjár sögu: Minningar múmínpabba, Örlaga- nóttina og Vetrarundur í Múmín- Faldar perlur í bókaflóðinu Fréttablaðið sér ástæðu til að minna á nokkrar klassískar perlur sem eiga skilið að fá athygli í bókaflóðinu. Svör við getraun 1. Þögn: Yrsa Sigurðardóttir 2. Korngult hár grá augu: Sjón 3. Aðferðir til að lifa af: Guðrún Eva Mínervudóttir 4. Hvítidauði: Ragnar Jónasson 5. Helköld sól: Lilja Sigurðardóttir 6. Tregasteinn: Arnaldur Indriða- son 7. Innflytjandinn: Ólafur Jóhann Ólafsson 8. Delluferðin: Sigrún Pálsdóttir dal. Sú fyrstnefnda er að koma út á íslensku í fyrsta sinn í þýðingu Þórdísar Gísladóttur, hinar tvær þýddi Steinunn Briem. Það er sérstakur fengur að Minningum múmínpabba, sem er mjög sennilega skemmtilegasta sagan um múmínálfana. Þar ákveður múmínpabbi að skrifa endurminningar sínar. Hann veltir sér upp úr harmrænni æsku sinni um leið og hann minnir stöðugt á eigið ágæti og finnur fyrir mikilli gleði við að hugsa stöðugt um sjálfan sig. Fyndnari bók um sjálfhverfan rithöfund hefur varla verið skrifuð. Í Örlaganóttinni verða nátt- úruhamfarir í Múmíndal og það reynir á fjölskylduna og vini hennar en þau rata vitanlega í mikil ævintýri. Í Vetrarundrum í Múmíndal vaknar múmínsnáðinn óvænt, þegar ætlast er til hann liggi í dvala, og sér tilveruna í algjörlega nýju ljósi. Þetta eru ómótstæðilegar bækur sem hlýja lesandanum, kæta hann og gleðja. Sígildur Balzac Sigurjón Björnsson hefur glatt unnendur heimsbókmennta með þýðingum sínum á verkum Honoré de Balzac. Nú bætist enn ein við, Svarti sauðurinn. Þar eru litríkar persónur á ferð og viðburðarík atburðarás þar sem nokkrum persónum er komið fyrir kattarnef. Eins og í f lestum sögum Balzac eru peningar mikið hreyfiafl og græðgi kemur mjög við sögu. Sigurjóni ber að þakka fyrir að koma Balzac, einum af risum bók- menntasögunnar, til Íslendinga. Balzac er höfundur sem er sannar- lega þess virði að kynnast. Eðalskáldskapur Jóns Jón Helgason var eitt dáðasta ljóðskáld tuttugustu aldar á Íslandi. Hann á enn fjölda aðdáenda sem kunna hendingar úr ljóðum hans utan að, sumir jafnvel heilu ljóðin. Nú eru 120 ár liðin frá fæðingu hans og í tilefni þess koma bækur hans út í einu safni, auk annarra kvæða. Bergsveinn Birgisson rithöfundar skrifar einkar skemmtilegan eftir- mála um skáldið ástsæla. Enginn ljóðaunnandi má láta þessa bók fram hjá sér fara. Þegar hann leggur hana frá sér að lestri loknum er hann líklegur til að tauta upphátt: Liðið er hátt á aðra öld; enn mun þó reimt á Kili … Rómuð skáldsaga Endurfundir á Bri- deshead er frægasta verk Evelyn Waugh. Eftir bókinni var gerð árið 1981 rómuð sjónvarpssería með Jeremy Irons og Anthony Andrews í aðalhlutverkum. Endurgerð mörgum árum síðar þótti ekki heppnast jafn vel. Í bókinni segir frá sambandi Charles Ryder við hinn ógæfusama og auðuga Sebastian Flyte. bókin var valin ein af 100 bestu skáldsögum nútímabókmennta af tímaritinu Time. Howard-kastali í Yorkshire var hluti af sögusviði Brideshead Revisited í samnefndum sjónvarpsþáttum. Daniel Radcliffe sem Harry Potter. Mía litla úr Múmínálfunum. „Ein besta bók um stangveiði sem hefur komið út á Íslandi fyrr og síðar.“ – Karl Lúðvíksson, visir.is KOMDU OG FÁÐU ÁRITAÐA BÓK! Sigurður Héðinn áritar bók sína á laugardag kl. 13 -16 á bás Drápu. JÓLAGJÖF VEIÐI- MANNS IN S! 14 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBÓKAMESSA 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 B -9 C F 8 2 4 4 B -9 B B C 2 4 4 B -9 A 8 0 2 4 4 B -9 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.