Fréttablaðið - 22.11.2019, Page 36
Elsku pabbi okkar,
tengdó og afi (nonno),
Salvatore Torrini
lést á heimili sínu síðastliðinn
mánudag.
Davíð Torrini Davíðsson
Emilíana Torrini
María Carmela Torrini
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Árni Guðmundsson
frá Böðmóðsstöðum,
Lækjarbrún 29,
Hveragerði,
lést 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn
23. nóvember kl. 13.
Garðar R. Árnason Gunnvör Kolbeinsdóttir
Karólína Árnadóttir
Auðunn Árnason Maria C. Wang
og afabörn.
Yndislegur sambýlismaður
og besti vinur, faðir okkar,
stjúpfaðir, afi og langafi,
Theodór Jónsson
fv. skipstjóri frá Auðkúlu
í Arnarfirði,
lést 19. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
5. desember kl. 13.00. Athöfnin verður táknmálstúlkuð.
Sólveig Júlía Baldursdóttir
Margrét Theodórsdóttir Ágúst Ingi Jónsson
Halldór Jón Theodórsson Ingibjörg Leifsdóttir
Sigrún Edda Theodórsdóttir Karl K.Á. Ólafsson
Guðbjörg Íris Atladóttir Ottó Sverrisson
Birna Sif Atladóttir Guðjón Helgi Ólafsson
Sigríður María Atladóttir Sigurjón Birgisson
Pálmi Þór Atlason Elín Guðmannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinn Gústavsson
viðskiptafræðingur,
áður til heimilis að Reynigrund 65,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 15. nóvember. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 26. nóvember kl. 13.00.
Erla Ingólfsdóttir
Dagbjört Halla Sveinsdóttir Þórhallur Örn Guðlaugsson
Anna Sveinsdóttir Magnús Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi,
Andrés Ingi Magnússon
rafvirkjameistari,
Krókamýri 78, Garðabæ,
varð bráðkvaddur 14. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 28. nóvember kl. 13.
Torfi Helgi Leifsson Margrét Sigurðardóttir
Magnús Andrésson Rósa Þórarinsdóttir
Andrés Andrésson Elfa Sif Jónsdóttir
Margrét Sif Andrésdóttir Einar Þór Einarsson
afabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Hjörtur J. Hjartar
lést sunnudaginn 17. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju
laugardaginn 23. nóvember kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á MND-félagið
eða önnur líknarfélög.
Jakobína Sigtryggsdóttir
Sigtryggur Klemenz Hjartar Ragnheiður Guðmundsdóttir
Ragna Hjartar Simon Reher
barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir og mágkona,
Elsebeth Sævarsdóttir
Gerðisá
lést í Færeyjum 19. október síðastliðinn.
Jarðarförin fór fram 25. október.
Oleif Gerðisá
Johnleif Gerðisá Edla Gerðisá
Emma Maria Hentze Ove Hentze
Sævar Petreus Gerðisá
Andri Gerðisá Jonna Lamhauge Gerðisá
Sandra Josefina Gerðisá
Iris Gerðisá
Bettý, Ádam, Bjørga og Elian
Sævar Þ. Jóhannesson Emma Hansen Jóhannesson
Jóhannes Albert Sævarsson Hildur Friðriksdóttir
Marta Sævarsdóttir
Ég var bara alltaf í hættu
Að duga eða drepast er saga Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Eyjum.
Hann segir af hreinskilni frá sigrum og ósigrum í lífinu, oft á fremur léttum nótum.
Ef ég væri spurður núna hvort ég sæi eftir að hafa skrifað þessa bók þá er svarið: Alls ekki – ég er ánægður með að hafa drifið þetta af. Var orðinn nervus yfir að ég myndi
ekki endast í það,“ segir Vestmanna
eyingurinn Bjarni Jónasson um nýlega
útkomna bók sína Að duga eða drepast.
Hann segir tengdadótturina og barna
börnin hafa imprað á því hvort hann
ætlaði ekki að skrifa ævisöguna og hann
hafi slegið til.
„Nú þarf ég ekki að f letta upp í sjálf
um mér til að muna eitthvað, ég f letti
bara upp í bókinni! Þér að segja þá er
henni feiknavel tekið, langtum betur
en ég bjóst við. Svo er hún íslensk fram
leiðsla. Óskar Ólafsson, prentari hér í
Eyjum, sá um umbrot og útlit og hún er
prentuð og innbundin hjá Ísafold.“
Spurður hvort hann hafi haldið
dagbók svarar Bjarni: „Nei, nei. En ég
á mikið af gögnum. Til dæmis eru öll
f lug skráð og svo var ég svo heppinn
að eiga sjóferðabók. Þó menn nenntu
almennt ekki að skrá í sjóferðabækur
hjá sýslumönnum og bæjarfógetum þá
heimtaði ég að allt yrði skráð í mína og
það hefði verið erfitt að henda reiður á
sjómennskuferlinum hefði ég ekki haft
hana núna. Eiginlega var erfiðast að
grafa eitthvað upp um Færeyingana.
Amma mín í Færeyjum hét til dæmis
átta nöfnum og mig langaði að hafa þau
í bókinni en fann þau ekki.“
Að duga eða drepast er ríkulega
myndskreytt. „Ég fékk mikið af góðum
myndum og átti helling sjálfur, lýsir
Bjarni. „Keypti mér tvær myndavélar
þegar ég var unglingur. Það var eftir
fermingu en fyrir Jórunni – gott að hafa
eitthvað að miða við! Jórunn, konan
mín, kom hingað til Eyja 1954 á vertíð
og svo fæddist frumburðurinn Jónas í
september 1956. Sko fuglarnir liggja á í
mánuð, við þurftum tvö ár!
Á þessum tíma snerist lífið um að
vinna, ná sér í konu og byrja að byggja.
Fyrstu vetrarvertíðina sem við Jórunn
vorum saman var hægt að lesa Mogg
ann í gegnum mig, ég var svo horaður.
Það var rosalega mikil vinna í Vinnslu
stöðinni, ég var í frystinum
og alltaf til eitt á nóttunni.
Það var líka vel borgað.“
Atvinnusaga Bjarna er
meðal annars rakin í bók
inni, hann var tíu ár í fiski,
tíu ár á sjó og tíu í f lugi. Síðan
fjögur ár – upp á dag – í kerta
verksmiðju og rak að lokum
útvarpsstöð. Ýmsum vinnu
brögðum og aðstæðum er lýst
og hann virðist hafa sterka
tilfinningu fyrir því hvernig
hlutirnir virka. „Ég hef alltaf
haft áhuga á öllu sem snýst.
Var þó ekki með beina f lugdellu en sá
að f lug var sniðugur ferðamáti og fór
rólega af stað, enda kominn vel á fimm
tugsaldur þegar ég fékk flugréttindi. Það
var viss fíf ldirfska af fjölskylduföður að
fara út í f lugrekstur.“
Bjarni kveðst aðeins hafa verið byrj
aður að f ljúga þegar Heima
eyjargosið varð, 1973. „Ég
seldi f lugvél rétt fyrir gos og
týndi bankabókinni með
peningnum sem ég fékk
fyrir hana þegar ég var á leið
í land fyrstu gosnóttina með
Leó VE en vélstjórinn fann
hana. Ég keypti fjögurra
sæta vél í maí 1973 og fór í
verklegt f lugpróf. Svo kom
sjö manna einshreyfilsvélin
með einkennisstafina GOS
1. apríl 1974. Hún var sko
ekkert aprílgabb, hagkvæm vél og ég
flutti mikið á henni milli lands og Eyja.
Bakkaf lugvöllur var ekki kominn, en
lent á Berjanesfitjum rétt við þjóðveg
inn, líka á Hellu og Skógasandi. Svo voru
tún hingað og þangað. Undir Fjöllunum
þurfti ég einu sinni að fara undir eina
loftlínu og yfir næstu.“
Spurður hvenær hann hafi verið í
mestri hættu svarar Bjarni hlæjandi.
„Ég var bara alltaf í hættu.“ Svo alvar
legur aftur. „Ég var náttúrulega í bráðum
háska þegar vettlingurinn minn festist
á vír um borð í Bergi NK 46 og ég fylgdi
með vírnum að spilinu. Menn hafa
tapað útlimum í svoleiðis aðstæðum en
ég slapp mjög vel.“ gun@frettabladid.is
Undir Fjöllunum þurfti ég einu
sinni að fara undir eina loftlínu
og yfir næstu.
„Nú þarf ég ekki að fletta upp í sjálfum mér til að muna eitthvað, ég fletti bara upp
í bókinni!“ segir Bjarni Jónasson hinn grallaralegasti. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
B
-7
0
8
8
2
4
4
B
-6
F
4
C
2
4
4
B
-6
E
1
0
2
4
4
B
-6
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K