Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 100

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 100
HANN VAR ÓTRÚLEGA NÆMUR BRJÓST- MYNDASMIÐUR, ÞAÐ ER SVO RAUNSÆR FÍNLEIKI, FEGURÐ OG MIKIÐ LÍF Í ÞEIM VERKUM. Sýning á brjóstmyndum Einars Jónssonar verður opnuð í listasafni hans á Skólavörðuholti í dag, laugardaginn 18. maí, sem er Alþjóðlegi safnadagur- inn. Frítt er á sýninguna þennan dag í tilefni dagsins. Í geymslu Listasafns Einars Jónssonar eru varðveittar á fjórða tug afsteypa af brjóstmyndum hans og nú er hluti þeirra kominn á sýningu í safninu. Hildur Arna Gunnarsdóttir er safnvörður í Listasafni Einars Jóns- sonar. „Hvatinn að þessari sýningu er sá að í desember síðastliðnum fengum við hringingu frá lífeyris- sjóðnum Birtu sem bauð okkur að gjöf verk sem þar var í geymslu. Þetta var bronssteypt brjóstmynd af Georgíu Björnsson, eiginkonu Sveins Björnssonar og fyrstu for- setafrú Íslands. Við skoðuðum verkið og í ljós kom að við áttum gifsafsteypu af því í geymslu en merking með nafni fyrirmyndar- innar hafði fallið af og verkið var því merkt sem óþekkt kona, sem hún var svo sannarlega ekki,“ segir hún. „Við fórum þá að skoða og rannsaka þær brjóstmyndir sem við áttum og fannst ástæða til að setja þær á sýningu.“ Sýning í gamla eldhúsinu Hildur Arna segir Einar hafa verið ótrúlega afkastamikinn listamann. „Hann vann við að skapa eigin lista- verk en gerði einnig brjóstmyndir eftir pöntun til að eiga fyrir salti í grautinn og einnig mótaði hann fólk sem honum var kært. Þarna er á ferð ótrúlega fögur brjóstmyndasmíð. Í verkum sínum notaði Einar sjaldn- ast fyrirmyndir, þótt einhver dæmi finnist um það. Andlitin í verkum hans eru klassísk og hans eigin sköpun. Þannig var það auðvitað ekki í brjóstmyndagerðinni þar sem hann var með raunverulegar fyrir- myndir. Hann var ótrúlega næmur brjóstmyndasmiður, það er svo raunsær fínleiki, fegurð og mikið líf í þeim verkum. Við vildum sýna þessar myndir en getum ekki sýnt þær allar því hér í safninu er pláss af skornum skammti. Við völdum því fjórtán brjóstmyndir til að setja á sýninguna. Fyrst og fremst var valið fagurfræðilegt en þó var ekki hægt að sleppa ákveðnum persónum sem léku stórt hlutverk í lífi og list Einars og studdu hann til dæmis við bygg- ingu safnsins. Sýningin er sett upp á jarðhæð í gamla eldhúsi hússins þar sem brjóstmyndirnar voru til sýnis í tíð listamannsins.“ Óskað eftir aðstoð gesta Brjóstmyndirnar á sýningunni eru af þekktu fólki. „Þær eru af Sveini Björnssyni forseta og Georgíu konu hans, Bjarna frá Vogi alþingismanni og Guðmundi Finnbogasyni en þau voru öll miklir velgjörðarmenn Ein- ars. Þarna er sjálfsmynd af Einari og mynd af bróður hans, Bjarna Jóns- syni sem var kallaður Bíó-Bjarni og var þekktur athafnamaður. Sömu- leiðis brjóstmyndir af Indriða Einarssyni skáldi, Sigurði Jónssyni skáldi frá Arnarvatni, Steinþóri Sigurðssyni jarðfræðingi, Samúel Ólafssyni söðlasmiði, Birni Krist- jánssyni kaupmanni og alþingis- manni, Jónasi frá Hriflu, Sveini Sig- urðssyni ritstjóra og svo er einn sem við eigum eftir að bera kennsl á og vonumst til að gestir geti aðstoðað okkur við það á sýningunni,“ segir Hildur Arna. Ótrúlega fögur brjóstmyndasmíð Fjórtán brjóstmyndir Einars Jónssonar á sýningu í listasafni hans. Sýningin er sett upp á jarðhæð í gamla eldhúsi hússins. Fyrst og fremst var valið fagurfræðilegt, segir Hildur Arna Gunnarsdóttir safnvörður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Málþing um brjóstmyndir Málþing um brjóstmyndir verður haldið í Listasafni Einars Jónssonar í dag á Alþjóðlega safnadaginn, laugardaginn 18. maí, klukkan 14. Málþingið setja Sigríður Melrós Ólafsdótt- ir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar, og Hildur Arna Gunnarsdóttir safnvörður og segja frá tildrögum málþingsins og hvatanum að sýningunni á brjóstmyndum listamannsins. Guðni Tómasson, listfræðingur og dagskrárgerðarmaður, flytur hugleiðingu um stöðu brjóst- mynda í nútímanum undir yfir- skriftinni Hver er nógu merki- legur? Anna Halin heldur erindi með yfirskriftinni Valdakonur og segir frá sinni eigin brjóst- myndagerð. Tvær af þeim voldugu og fögru brjóstmyndum sem eru nú á sýningu í Listasafni Einars Jónssonar. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.