Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 7
TOYOTA YARIS
Skráður: 2017 / Bensín
Beinskiptur / 60.000 km.
VERÐ: 1.290.000 KR.
SSANGYONG REXTON HLX
Skráður: 2014 / Dísel
Sjálfskiptur / 112.000 km.
VERÐ: 2.590.000 KR.
VEXTIR
VEXTIR
TRYGGÐU ÞÉR:
• Enga vexti
• Engin lántökugjöld
• Hraðari eignamyndun
• Lægri mánaðargreiðslur
NOTAÐIR BÍLAR
NÚLL
VEXTIR
Við förum alla leið og bjóðum núll prósent vexti við
fjármögnun á völdum notuðum bílum, í takmarkaðan tíma.
720017
445808
DACIA DUSTER
Skráður: 2018 / Dísel
Sjálfskiptur / 64.000 km.
VERÐ: 1.990.000 KR.
OPEL CORSA INNOVATION
Skráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / 57.000 km.
VERÐ: 2.190.000 KR.
VEXTIR
VEXTIR
445857
445838
NISSAN JUKE CENTA PLUS
Skráður: 2016 / Bensín
Sjálfskiptur / 29.000 km.
VERÐ: 2.990.000 KR.
OPEL MOKKA 4X4
Skráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / 60.000 km.
VERÐ: 3.490.000 KR.
VEXTIR
VEXTIR
445892
590362
TOYOTA C-HR
Skráður: 2018 / Bensín
Sjálfskiptur / 50.000 km.
VERÐ: 3.490.000 KR.
SSANGYONG TIVOLI XLV DLX
Skráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / 60.000 km.
VERÐ: 2.650.000 KR.
VEXTIR
VEXTIR
445880
445839
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Núll prósent vextir, allt að 80% ármögnun í allt að 24 mánuði af völdum notuðum bílum.
Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
ENN MEIRA ÚRVAL Á
NÝJU BÍLAPLANI
KRÓKHÁLSI 9
OG Á BENNI.IS
UMHVERFISMÁL Björn Bjarnason,
formaður Þingvallanefndar til
sautján ára, vill draga úr ágangi
kafara í gjána Silfru. Hjörleifur
Guttormsson, sem sat í nefndinni
í tólf ár, segir starfsemina á engan
hátt samræmast eðlilegum rekstri
þjóðgarðsins.
Báðir hafa Björn og Hjörleifur átt
sæti í Þingvallanefnd; Hjörleifur
árin 1980 til 1992 og Björn gegndi
þar formennsku í sautján ár en lét
af henni fyrir tíu árum.
Fyrir um ári sendi Hjörleifur
Þingvallanefnd ýmsar hugmyndir
sínar um starfsemi Þingvallaþjóð-
garðs. Var þar sérstaklega tekið á
köfunarmálunum.
„Um leið og þarna verði byggð
upp aðstaða, meðal annars til köf-
unar, ber að leggja af köfun í Silfru
í hjarta þjóðgarðsins, en 56 þúsund
Björn og Hjörleifur um Silfrumálið
Meira á frettabladid.is
HE ILB RIG ÐI S M ÁL „ Ák vörðunin
um það hvaða sérnám á að veita á
Íslandi, hve margir eru skráðir í við-
komandi sérnám og að hve miklu
leyti það er veitt hér eru grund-
vallarspurningar varðandi fram-
tíðarskipulag heilbrigðiskerfisins,“
segir Tómas Þór Ágústsson, for-
maður framhaldsmenntunarráðs
lækninga á Landspítala.
Nú eru um 170 manns í sérnámi
á Íslandi en í sumar fékk bráða-
lækningadeild Landspítala viður-
kenningu mats- og hæfisnefndar
heilbrigðisráðuneytisins til að veita
fullt sérnám í bráðalækningum.
Að sögn Tómasar hefur geta
kerfisins hér til að veita sérnáms-
menntun ekki verið formlega metin
en það sé í vinnslu.
„Þetta hefur verið greint innan
spítalans og við áætlum að það
þurfi að ráða að minnsta kosti 72
nýja sérnámslækna á ári til að við-
halda sama læknafjölda og í dag og
fylgja þróun nágrannalandanna.
Forsendur þessarar greiningar
eru takmarkaðar og byggja meðal
annars á núverandi fjölda sérfræði-
lækna og aldursdreifingu þeirra.“
Í fyrra voru ráðnir 58 nýir sér-
námslæknar, langf lestir í heim-
ilislækningum og almennum lyf-
lækningum. Tómas segir aðsóknina
í sérnámið góða og sér fram á að
námið muni halda áfram að vaxa.
„Það er líka mikilvægt að átta sig
á því að sama í hvaða sérnámi fólk
er, þá er þetta fólkið í framlínunni
á háskólasjúkrahúsinu. Þetta er
fólkið sem er á vöktunum og sinnir
sjúklingunum og er mjög mikil-
vægur hluti af mannafla spítalans.“
Tómas bendir á að á Íslandi sé
aðeins eitt háskólasjúkrahús auk
kennslusjúkrahúss á Akureyri.
Um fyrirsjáanlega framtíð séu því
aðeins burðir til að veita sérnám í
grunnþáttum stærstu sérgreinanna
eins og heimilislækninga, geðlækn-
inga, almennra lyflækninga og nú
bráðalækninga.
„Það sem við þurfum á Íslandi
næstu áratugina er fólk sem getur
sinnt stærstu og algengustu vanda-
málunum sem geta samt verið
f lókin. Það er þetta sem við erum
að búa til en undirsérgreinanám
og flóknara sérnám erum við auð-
vitað ekki í stöðu til að veita,“ segir
Tómas.
Það hafi augljóslega jákvæð áhrif
á gæði þjónustunnar að fólk sé að
vinna í alþjóðlega viðurkenndu og
vottuðu umhverfi. Fólk sem alist
upp í slíku umhverfi sé miklu lík-
legra til að koma aftur heim og
halda áfram að vinna innan þess
kerfis.
„Þetta leikur stórt hlutverk í
framtíðarlöðun lækna og heil-
brigðisstarfsfólks. Það er ekki hægt
að reiða sig á heppni varðandi það
hvaða fólk fer í hvaða sérgrein ein-
hvers staðar í útlöndum og hverjir
koma aftur heim. Það er ekki for-
svaranlegt til lengri tíma þótt
það hafi kannski virkað ágætlega
hingað til.“
Hann segir að í sérnáminu hér-
lendis sé lögð mikil áhersla á sam-
vinnu við virtar erlendar stofnanir.
„Í dag er það í öllu sérnámi, nema í
heimilislækningum og geðlækning-
um, að fólk þarf að taka hluta náms-
ins erlendis. Við megum samt ekki
gleyma því að við erum að mennta
og þjálfa lækna fyrir Ísland. Þessi
þjálfun verður að vera viðeigandi
fyrir Ísland.“ sighvatur@frettabladid.is
Þörf sé fyrir 72 nýja
sérnámslækna á ári
Formaður framhaldsmenntunarráðs lækninga segir fyrirkomulag sérnáms
snúast um grundvallarspurningar varðandi framtíðarskipulag heilbrigðis-
kerfisins. Mikilvægt sé að byggja upp alþjóðlega viðurkennt vinnuumhverfi.
Í sumar fékk bráðalækningadeild Landspítalans viðurkenningu til að veita fullt sérnám. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
manns fóru í gjána á árinu 2017.
Þessi starfsemi samræmist á engan
hátt eðlilegum rekstri,“ sagði Hjör-
leifur og vitnaði í stefnu þjóðgarðs-
ins að slíkri þjónustu yrði almennt
valinn staður í hæfilegri fjarlægð
frá þinghelginni. „Auk þessa hafði
ég oftsinnis gagnrýnt köfun í Silfru
og framkvæmdir henni tengdar við
forsvarsmenn Þingvallanefndar,“
segir Hjörleifur við Fréttablaðið.
Eftir frétt Fréttablaðsins á þriðju-
dag um ósk Heimsminjaskrifstofu
UNESCO um skýringar á köfunar-
þjónustunni við Silfru ræddi Björn
Bjarnason málið á vefsíðu sinni.
„Þeir sem fara um þjóðgarðinn
og sjá umsvif og mannvirki að baki
Þingvallabæjarins (þó í skjóli fyrir
þá sem í bænum eru) hljóta að reka
upp stór augu,“ skrifar Björn sem
kveður deilu um málið geta orði
langa og stranga þótt líklegra sé að
sáttaleið finnist.
gar@frettabladid.is
Það sem við þurfum
á Íslandi næstu
áratugina er fólk sem getur
sinnt stærstu og algengustu
vandamálunum sem geta
samt verið flókin.
Tómas Þór Ágústsson, formaður
framhaldsmenntunarráðs lækninga
Þessi starfsemi
samræmist á engan
hátt eðlilegum
rekstri.
Hjörleifur
Guttormsson
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð